Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1955, Blaðsíða 12
10
Tafla I sýnir þessi meðaltöl á ýmsum tímum, en til gleggra
yfirlits og samanburðar eru línuritin á myndum 1—4.
Séu nú afbrigðin athuguð hvert fyrir sig (myndir 1—3) verð-
ur tæplega greint að um reglubundinn mun sé að ræða eftir ár-
um að öðru leyti en því, að veturinn 1945—46 eru mælingagildin
yfirleitt hæst. Má vera, að meira hafi verið í uppskerunni haustið
1945 en hin árin, þó að það komi ekki alls staðar fram á fyrstu
mælingunum, því gætu tilviljunarskekkjur hafa valdið. En
einnig er hugsanlegt, að geymsluskilyrði (t. d. hiti) hafi að ein-
hverju leyti verið önnur þann vetur en hina, þó að því hafi ekki
verið veitt athygli.
Annars sýna línuritin öll, eins og vænta mátti, greinilega lækk-
un frá hausti til vors. Er hún örust fyrstu mánuðina, en verður
svo hægari er á líður.
Lækkunin öll frá upptökudegi mun þó vera meiri en hér kemur
fram, því að nokkrir dagar, hið minnsta, voru liðnir frá upptöku,
er fyrsta mælingin fór fram. Eitt árið (1946—47) hófust mæl-
ingar ekki fyrr en seint í október, en þá er lækkunar að jafnaði
farið að gæta allverulega.
Til gleggra yfirlits eru á 4. mynd sýnd meðaltöl allra afbrigð-
anna 6, er um getur á myndum 1—3, á hverjum þeim tíma, er
mæling fór fram. Með nokkrum undantekningum (veturinn
1945—46) víkja þau svo litið frá boglínunni, að vel mætti líta á
hana sem meðaltalslínu allra áranna að undanskildu hinu fyrsta
(1945—46).*
Samkvæmt þessu má búast við að um 50% af C-vítamíninu
tapist á fyrstu 2 mánuðum geymslutímans, og þó væntanlega
nokkru meira, sé miðað við upptökudag. En á næstu 6 mánuð-
unum eyðist vítamínið svo hægt, að öll lækkunin á þeim tima
nemur ekki nema 30—35%.
*) Séu meðaltölin, sem sýnd eru á 4. mynd, táknuð með logarithmum og
mörkuð á línuritsblað, þannig að einnig sé miðað við logarithma af tíma-
lengd í mánuðum, er auðvelt að draga beina línu, þannig að flest þeirra lendi
á henni eða örskammt utan við. Til slikrar línu — þeirrar er sjónmati sam-
kvæmt gengur næst því að sameina öll meðaltöl þriggja síðustu áranna —
svarar línan á 4. mynd.