Valsblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 26
5. flokkur Vals ásamt Friðriki Sparisjóðsstjóra á Dalvík.
í VITLAUSUM SVEFNPOKA!
5. flokkur karla í knattspyrnu
á ferð um Norðurland
Egill Arnarsson í morgunteygjum.
Við hefjum frásögnina á fögrum sumar-
morgni miðvikudaginn 3.júlí 1991. Á
Valssvæðinu var samankominn fönguleg-
ur hópur skipaður þrjátíu og tveimur leik-
mönnum og vel mannaðri fararstjórn.
Ástæða þessa mannfagnaðar var sú að 5.
flokkur karla í knattspyrnu var að leggja
upp í ferðalag. Ferðinni var heitið norður
til Akureyrar til þáttöku í Esso-móti
þeirra norðanmanna og síðan skyldu
fleiri staðir heimsóttir og skoðaðir.
Á einhverri æfingunni stuttu áður en
lagt var af stað hafði undirritaður asnast
til að segja að enginn færi norður að spila
fótbolta og sjá allar sætu stelpurnar nema
að láta snoðklippa sig. Og viti menn sex
strákar mættu með stuttbuxur og skó,
sokka og peysur og afskaplega lítið hár.
Óneitanlega varð ég upp með mér að sjá
að einhver færi eftir því sem ég segði en
síðar í ferðinni átti ég eftir að sjá svolítið
eftir þessu en nóg um það að sinni.
Ferðin til höfuðstaðar Norðurlands
gekk vel og greiðlega og náðum við í tæka
tíð í kvöldhressinguna í Lundaskóla þar
sem gist var meðan á mótinu stóð. Við
komum öllum okkar pinklum fyrir í
huggulegri skólastofu áður en setningar-
hátíð hófst þar sem meðal annars ungar
þokkadísir sýndu leikfimi við mikla hrifn-
ingu sunnlenskra aðdáenda. Spenningur-
inn í hópnum var mikill og því tók það
langan tíma að koma liðinu í háttinn
fyrsta kvöldið. Ekki bætti það úr skák að
hitinn var ógurlegur og fór vaxandi eftir
því sem á leið.
ÁRANGUR LIÐSINS
Mótið stóð yfir í þrjá daga. Keppt var í
liðum A, B og C. Til að gera langa sögu
stutta náði B-liðið bestum árangri og
hafnaði í fimmta sæti af tuttugu liðum.
B-liðið tapaði fyrsta leiknum gegn gest-
gjöfum KA 0-1 en sigraði svo í þeitn tíu
leikjum sem liðið lék til viðbótar í ferð-
inni, ekki slæmt það. A-liðið hafði ekki
heppnina með sér, lenti í tólfta sæti eftir
að hafa endað í efsta sæti í sínum riðli
ásamt tveinrur öðrum liðum en haft óhag-
stæðari markatölu. Svipaða sögu er að
segja af C-liðinu. Pað hafnaði í tíunda
sæti en tapaði samt ekki nema einum leik
af sex. Það sem hins vegar skipti mestu
máli var að strákarnir fengu hrós frá þjálf-
urum annarra liða fyrir að leika skemmti-
lega knattspyrnu.
Eins og áður sagði var heitt á Akureyri
þessa daga. I raun var einmuna veður-
blíða og þá kemur að því sem ég minntist
á áður um snoðklippingu sexmenning-
anna. Eins og í suðrænum löndum þurfti
að gera ráðstafanir yfir heitasta tíma
dagsins og hjá okkur báru strákarnir höf-
uðfatnað til að brenna ekki á skallanum.
í lok hvers dags voru það þreyttir og
ánægðir knattspyrnumenn sem lögðust til
svefns og söfnuðu orku fyrir átök næsta
dags. Eina nóttina var mjög heitt í her-
bergjunum þrátt fyrir að allar hurðir
stæðu opnar og fararstjórar gengju um
veifandi handklæðum í allar áttir. Einn
ónefndur leikmaður þurfti á miðri nóttu
fram á snyrtinguna að pissa. Á leiðinni til
baka misreiknaði hann sig eilítið og fór í
stofuna við hliðina á okkar þar sem Kefl-
víkingar héldu til. I mestu makindum
gekk hann út í „sitt“ liorn og tók svefn-
pokann af næsta manni og hélt áfram að
hvílast. Það var svo undir morgunn að
drengurinn vaknaði á undan öðrum, átt-
aði sig á hinu ókunnuga umhverfi en þótti
það lítið mál, skilaði svenpokanum til
þess sem svaf í keng við hliðina á honum
og hélt í næstu stofu. Þetta atvik skýrir
kannski andann á svona móti. Þótt kapp-
ið sé mikið innanvallar og leikmönnum
oft heitt í hamsi eru allir bræður utanvall-
ar.
Lokahóf mótsins fór fram í íþróttahöll-
inni og komu þar fram landsfrægir
skemmtikraftar eins og Spaugstofan og
þjálfarar liðanna!
Ekki má segja skilið við dvölina á Ak-
ureyri án þess að minnast á stjörnuleik-
inn. Þar áttust við úrvalslið leikmanna 5.
flokks Vals og snillingarnir úr fararstjórn-
inni. Leiknum lyktaði með 6-6 jafntefli
eftir framlengingu. Nóg um það!
HALDIÐ TIL DALVÍKUR
Á sunnudagsmorgninum þann 7. júlí
kvöddum við höfuðstaðinn og heilsuðum
Dalvík. Þar voru leiknir nokkrir leikir og
að þeim loknum þáðar pylsur af grilli og
stuttermabolir i boði sparisjóðsstjórans á
staðnum sem er annálaður fyrir að vera
höfðingi heim að sækja. Strákunum þótti
26