Valsblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 30
Guðrún í góðum félagsskap gamalla Valsbúninga.
„MER FINNST
GOTT AÐ
GRÍPA í
GÓÐA BÓK“
Á ferðalagi með landsliðinu sem hver annar farangur — eða hvað?
Almenningsálit og umfjöllun um
kvennknattspyrnuna hefur breyst tölu-
vert frá því að ég byrjaði að leika í 1. deild
fyrir 8 árum. Þá var kvennaknattspyrn-
unni mjög lítill gaumur gefinn og tel ég
því þá þróun sem átt hefur sér stað af hinu
góða.“
— Er mikil áhorfendasókn á leiki ykk-
ar?
„Nei, það væri synd að segja að það sé
vel mætt á leiki hjá okkur, ef frá eru taldir
stórleikir, svo sem úrslitaleikir. Það er
hins vegar gaman að fylgjast með því sem
á sér stað úti á landi en þar sameinast
bæjarbúar oft um kvennaknattspyrnuna
og styðja vel við bakið á sínum félögum.
Þegar við lékum t.d. á Akranesi og Nes-
kaupstað síðastliðið sumar voru á milli
tvö- og þrjúhundruð manns á leikjunum,
m.a.s. þó svo að selt væri inn á leikina.
Það gengur hins vegar ekki að selja inn á
leiki hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu.“
— Hrindir það áhorfendum frá að
þurfa að borga inn á leiki hjá ykkur?
„Ég hugsa að þeim fáu áhorfendum
sem mæta á leikina hjá okkur myndi ör-
ugglega fækka ef þeim yrði gert að borga
aðgangseyri.“
— Telurðu íslenska kvennaknatt-
spyrnu vera á réttri leið?
„Já, það held ég tvímælalaust. Núna er
t.d. verið að koma af stað kvennalands-
liði að nýju, en það hefur legið niðri frá
því 1987. Þar er stefnt að því að taka þátt í
Evrópukeppni landsliða, sem fram fer
næsta vor. Þetta tel ég bera vott þess að
kvennaknattspyrnan sé á uppleið hér á
landi.
Ég er þó ekkert viss um knattspyrnan
sem slík hafi batnað mikið, þó að eflaust
hafi hún eitthvað lagast. Það sem er þó
breytt er að nú eru mun fleiri frambæri-
legir leikmenn heldur en áður.“
— Sérðu mikinn efnivið í yngri flokk-
um Vals í kvennafótboltanum?
„Ég hef nú ekki fylgst það náið með því
sem þar er að gerast að ég sé dómbær á
það. Ég veit þó að iðkendunum og flokk-
unum hefur fjölgað og mun meira aðhald
er að uppbyggingarstarfinu núna en áður
hefur verið, þannig að það hlýtur að eiga
eftir að skila sér einhvern tímann í góðum
fótboltastelpum."
— Hefurðu hugsað þér að halda lengi
áfram í fótboltanum?
„Maður veit aldrei hvað gerist. Ég hef
ekkert verið að leggja nákvæmar línur
fyrir komandi ár og t.d. ákveðið að 27 ára
skuli égsegja skilið við fótboltann. Það er
svo margt sem getur spilað inn í það
hversu lengi maður heldur áfram svo sem
meiðsli og fleira í þeim dúr. Ég hef þó
gaman af því að vera í þessu eins og er og
er ekkert á þeim buxunum að hætta.
Núna situr að vísu þreyta í manni eftir
nýafstaðið keppnistímabil, en ég held að
sú þreyta fari lönd og leið þegar fer að
vora að nýju.“
— Hvað gerirðu utan fótboltans?
„Það fer megnið af mínum tíma í skól-
ann. Það fylgir því mikil vinna að vera í
Háskólanum, þannig að á veturna sit ég
flestum stundum við lestur námsbóka.“
— Hvað með áhugamál utan fótbolt-
ans?
„Það má eiginlega segja að skólinn sé
mitt aðaláhugamál. Einnig hef ég mjög
gaman af því að fara í ferðalög, borða
góðan mat og drekka góð vín og ég hlusta
töluvert á tónlist.
— Hvernig slappa ég best af?
„Ætli það sé ekki með mig eins og
30