Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1998, Síða 29

Ægir - 01.09.1998, Síða 29
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Seiðarannsóknir: Efnilegur þorskárgangur í uppsiglingu N'ýafstaðimi seiðarannsóknarleið- angur Hafrannsóknarstofnunar- innar leiddi í Ijós að annað árið í röð er að koniast á legg öflugur þorskár- gangur. Mikið var afþorskseiðum og vísitala þorsks var sit hœsta sem mœlst hefur frá því seiðarannsóknir liófust við landið árið 1970. Ef seið- ununi reiðir vel afá komandi árurn, og þó sér í lagi á komandi vetri, þá er við því að búast að þorskurinn skili sér í veiðina eftir aldamót. Eins og áður segir er þetta annað Hafrannsóknir árið í röð sem góður seiðaárgangur mælist í þorski en ellefu ár þar á und- an voru mjög léleg. í leiðangri Hafrannsóknarstofnun- arinnar voru einnig gerðar mælingar á seiðum annarra tegunda, s.s. ýsu, karfa, loðnu, hrognkelsa, steinbíts og skrápflúru. Líkt og hjá þorskinum var góð mæling ýsuseiða og var vísitalan sú þriðja hæsta frá upphafi mælinga. Seiðin voru samt nokkuð undir meðal- lagi en fyrstu vísbendingar um stærð ýsuárgangsins 1998 eru taldar benda til að hann verði í eða yfir meðallagi. Seiðavísitala loðnu var nokkuð und- ir meðallagi en seiðin fremur vel á sig komin. Þá var í leiðangrinum talsvert um seiði hrognkelsa, steinbíts, lýsu og skrápflúru og karfaseiði voru í nokkr- um mæli en útbreiðsla þeirra er þó að mestum hluta utan rannsóknarsvæðis- ins DYNEX tógið er byltingar- kennd afurð nýrrar tækni í plastefnum. Það er framleitt sem 12 þátta fléttað tóg úr óblönduðum DYNEEMA* SK 75 þráðum og húðað með "Duracoat" og er svo létt að það flýtur. DYNEX hefurmeiri slitstyrk en stálvír af sama sverleika, ogveguraðeins um 1/6 af þyngd stálvírsins og er ólíkt liprara í meðhöndlun. DYNEX þolir endurtekið álag margfalt betur en stál- vír og endurteknar beygjur svipað eða betur. Tognun við slit er aðeins um 4%. Mjög auðvelt og fljótlegt er að splæsa DYNEX. * Skrásett vörumerki DSM yfir ofurþræði úr Polyethylene. HAMPIÐJAN Bíldshöfði 9, 112 Sími: 567 6200 Fax: Reykjavík 567 6209 Notkunarsvið: Gilsar Landfestar Pokalásar Hífingastroffur Höfuðlínur Stög Stórmöskvar Dráttartóg Leysislfnur Gjarðir Akkerisfestar Ýmsar línur á nætur. AGIR 29

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.