Dvöl - 01.01.1938, Síða 46
40
D V ö L
ar blóðug styrjöld milli þeirra og
rauða hersins. Rússland var þá
þegar, er innrás innrásarherj-
anna byrjaði undir forustu Den-
ikin og Koltschak, máttvana eft-
ir hina hroðalegu heimsstyrjöld.
Ofan á allt þetta bættist nú upp-
skerubrestur og gaus upp ógur-
leg hungursneyð í landinu, eink-
um í Volga- og Ukraine-héruðum.
Nansen sá, að þarna myndu milj-
ónir manna deyja bjargarlausar úr
sulti, ef ekkert yrði að gert. Hann
fór til Bandaríkjanna og átti við-
ræður við Hoover, síðar forseta,
en hann var þá matvæla úthlutun-
arstjóri í Bandaríkjunum og
stjórnaði hjálpinni til viðreisnar
Belgíu. Hét hann á Hoover að
láta til skarar skríða og hjálpa
þessu fólki á svipaðan hátt og
Bandaríkjamenn gerðu þá við í-
búa Belgíu. Bandar.íkjastjórn féllst
á að veita aðstoð með því skil-
yrði, að allur ófriður í Rússlandi
félli niður. En Denikin og Kolt-
schak voru þá í framsókn og neit-
uðu því algerlega. Þetta var 1921.
Nansen fer til Qenf og fær 48
Rauðakrossfélög og fulltrúa 12
ríkisstjórna til að fallast á að veita
þessu máli lið. Síðan fer hann
til Moskva og gerir samning um
það við Titsjerin, þáverandi utan-
ríkismálafulltrúa Sovét-Rússlands,
hvernig hjálpseminni skuli hagað.
Sá samningur var undirritaður 27.
ágúst 1921. í samningi þessum
voru settar tryggingar fyrir því
að allt fé og öll aðstoð kæmi ein-
ungis hinu bágstadda fólki að not-
um. En á því var mikil tortryggni
á Vesturlöndum, að Nansen væri
að afla nauðsynja fyrir rauða her-
inn.
Með gögn þessi fór Nansen til
Genf, og bað um 5 milj. sterl.pd.
alþjóðalán til hjálpar á hungur-
svæðunum. Því var neitað. En
Nansen lét ekki hugfallast. Hann
ferðaðist úr einni höfuðborg í
aðra og flutti fyrirlestra. Hann
vakti nætur og daga. Hann setti
sig í samband við öll félög,
er hann áleit geta komið að liði.
Honum tókst, þrátt fyrir alla tor-
tryggni, að koma því til leiðar,
að Rauðakrossfélögin og einstak-
ir aðilar, lögðu fram svo mikið fé,
að hægt var að fæða og klæða
eina miljón og 600 þúsund
manns á hallærissvæðunum við
Volga og í Suður-Ukrainu. Hann
fór til Bandaríkjanna, ferðaðist
borg úr borg, talaði, ákallaði,
grátbændi þúsundir manna, sat á
endalausum ráðstefnum við
stjórnmálamenn og yfirvöld, og
hætti ekki fyrr, en hann hafði
stappað upp úr jörðunni fé til
að fæða 10 miljónir manna í 11
mánuði. Setti í gang allt úthlut-
unarstarfið, skipulagði öll kaup og
alla flutninga. Og á meðan skrif-
aði hann eina af merkilegustu
bókum sínum: „The Peace and
Russia", þar sem hann rífur
niður allar blekkingarnar um
ástand Sovét-Rússlands, hag þess
og stefnumið, og hreinsar rúss-