Valsblaðið - 01.05.1991, Síða 20
ÁRSSKÝRSLA KÖRFUKNATTLEIKSDEILDAR VALS 1991
ÓLÁNIÐ ELTI VALSLIÐIÐ
íslandsmeistarar Vals í 8. flokki í körfubolta árið 1990.
Á aðalfundi félagsins í apríl síðastliðn-
um var Lárus Blöndal kosinn formaður
körfuknattleiksdeildar Vals og tók hann
við af Jóni Steingrímssyni, sem gegnt
hafði formennsku í tvö ár. Á aðalfundi
deildarinnar í maí síðastliðnum voru eft-
irtalir menn kjörnir í stjórn:
Hörður Gunnarsson, varaformaður
Óttar Svavarsson, ritari
Sigurður Haraldsson, gjaldkeri
Einar Ólafsson
Björn Zoéga
Rögnvaldur Hreiðarsson
MEISTARAFLOKKUR
Árangur meistaraflokks á liðnu keppn-
istímabili olli nokkrum vonbrigðum.
Menn höfðu bundið nokkrar vonir við
liðið, ekki síst vegna þess að Magnús
Matthíasson var kominn heim frá námi í
Bandaríkjunum — en hann er einn al-
besti leikmaður landsins. Ráðinn var
þjálfari, Vladimir Obukow, sem hefur
þjálfað bæði landslið og unglingalandslið
Sovétríkjanna. Bandaríski leikmaðurinn
David Grisson var ráðinn til að spila með
liðinu en skemmst er frá því að segja að
ólánið elti Valsliðið. Mikið var um
meiðsli meðal leikmanna og spiluðu því
flestir undir getu. Petta leiddi til þess að
Valsmenn komust ekki í úrslitakeppnina
annað árið í röð.
Það var þó nokkur sárabót að Magnús
Matthíasson var kjörinn besti leikmaður-
inn í úrvalsdeildinni og jafnframt besti
nýliðinn í deildinni. Báðir titlarnir voru
verðskuldaðir.
Lárus Blöndal, formaður körfuknatt-
leiksdeildar Vals.
Valsliðið hefur styrkst nokkuð fyrir
yfirstandandi keppnistímabil. Tómas
Holton er kominn aftur í raðir Vals-
manna eftir tveggja ára dvöl í Ungverja-
landi og hefur tekið að sér að þjálfa meist-
araflokk í vetur. Hann var einn besti leik-
maður Vals áður en hann fór utan og er
það mikið lán að hann skuli nú spila á ný
með Val. Bandaríski leikmaðurinn,
Frank Booker, var ráðinn til að spila með
liðinu en hann spilaði áður með IR og
varð einn stigahæsti leikmaður úrvals-
deildarinnar á síðasta keppnistímabili.
Veturinn fór vel af stað og unnu Vals-
menn Reykjavíkurmótið. Er það gleði-
efni að geta fært bikar heim að Hlíðar-
enda á afmælisárinu. Valsliðinu er spáð
ágætu gengi á íslandsmótinu og bikar-
keppninni.
UN GLIN G AST ARFIÐ
Unglingastarf deildarinnar hefur geng-
ið ágætlega undanfarin ár. Reynt hefur
verið að ráða hæfa þjálfara fyrir yngri
flokka félagsins og hefur það tekist með
ágætum. Aðbúnaður yngri flokkanna er
góður. Fyrir síðasta keppnistímabil var
Sigvaldi Ingimundarson ráðinn þjálfari
fyrir báða minni-bolta flokkana og 7.
flokk. David Grisson þjálfaði 8.- og 9.
flokk, Svali Björgvinsson 10. flokk og
loks þjálfaði Vladimir Obukow drengja-
og unglingaflokk.
Unglingaflokkarnir unnu fjóra titla á
Reykjavíkurmótinu og á Islandsmótinu
Magnús Matthíasson, einn besti körfu-
boltamaður landsins.
náði 10. flokkur lengst af flokkum Vals og
lenti í öðru sæti. Fyrir yfirstandandi
keppnistímabil var Sigvaldi endurráðinn
til að þjálfa báða minni-bolta flokkana og
Ari Gunnarsson er þjálfari 7,- og 8.
flokks. Tómas Holton þjálfar 9.-, 10.
flokk og unglingaflokkinn, jafnframt því
sem hann þjálfar meistaraflokk. Frank
Booker þjálfar drengjaflokkinn.
20