Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1998, Page 34

Ægir - 01.09.1998, Page 34
verði að taka tengingu við umhverfis- málin, alþjóðlegar hræringar sem tengjast meintri ofveiði á fiskistofnum í heimshöfunum, samspil umhverfis- mála og markaða, Evrópumál og margt annað. „Þetta eru jafn stór mál fyrir fram- tíðina og í raun stærri en þau sem menn hafa verið uppteknastir af hér heima fyrir. Það mun verða til lítils að þrátta um hvernig eigi að skipta meintum gróða af sjávarútvegi hér heima fyrir ef þær hræringar verða í alheimsviðskiptum með sjávarafurðir og okkur íslendingum mistekst að kynna okkar málstað og afla honum stuðnings. Mér finnst mjög miður ef menn sjá ekki út úr umræðunni hér heima og fást ekki til að horfast í augu við þessa mynd," segir Steingrímur. Koma verður fram með raunhæfar tillögur Steingrímur á ekki von á að þegar kemur að kosningum verði mikill munur á áhersluatriðum í sjávarút- vegsmálum milli flokka. „Ég er ekki viss um að þeim sem hæst tala um þessi mál muni takast að útfæra og skýra stefnu sem kjósendur muni eiga auðvelt með að átta sig á. Vandinn er sá að menn hafa talað geysilega hátt og hrópað um ranglæti, galla á fiskveiðistjórnuninni, kvóta- brask og auðsöfnun. Margt má þar til sanns vegar færa að farið hafi úrskeiðis en ég bendi hins vegar á að þeir hinir sömu hafa sáralítið lagt af mörkum til að útfæra raunhæfar tillögur í þeim efnum. Hvernig á að taka á þessum þáttum og hvaða breytingar eru það þá í formi lagafrumvarpa um breyting- ar á lögum um stjórn fiskveiða sem menn ætla að leggja til? Ég tæki því fagnandi ef menn kæmu málunum á skýrari grunn þannig að hægt sé að festa hönd á hvað er á bak við upp- hrópa+nirnar." ORRIIS 20 Klnternational Stórhöfða 44, Reykjavík. Sími 567 4400, Fax 567 4410 Umboðsaðilar INTERNATIONAL PAINTS á íslandi Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með breytingarnar. Skipið er allt málað með INTERNATIONAL skipamálningu frá HÖRPU HF. 34 ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.