Valsblaðið - 01.05.1991, Qupperneq 6
Aðalstjórn og stjórnir allra deilda í Val 1991-1992.
Áhöfnin að Hlíðarenda sem sér um dag-
legan rekstur félagsins og starfsemi þess.
Sigríður Yngvadóttir, framkvœmda-
stjóri, Baldur B. Bjarnason, Ása Karls-
dóttir, Elín Elísabet Baldursdóttir og
Sverrir Traustason, yfirumsjónarmaður
svæðis og liúsa að Hliðarenda.
staðfest aðalskipulag Hlíðarendasvæðis-
ins og samþykkt að gefa steindan glugga,
gerðan af Leifi Breiðfjörð, til kapellu
séra Friðriks.
Síðdegis var opnuð sögusýning í Vals-
heimilinu á vegum minjanefndar. Minja-
nefnd hafði staðið fyrir fjársöfnun til
kaupa á glerskápum til vörslu á verð-
launagripum félagsins og voru þeir til
sýnis, ásamt gömlum íþróttabúningum og
öðru er tengist sögu félagsins. Síðan var
drukkið hátíðarkaffi. Um kvöldið var svo
hátíðarkvöldverður að Hótel Sögu. Auk
Valsmanna var til hans boðið fulltrúum
frá öðrum íþróttafélögum, sérsambönd-
um, ríki og borg og frá systurfélögum
Vals — þ.e. KFUM og Karlakórnum
Þröstum. Hátt á þriðja hundrað manns
mættu á hátíðina. Veislustjóri var Friðrik
Sophusson og fórst honum það afskap-
lega vel úr hendi. Margir færðu félaginu
gjafir í tilefni afmælisins og er það mál
manna að veislan hafi tekist með ein-
dæmum vel.
I ágústmánuði heimsótti hópur Vals-
manna úr 4. og 5. flokki Vatnaskóg til að
styrkja þau bönd sem eru rnilli Vals og
KFUM. Lagt var af stað eftir hádegi og
hófst dagskráin upp frá því með því að
keppt var í fótbolta. Milli leikja fóru
menn í skoðunarferðir um svæðið og síð-
an voru grillaðar pylsur og hamborgarar
og að sjálfsögðu endaði svo dagurinn á
kvöldvöku. Komið var síðan heim klukk-
an 22.30. Var þessi ferð þeirn ógleyman-
leg sem hana fóru.
FÉLAGSMENN HEIÐRAÐIR
FYRIR VEL UNNIN STÖRF
Tveir félagsmenn hafa verið tilnefndir
sem heiðursfélagar Vals á þessu ári. Þeir
eru Jóhannes Bergsteinsson og Jón Ei-
ríksson. Auk þeirra eru Úlfar Þórðarson
og Sigurður Ólafsson heiðursfélagar
Vals.
Valsorðuna, æðstu heiðursveitingu fé-
lagsins fyrir óbreytta félagsmenn, hlutu á
árinu þeir Bjarni Bjarnason, Bergur
Guðnason, Pétur Sveinbjarnarson, Sig-
urður Lárus Hólm og Þórður Sigurðsson.
Gullmerki félagsins hlutu 35 félags-
menn og silfurmerki hlutu 70 félags-
menn.
FRAMKVÆMDIR Á
FÉLAGSSVÆÐI
Á þessu ári var lokið við frágang á
útisvæði, s.s. gangstétta- og torflagningu
Séra Friðriks-kapella ásamt styttu af
æskulýðsleiðtoganum.
og gerð girðinga. Er nú svo komið að
fullyrða má að Valur geti státað af einu
allra fegursta félagssvæði á íslandi og
skulum við vera stolt af því.
Varanleg áhorfendastúka við knatt-
spyrnuvöllinn var reist á árinu.
Kapella séra Friðriks var vígð á afmæl-
isdegi hans 25. maí. í tengslum við vígsl-
una var opnuð sýning á ljósmyndum og
munum sem tengjast lífi og starfi séra
Friðriks.
Frágangur á nýju félagsheimili er enn-
þá til umræðu í stjórninni og er verið að
skoða tillögur fagmanna þar að lútandi.
Tengist nýting á því húsnæði einnig því
6