Dvöl - 01.01.1940, Page 81
D VÖL
75
Stine fyrstur manna til þess að búa
til TNT-sprengiefnið, sem mjög er
notað í ófriði og er sterkara en
öynamit.
Eftir tilmælum Stine, settu Du
Pont verksmiðjurnar upp almenna
rannsóknarstofu árið 1928. Fjöldi
vísindamanna starfar við stofnun
þessa og er Stine forstjóri efna-
fræðideildarinnar. Margar amer-
ískar stórverksmiðjur hafa sett á
fót svipaðar stofnanir, svo sem
General Motors, General Electric,
Ford o. fl., og hafa vísindamenn
þeir, er þar vinna, algjörlega frjáls-
ar hendur til hverskonar rann-
sókna og tilrauna hver í sinni grein,
en verksmiðjurnar hafa eignarrétt
á uppfyndningunum. Stofnanir
þessar hafa kostað margar milj-
ónir dollara, en þar hafa líka verið
gerðar ýmsar uppfyndingar, sem
tæplega verða metnar til fjár.
Nylon hefir ekki orðið til af
hendingu, sem þó er ekki óalgengt
um ýmsa merka hluti. Að baki
þessarar framleiðslu liggur mjög
löng og hávísindaleg starfsemi. í
fyrstu var reynt að framleiða efni,
sem hefði svipaða eiginleika og
gúmmí, en eiginleikar efnanna
óyggjast meðal annars á samsetn-
ingu „mólekúlanna", sem í þeim
eru. í vatnsmólekúl eru þrjú atom
eða eindir; tvö vetnisatom og eitt
súrefnisatom. Vatnsmólekúlin eru
Því bæði lítil og létt. f gúmmí
inynda atomin hins vegar langar
keðjur. Gúmmí mólekúl er því
hijög ólíkt vatnsmólekúl. Nylon-
SjSfaldnr mis§kilningnr
1. Að hagnaður eins byggist á
eyðileggingu annars.
2. Að það, sem einn getur ekki
framkvæmt, sé og annars ofurefli.
3. Að láta persónulega smá-
munasemi hefta framgang mikil-
vægra mála.
4. Að láta það á sig fá, sem ekki
verður breytt né lagfært.
5. Að þröngva kenningum sínum
og lífsháttum upp á aðra.
6. Að temja sér ekki lestur góðra
bóka.
7. Að fara ekki sparsamlega með
fé sitt.
—Uplift,—
mólekúl eru hins vegar mjög lík
gúmmímólekúlum að byggingu,
þótt efnasamsetningin sé önnur.
Efni og efnahlutföll Nylon eru
svipuð og í silki, kolefni, vetni,
súrefni og köfnunarefni.
Du Pont eru elztu og merkustu
efnasmiðjur Bandaríkjanna og þó
víðar væri leitað. Höfuðframleiðsla
þeirra eru alls konar sprengiefni og
litarefni. Nú bætist Nylon við.
Framleiðendurnir eru varfærnir í
umsögnum sínum, en kunnáttu-
menn telja, að Nylon-sokkar muni
hafa tvöfalda endingu þess, sem nú
er traustast í þeirri framleiðslu.