Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1955, Blaðsíða 49
ffl. KAFLI. PART III.
ÝMSAR ATHUGANIR
VARÐANDI C-VÍTAMÍNBÚSKAP MANNA.
SOME OBSERVATIONS RELATIVE TO VITAMIN C NUTRITION.
Ýmsar aðferðir hafa verið reyndar til að meta C-vítamínbú-
skap manna, hvort birgðir séu nægilegar eða þurrð yfirvofandi.
Þar með má og fá nokkra vísbendingu um C-vítamínmagn dag-
legrar fæðu, ef um rannsókn á samstæðum hóp manna er að
ræða.
En ekki er því að leyna, að þess háttar rannsóknum hefur oft
verið beitt með minni gagnrýni en skyldi, svo að leitt hefur til
fljótfærnislegra ályktana, enda hafa sumar rannsóknaraðferð-
anna reynzt um of óáreiðanlegar. Svo er til dæmis um hárceða-
prófið, er svo mætti nefna, og stundum er kennt við Göthlin. Er
það gert þannig, að markaður er hringur í olnbogabót og síðan
settur þrýstingur á upphandlegg — á líkan hátt og þegar blóð-
brýstingur er mældur. Þrýstingnum er haldið jöfnum í tiltekinn
tíma og síðan athugað, hvort dílablæðingar sjáist innan hrings-
ins, og þá hve margar. I stað þrýstings hefur stundum verið sett
sog (sogskál) á afmarkaða blettinn. Var það talið merki um
C-vítamínskort, ef blæðingardílar voru fleiri en 6, miðað við að
hringurinn væri 6 cm í þvermál og þrýstingur 50 mm Hg í 15
mínútur. En svo einfalt er þetta þó eigi. Jafnvel á skyrbjúgs-
sjúklingum koma ekki alltaf fram nema örfáir dílar, og hins
vegar geta þeir orðið fjölmargir á fólki, sem er vel alið. Þó að
blæðingadílar kunni að öðru jöfnu að verða fleiri, ef um C-
vítamínskort er að ræða, er það svo margt annað, sem einnig
getur haft áhrif á fjölda þeirra, að þetta próf hefur reynzt
gagnslítið.