Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1955, Side 5

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1955, Side 5
INNGANGSORÐ. Rannsóknum á næríngargildi innlendra matvæla er enn svo skammt á veg komið, að styðjast verður við erlendar næringar- efnatöflur að miklu leyti, er vinna skal úr skýrslum um mat- aræði, semja áætlun um fullgilt fæði eða því um líkt. Víst má hafa mikil not af slíkum töflum og þó einkum við lauslegt mat á viðurværi þjóðarinnar í heild samkvæmt framleiðslu- og verzl- unarskýrslum. En þegar til nánari athugana kemur á daglegri neyzlu manna, reynast hinar erlendu töflur æði gloppóttar sem vonlegt er, því að fjölmargra fæðutegunda, sem hér eru algengar, enda sér- kennilegar fyrir mataræði vort, er þar hvergi getið. Hér kemur og til greina, að nokkur munur getur verið á afurðum, er sama nafni nefnast, eftir upprunastað eða landi. Má stundum rekja það til ólíkra afbrigða sömu tegunda, hvort sem um jarðargróður eða dýr er að ræða, en ólík vaxtar- eða þroskaskilyrði geta og nokkru valdið þar um. Þessi munur eftir löndum hefur raunar verið talinn heldur lítill að jafnaði (10). Þó getur borið út af því, ekki sízt um auka- efnin (vítamín, sölt), eins og töflur ýmissa landa bera með sér, að svo miklu leyti sem ekki er ónákvæmni til að dreifa vegna ónógra rannsókna. Ýmsar tegundir islenzkra matvæla hafa verið efnagreindar með tilliti til orkuefnanna þriggja, hvítu, fitu og kolvetna, og helztu steinefnanna, og er þar helzt að nefna rannsóknir Trausta Ölafssonar (28). Er mikill styrkur að þessum rannsóknum, svo langt sem þær ná. Galli er það þó, að þessar efnagreiningar ná yfirleitt aðeins til örfárra sýnishoma hverrar tegundar, en þetta stendur væntanlega til bóta.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.