Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1957, Side 137
135
20. gr.
Fyrirlestrar, æfingar og námskeið eru fyrir skrásetta stúdenta,
en kennara er heimilt að veita öðrum kost á að sækja slíka kennslu,
nema háskólaráð mæli öðruvísi fyrir.
21. gr.
Hver sá, sem staðizt hefur fullnaðarpróf frá íslenzkum skóla, sem
heimild hefur til að brautskrá stúdenta, á rétt á að verða skrásettur
háskólaborgari, gegn því að greiða skrásetningargjald, enda hafi
stúdent ekki gerzt sekur um neina þá óhæfu, sem geri það varhuga-
vert, að dómi háskólaráðs, að veita honum skólavist.
Háskólaráð getur leyft, að skrásettir verði til náms menn, sem
lokið hafa erlendis prófi eða prófum, er tryggja nægan undirbúning
til námsins eigi miður en íslenzkt stúdentspróf.
Heimilt er að setja í reglugerð ákvæði um inntöku stúdenta í ein-
stakar deildir.
Skrásetningargjöld skulu ákveðin í reglugerð.
22. gr.
Ákvæði um heilbrigðisskilyrði í sambandi við skrásetningar há-
skólastúdenta má setja í reglugerð.
Öllum skrásettum stúdentum er skylt að ganga undir heilbrigðis-
rannsóknir eftir því, sem háskólaráð áskilur.
23. gr.
Ákvæði um eftirlit með námsástundun háskólastúdenta má setja
í reglugerð háskólans.
24. gr.
Allir skrásettir stúdentar eru skyldir að gæta velsæmis bæði í
háskólanum og utan hans.
Háskólaráð getur veitt stúdent áminningu eða vikið stúdent úr
skóla um tiltekinn tíma eða að fullu, ef hann hefur gerzt sekur um
brot á lögum og öðrum reglum háskólans eða reynzt sekur um hátt-
semi, sem er ósamboðin háskólaborgara.
Áður en brottrekstur er ráðinn, skal leita umsagnar háskóladeild-
ar stúdents. Einnig skal veita stúdent kost á að svara til saka. Enn
fremur skal leita umsagnar stjórnar í deildarfélagi stúdents, áður
en brottrekstur er ráðinn samkvæmt 2. málsgrein.
Brottrekstur skal þegar í stað tilkynna menntamálaráðuneytinu.
Stúdent er heimilt að skjóta úrskurði háskólaráðs til Hæstaréttar
eftir reglum um kæru í opinberum málum innan 4 vikna frá því,
að honum barst tilkynning um úrskurðinn. Kæra frestar framkvæmd