Valsblaðið - 01.05.1991, Page 21

Valsblaðið - 01.05.1991, Page 21
Þegar þetta er skrifað hefur 8. flokkur þegar unnið Reykjavíkurmótið í sínum flokki en Reykjavíkurmótinu er ekki lok- ið hjá öðrum flokkum. Yngri flokkum Vals hefur þó gengið vel það sem af er mótinu og má búast við nokkrum titlum í vetur. Stofnaður hefur verið stúlknaflokkur í körfuknattleiksdeild Vals. Það eru nokkrar ungar Valsstúlkur á aldrinum 12 til 16 ára sem mynda kjarnann í þessum nýja flokki og hefur starfið farið vel af stað. Stúlkur hafa ekki getað stundað körfuknattleik hjá Val fram til þessa og var löngu orðið tímabært að stofna stúlknaflokk. Anna Björg Bjarnadóttir hefur verið ráðin til þess að þjálfa stúlkurnar í vetur og hefur þessu framtaki körfuknattleiks- deildar Vals verið fagnað. Anna Björg spilar með kvennalandsliðinu í körfu- knattleik. ANNAÐ Ymis verkefni hefur deildin unnið fyrir utan þjálfun keppnisflokka. Fyrst má telja Nike-mótið, sem haldið var í sam- vinnu við Austurbakka hf., fyrir grunn- skóladrengi á höfuðborgarsvæðinu. í vor tóku um það bil 30 strákar þátt í mótinu. Að venju var mótið undir öruggri stjórn þeirra Harðar Gunnarssonar og Sigvalda Ingimundarsonar. Frank Booker, erlendi leikmaðurinn hjá Val. Árleg firmakeppni var haldin og henni stjórnaði Rögnvaldur Hreiðarsson. Tókst honum vel upp og mæltist mótið svo vel fyrir að það stendur til að halda aðra firmakeppni á vetrinum. Leikið var í riðlum og síðan var úrslitakeppni. Sökk- ull hf. vann spennandi úrslitaleik við lög- menn Haraldar Blöndal. Afmælismót Vals í körfuknattleik var Stjórn körfuknattleiksdeildar Vals 1991. Fyrir aftan eru Björn Zoega (t.v.) og Rögnvaldur Hreiðarsson. Sitjandi frá vinstri: Hörður Gunnarsson, varafor- maður, Lárus Blöndal, formaður, Sig- urður Haraldsson, gjaldkeri. Á myndina vantar Einar Ólafsson og Óttar Sveins- son. haldið helgina 30. ágúst til 1. september og tóku átta úrvalsdeildarlið þátt í mót- inu. Þetta var sterkt mót og fyrsta alvöru mót vetrarins. Fjöldi fólks kom að Hlíð- arenda þessa helgi og fylgdist með fjörug- um körfubolta. Keflvíkingar sigruðu á mótinu eftir framlengdan leik við Njarð- víkinga. Valsmenn lentu í 3. sæti. Eins og sjá má hefur starf körfuknatt- leiksdeildarinnar verið fjölbreytt og þróttmikið. Starfið hefur farið vel af stað og gera menn sér vonir um gott gengi Vals á körfuknattleiksvellinum í vetur. Fyrir hönd stjórnar körfuknattleiksdeildar Vals, Lárus Blöndal Einar Ólafsson í leik með Val. 21

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.