Valsblaðið - 01.05.1991, Page 29
1 ,1
-- V W.
um liðum. Okkur er til dæmis ekki bann-
uð að leika ó þeim fótboltaskóm sem okk-
ur henta og við fóum að vera ó grasvöllum
félagsins jafnmikið og aðrir flokkar fé-
lagsins — þannig að mismunun ó sér ekki
stað hjð Val hvað þetta varðar.
— Tii okkar hafa einnig róðist ágætir
þjólfarar og við höfum ekki undan þeim
að kvarta.“
- Hver er mesti heiðurinn á ferlinum?
.,Pað hefur náttúrlega verið gaman að
vinna alla þá titla sem við höfum unnið
til. Einnig sitja mér ofarlega í huga þau
einstaklingsverðlaun og viðurkenningar
sem ég hef unnið til.“
— Hver er eftirminnilegasti leikur
sem þú hefur ieikið?
„Ætli það sé ekki leikur sem við lékum
árið 1983 gegn Breiðabiiki. Blikastelp-
urnar hofðu þá ekki tapað leik í tvö eða
þrjú ár, en við unnum þær með einu
marki gegn engu og mér tókst að gera
sigurmarkið. Ætli það sé ekki þess vegna
sem að leikurinn er mér svona ofarlega í
huga?
Bikarúrslitaleikirnir sem ég hef leikið í
eru mér einnig mjog minnisstæðir. Ég
man sérstaklega eftirbikarkeppninni árið
1986, en í þeirri bikarkeppni unnum við
alla okkar leiki með einu marki og bárum
því sigurorð af andstæðingum okkar með
minnsta hugsanlega mun í öllum leikjun-
um.“
— Nú hefurðu skorað mörg falleg
mörk beint úr aukaspyrnum. Hefurðu
lagt einhverja áherslu á að æfa auka-
spyrnunar eða ertu aukaspyrnusérfræð-
ingur?
„Nei, ég er alls enginn aukaspyrnusér-
fræðingur. Ætli þetta sé ekki meira
heppni eða slakir markmenn sem gera
það að verkum að ég skora úr aukaspyrn-
um. frekar en að ég sé einhver sérfræð-
ingur í þeint? Mér telst til að ég hafi skor-
að á bilinu tuttugu til þrjátíu mörk úr
aukaspyrnum en ég þakka það ekki þrot-
lausum aukaspyrnuæfingum."
— Er kvennaknattspyrnu almennt
gert nægilega hátt undir höfði?
„Ég veit það ekki. Mér finnst mikil
uppsveifla hafa átt sér stað á síðari árum.
Sumir fjölmiðlarnir fylgjast t.d. vel með
því sem er að gerast í kvennaknattspyrn-
unni og sum blöðin skrifa til að mynda
reglulega um deildarkeppnir kvenna-
knattspyrnunnar. Einnig finnst mér Rík-
issjónvarpið hafa staðið sig mjög vel. T.d.
sýndi það töluvert frá kvennaknattspyrn-
unni síðastliðið sumar — meira en
nokkru sinni áður.
29