Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1957, Síða 154
152
á þessi fögru fyrirheit, þar sem svarið barst rétt áður en Ferða-
þjónustunni var lokað.
Þeir íslenzkir þátttakendur í ferðum S.S.T.S., sem til hefur náðst
eftir heimkomuna, hafa látið vel af ferðum sínum.
Ferðaþjónustunni bárust fjölmargar fyrirspurnir. Margir þeirra,
sem þær báru fram, höfðu hug á að njóta aðstoðar Ferðaþjónust-
unnar næsta ár. Það er ætlun þeirra, sem sáu um Ferðaþjónustu
stúdenta í sumar, að þátttaka íslenzkra námsmanna í ferðum S.S.T.S.
muni aukast á næsta ári. Brýna nauðsyn ber því til að halda þessu
starfi áfram.
Kristmann Eiðsson og Þórir Einarsson veittu Ferðaþjónustunni
forstöðu s. 1. sumar.
Ný lög um Háskóla íslands.
Eins og alkunna er, var ný löggjöf sett um Háskóla íslands á þingi
því, er sat síðast liðinn vetur. Stúdentaráði var gefinn kostur á að
fylgjast vel með gangi mála, og ræddi stjórn ráðsins og einstakir
stúdentar, sem áhuga höfðu á lagasetningu þessari, oftsinnis við
þingmenn. Má fullyrða, að fast hafi verið fylgt á eftir kröfum stúd-
enta, þótt ekki næðu þær allar fram að ganga.
Þeim stúdentum til glöggvunar, sem lítt hafa fylgzt með málinu,
verða hér birtar tvær greinar úr Stúdentablaði, þar sem skilmerki-
lega er greint frá tildrögum málsins, endanlegri afgreiðslu þess og
afstöðu Stúdentaráðs. Fyrri greinin birtist 12. apríl, en hin síðari
17. júní 1957.
Frumvarp til nýrra háskólalaga.
Fyrir skömmu var lagt fyrir Alþingi frumvarp til nýrra háskóla-
laga. Hefur undirbúningur þessa frumvarps staðið alllengi. Stúdenta-
ráð fékk á sínum tíma uppkast undirbúningsnefndarinnar sent og
átti þess kost að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við hana.
Nefndin gekk nokkuð til móts við tillögur ráðsins, en þó öllu
skemur en ráðið hafði talið sig hafa ástæðu til að vona.
Verða hér nú rakin helztu atriði álitsgerðar stúdentaráðs og þess
jafnframt getið, að hve miklu leyti komið var til móts við þær í
frumvarpinu. Einkum voru það tvö atriði, sem ráðið fjallaði um;
þ. e. stjórn háskólans og akademiskt frelsi.
I. Stjórn háskólans.
Stúdentaráð lítur svo á, að sjálfstjórn háskólans sé æskileg og
gagnleg. Ráðið vill jafnframt minna á, að annað aðalhlutverk há-
skólans er að halda uppi kennslu fyrir stúdenta. Til úrlausnar skóla-