Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1955, Page 65
63
TAFLA 21.
Meðaldagsneyzla C-vítamíns á mann.
Average daily consumption of vitamin C per head.
Fæðutegund Foodstuff 1936—1940 1941—1945
C-vftamín, mg C-vítamín, mg
Innlend framleiðsla:
Domestic:
Kartöflur (Potatoesi 12,49 12,73
Rófur (Swedesi 8,92 5,33
Grænmeti, ber og fleira 1,45 1,94
(Vegetables, berries etc.J
Mjólk (Milki 8,09 7,59
Samtals 30,95 27,59
Innflutt:
Imported:
Ávextir (FruitsJ 0,69 2,81
Kartöflur (PotatoesJ 1,96 2,83
Grænmeti (VegetablesJ 0,92 0,97
Samtals 3.57 6,61
Alls (TotalJ SJ/,52 31f,20
Meðalneyzlan taldist sem næst 34 mg á mann á dag bæði ára-
bilin, og mætti því í fljótu bragði virðast, að ekkert hefði skort
á, að C-vítamínþörfinni hefði verið fullnægt.
En á það ber að líta, að neyzlan er mjög ójöfn eftir árstíðum.
Var lauslega áætlað, að á haustin og fram á vetur hefði hún
verið 40—50 mg að meðaltali, en á vorin aðeins um 20 mg og
e. t. v. tæplega það.
Ef meðaltalið að vorinu er aðeins um 20 mg, leiðir af því, að
algengt er að neyzla einstaklinga sé nokkru minni. Og ekki væri
dreifing frá meðaltali óeðlilega mikil, þó að neyzlan færi ósjaldan
niður í 15 mg og stöku sinnum jafnvel niður fyrir 10 mg. Er
þetta í samræmi við það sem manneldisrannsóknirnar 1939—40
bentu til. Þá komust einstöku heimili niður fyrir 10 mg á mann
að meðaltali, er leið á vorið, en flest voru neðan við 20 mg. Að
vísu hefur C-vítamínneyzlan sennilega verið fulllágt metin þá,
vegna ónógra heimilda um C-vítamínmagn nokkurra matvæla,
en tæplega þó svo, að verulegu skakki.
Yfirleitt ætti þó, samkv. þessu, varla að vera hætt við alvar-
legum C-vítamínskorti hér á landi. Má og telja, að árangur af