Valsblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 5
ÁRSSKÝRSLA AÐALSTJÓRNAR VALS 1991
IMORG HORN AÐ LITA
A AFMÆLISARI
Aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Vals 1991-1992 ásamt formönnum deilda. Aftari röð frá
vinstri: Guðbjörg B. Petersen, Dýri Guðmundsson, gjaldkeri, Ragnar Ragnarsson,-
ritari, Lárus Ögmundsson, Sigríður Yngvadóttir, framkvæmdastjóri Vals. Fremri röð
frá vinstri: Lárus Blöndal, formaður körfuknattleiksdeildar, Guðmundur Kjartansson,
formaður knattspyrnudeildar, Jón G. Zoéga, formaður Vals, Halldór Einarsson, vara-
formaður, Bjarni Akason, formaður handknattleiksdeildar.
Aðalfundur Vals var haldinn 21. mars
1991. A honum voru eftirtaldir kjörnir til
stjórnarsetu fyrir stjórnarárið 1991-1992:
Jón Gunnar Zoega, formaður, Halldór
Einarsson, Ragnar Ragnarsson, Guð-
björg B. Petersen, Lárus Ögmundsson og
Dýri Guðmundsson. Þeir sem gengu úr
stjórn voru Sigurður Lárus Hólm, Þor-
steinn Haraldsson og Friðjón Friðjóns-
son.
Bókaðir fundir fráfarandi aðalstjórnar
voru 34. Á fyrrgreindum fundi voru for-
menn íþróttadeilda einnig kjörnir. Þeir
eru Guðmundur Kjartansson fyrir knatt-
spyrnuna, Bjarni Ákason fyrir handbolt-
ann og Lárus Blöndal fyrir körfuboltann.
Á fyrsta fundi nýkjörinnar aðalstjórnar
var eftirfarandi verkaskipting ákveðin:
Halldór Einarsson var kjörinn varafor-
maður, Ragnar Ragnarsson, ritari og
Dýri Guðmundsson, gjaldkeri.
Á vegum stjórnarinnar starfa fjórar
nefndir. Þær eru: VERKFRÆÐI-
NEFND, sem hefur með fagmál á
nýbyggingasviðinu að gera. Hana skipa:
Guðmundur Þorbjörnsson, formaður,
Kristján Ásgeirsson, Oddur Hjaltason og
Nikulás Úlfar Másson.
VALLARNEFND, sem hefur umsjón
með viðhaldi vallarsvæða. í henni eiga
sæti Sigtryggur Jónsson, formaður,
Harry Sampsted. Gunnar Svavarsson og
Sverrir Traustason.
MINJANEFND, en á hennar borði er
umsjón með munum og minjum félags-
ins. Hana skipa Jafet S. Ólafsson, for-
maður, Gísli Þ. Sigurðsson, Guðmundur
Ingimundarson og Þórður Þorkelsson.
AFMÆLISNEFND, sem skal hafa
yfirumsjón með þeim uppákomum sem
til er stofnað vegna 80 ára afmælis félags-
ins á þessu ári. Afmælisnefndina skipa:
Guðbjörg B. Petersen, formaður, Hákon
B. Sigurjónsson, Lárus Valberg, Svan-
björn Thoroddsen, Björn Zoega og Örn
Ingólfsson.
Félagið hefur nokkra starfsmenn á sín-
um snærum. Fyrstan skal nefna fram-
kvæmdastjóra félagsins, Sigríði Yngva-
dóttur, en hún sér um daglegan rekstur
og skrifstofuhald aðalstjórnar. Húsvörð-
ur félagsins er Sverrir Traustason og bað-
og klefaverðir eru Baldur Þ. Bjarnason,
Elín Elísabet Baldursdóttir og Ása Karls-
dóttir.
AFMÆLISÁR
Starf félagsins á þessu ári hefur að
miklu leyti tekið mið af því að um afmæl-
isár er að ræða. Fjölmargt hefur verið
gert til þess að minnast afmælisins og er
óhætt að fullyrða að vel hafi tekist til í
öllum tilfellum. Helstu afmælisuppákom-
urnar eru þessar:
Á nýársdag mættu allar stjórnir félags-
ins til móttöku að Hlíðarenda. Haldin var
Þrettándabrenna á malarvellinum að
undangenginni blysför frá Háteigskirkju.
Þátttaka var með eindæmum góð og var
þetta vel heppnaður dagur að mati stjórn-
ar.
Haldin voru sérstök afmælismót í þeim
greinum sem stundaðar eru í Val. Voru
þau í umsjón viðkomandi íþróttadeilda.
Afmælisdagsins sjálfs, 11. maí, var
minnst með nánast samfelldri dagskrá frá
átta að morgni og fram á rauða nótt. Dag-
urinn hófst með því að stjórnir félagsins,
fjórar að tölu drógu fána að húni í fjórum
fánaborgum sem hafði verið komið upp
víðsvegar um Hlíðarendasvæðið. Að því
loknu var minningarstund um séra Frið-
rik og var lagður blómakrans við styttu
hans. Um klukkan tíu var síðan haldinn
hátíðarfundur allra stjórna, nefnda og
fulltrúaráðs félagsins. Var á þeim fundi
5