Valsblaðið - 01.05.1991, Qupperneq 36
ÁRSSKÝRSLA KNATTSPYRNUDEILDAR VALS 1991
ERFIÐ FJÁRHAGSSTAÐA
Starf knattspyrnudeildar Vals í ár hef-
ur verið mjög fjölbreytt að vanda —
margir sætir sigrar hafa unnist en einnig
súr töp. Rekstur knattspyrnudeildar
krefst gífulegrar sjálfboðavinnu og ósér-
hlífni stjórnarmanna ásamt fjölda stuðn-
ingsmanna deildarinnar. í ár hefur rekst-
ur knattspyrnudeildar Vals markast af
mjög erfiðri fjárhagsstöðu vegna mikils
taprekstrar undanfarin ár. Það var þegar
ljóst, þegar núverandi stjórn tók við í
mars síðastliðinum, að grípa þyrfti til al-
gjörra neyðarráðstafana til þess að bjarga
deildinni frá verulegum skakkaföllum.
Markmið stjórnarinnar var þríþætt: í
fyrsta lagi að stöðva frekari skuldasöfn-
un, í öðru lagi að skuldbreyta hluta lána í
langtímalán og í þriðja lagi að gera stór-
átak í öflun nýrra tekna. Þessum mark-
miðum hefur að mestu leyti verið náð. Þó
er það ljóst að búast má við að það taki
a.m.k. 4-5 ár fyrir deildina að vinna sig út
úr þeim vanda sem nú blasir við.
Heildarárangur sumarsins var heldur
lakari en búist var við. Hæst ber að sjálf-
sögðu bikarmeistaratitill meistaraflokks
karla, annað árið í röð. Valsmaðurinn,
Ingi Björn Albertsson, stýrði liðinu til
sigurs annað árið í röð á glæsilegan hátt.
Hann hefur verið endurrráðinn fyrir leik-
tímabilið 1992. Auk bikarmeistaratitils-
ins varð Valur Meistari meistaranna, lék
til úrslita um Reykjavíkurmeistaratitlinn
og hafnaði í 4. sæti á íslandsmótinu. Þá
lék liðið gegn Sion í Evrópukeppni bikar-
hafa og féll naumlega úr keppni. Sion
sigraði með einu marki gegn engu á Laug-
ardalsvellinum en leikurinn í Sviss endaði
Guðmundur Kjartnsson, formaður
knattspyrnudeildar.
Stjórn knattspyrnudeildar Vals 1991: Aftari röð frá vinstri: Bjarni Jóhannesson, Sigur-
jón Högnason, gjaldkeri, Úlfar Másson, formaður meistaraflokksráðs, Kjartan Gunn-
arsson. Fremri röð frá vinstri: Hafsteinn Valsson, Þorsteinn Ólafsson, ritari, Guðmund-
ur Kjartansson, formaður, Ólafur Már Sigurðsson, Brynjólfur Lárentsínusson, formað-
ur unglingaráðs.
Sævar Jónsson, fyrirliði Vals, hampar
Mjólkurbikarnum 1991.
með 1:1 jafntefli, eftir að Valur hafði haft
forystu um langa hríð. Menn gengu
hnípnir af velli því liðið var ekki langt frá
því að komast í 2. umferð. í síðustu fjögur
skiptin sem Valur hefur tekið þátt í
Evrópukeppni hefur liðið fallið úr keppni
með minnstum mun.
Miklir erfiðleikar steðjuðu að 2. flokki
félagsins. Flokkurinn var fámennur þar
sem einn til tveir árgangar virðast hafa
horfið úr félaginu. Kristinn Björnsson
þjálfaði flokkinn og náði, að allra mati,
það út úr honum sem hægt var. Kristinn
var aðstoðarmaður Inga Björns og verður
yfirþjálfari allra yngri flokka félagsins
næsta sumar.
I 3. flokki er einn sterkasti árgangur
sem Valur hefur átt í langan tíma. Liðið
komst í úrslitaleik íslandsmótsins en tap-
aði naumlega fyrir KR. Það þurfti tvo
leiki til þess að knýja fram úrslit. Vals-
menn binda miklar vonir við þessa stráka
í framtíðinni enda eru þeir meistara-
flokksmenn framtíðarinnar. Liðið fór í
mjög vel heppnaða ferð til Belgíu í haust
og stóð sig þar með prýði. Þjálfari flokks-
ins var Magnús Þorvaldsson.
4. flokkur lagði einnig land undir fót og
tók þátt í stóru knattspyrnumóti í Gauta-
borg. Ferðin heppnaðist mjög vel þrátt
fyrir skakkaföll í upphafi ferðar. Strák-
arnir stóðu sig vel í íslandsmótinu og
komust í úrslitakeppnina. Þjálfari var Jó-
hann Larsen.
5. flokkur átti á brattann að sækja í
sumar. Flokkurinn sýndi þó miklar fram-
farir undir öruggri leiðsögn Birgis Össur-
arsonar.
6. flokkur var mjög sterkur í ár. Strák-
arnir sigruðu á Shellmótinu í Vestmanna-
eyjum, sem er óopinbert íslandsmót
þessara drengja. Það er greinilegt að
36