Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1957, Qupperneq 153
151
ilar beðnir um að veita málinu stuðning. Var málinu fylgt fast eftir
af fulltrúum Stúdentaráðs, sem ræddu bæði við meiri- og minnihluta
fjárveitinganefndar og einstaka þingmenn. Meirihluti fjárveitinga-
nefndar gat ekki fallizt á, að orðið yrði við óskum stúdenta í þessu
efni, og lagði til við Alþingi, að styrkurinn yrði hinn sami og verið
hefði. Ragnhildur Helgadóttir stud. jur. bar þá fram tillögu um það
á þingfundi, að styrkurinn yrði aukinn, svo sem Stúdentaráð hafði
farið fram á í erindi sínu. Tillaga þessi fann ekki náð fyrir augum
meirihluta Alþingis og var felld.
2. Stúdentaráð fór fram á 10.000 kr. styrk frá Háskólaráði, en
hann var á s. 1. ári 7.500 kr. Háskólaráð veitti umbeðinn styrk og á
þakkir skildar fyrir.
Feröaþjónusta stúdenta.
Hinn 1. júní opnaði Stúdentaráð skrifstofu Ferðaþjónustu stúdenta
í herbergi sínu í Háskólanum. Ferðaþjónustan var opin 4 daga í viku
frá kl. 5 til 7. Hún var starfrækt til 1. sept.
Aðdragandi þessarar nýbreytni var sá, að s. 1. vetur gerði S.H.l.
samning við S.S.T.S. (Ferðaþjónustu stúdenta á Norðurlöndum) þess
efnis, að S.H.Í. hefði opna skrifstofu, sem veitti stúdentum upplýs-
ingar um ferðir samtakanna og gerði þeim kleift að notfæra sér þær.
Tilgangur S.S.T.S. er að skipuleggja ódýrar ferðir fyrir stúdenta
og fleira skólafólk landa á milli. Samtök þessi, sem hafa starfað í
nokkur ár, eru þegar orðin mjög öflug og hafa skrifstofur í flestum
löndum Evrópu, svo og í Bandaríkjunum.
Með ágætu samstarfi við ýmsa aðila hefur samtökum þessum tek-
izt að skipuleggja ódýrar ferðir fyrir stúdenta um alla Evrópu og
víðar. Sem dæmi má geta þess, að venjuleg fluggjöld með flugvélum
milli Kaupmannahafnar og Parísar eru 403 danskar kr. og milli
Kmh. og London 437 dr. kr., en þeir, sem ferðast á vegum S.S.T.S.
þurfa aðeins að greiða 190 d. kr. sömu leiðir. Svipuð kjör veitir S.S.
T.S. á öðrum flugleiðum. Auk þess skipuleggur S.S.T.S. hópferðir og
ferðir einstaklinga með jámbrautarlestum og langferðavögnum.
Yfirleitt hefjast ferðir S.S.T.S. frá Höfn og njóta því íslenzkir þátt-
takendur engra fríðinda á leiðinni frá íslandi til Hafnar. Ferða-
þjónustan hafði fullan hug á að bæta úr þessu og leitaði hófanna um
afslátt hjá íslenzku flugfélögunum, en án árangurs. Þá leitaði ferða-
þjónustan snemma sumars til Innflutningsskrifstofunnar til að fá
að selja farmiða í ferðir S.S.T.S. fyrir íslenzkar krónur. Eftir langt
þóf barst svar frá gjaldeyrisyfirvöldunum á þá leið, að sækja yrði
sérstaklega um gjaldeyrisyfirfærslu fyrir farmiða hvers þátttakanda
og yrði hver umsókn tekin til vinsamlegrar athugunar. Reyndi aldrei