Valsblaðið - 01.05.1991, Síða 46
GRÉTU
SUMAR“
FERÐ VALSSTÚLKNA
Á GOTHIA CUP
DAGANA
13.-22. JÚLÍ 1991.
Síðastliðinn vetur ákvað 2. flokkur
Valskvenna að fara á Gothia-Cup mótið í
þriðja sinn, sem haldið er í júlí ár hvert í
Svíþjóð. Strax var hafist handa við undir-
búning og gekk fjáröflunin ágætlega.
M.a. seldum við hreinlætisvörur, rækjur,
blóm og fengum bás í Kolaportinu og þar
seldum við kökur og fleira. Tíminn leið
fljótt og áður en varði rann brottfarardag-
urinn upp.
13. JÚLÍ.
Það var árla morguns þann 13. júlí að
hópurinn hittist í Valsheimilinu, tilbúnar
í slaginn. Fara átti á einkabílum suður í
Leifsstöð og voru flestir foreldrar reiðu-
búnir að keyra. Er á flugvöllinn var kom-
ið var eftirvæntingin orðin mikil, sérstak-
lega hjá þeim okkar sem ekki höfðum
farið á mótið áður. í flugvélinni voru okk-
ur samferða 4. flokkur karla í Val ásamt
flokkum frá liðum Hauka og Gróttu.
Ferðin út gekk vel og lentum við um há-
degið í Gautaborg, en urðurn fyrir von-
brigðum vegna mikillar úrkomu. Við
gistum í sama skóla og hópurinn gerði í
fyrra, Gautaborgarskóla sem er vel stað-
settur, svo stutt var að fara í bæinn, tívolí-
ið og fleira. í skólanum fengum við tvö
herbergi og var annað notað undir far-
angur en hitt var svefnstaðurinn. Við vor-
um ekki lengi að korna okkur fyrir og fór
mest allur dagurinn í búðarráp og mat-
sölustaðir voru heimsóttir, því flestir
voru orðnir svangir. Seinna um daginn
streymdu keppendur á mótið víðsvegar
að og kom hópur ísraela í skólann og
gistu þeir á hæðinni fyrir ofan okkur.
Formlega hófst mótið ekki fyrr en 15. júlí.
14 júlí.
Við vöknuðum eldhressar og kátar um
morguninn og var þetta einn af fáum dög-
um í ferðinni sem við gátum sofið út.
Þessi dagur fór eins og sá fyrri í búðarráp
og skoðunarferðir í sólskini og góðu
veðri. Um kvöldið dreif liðið sig í Lise-
berg-tívolíið og skemmti sér alveg kon-
unglega. Við fórum samt á skikkanlegum
tíma í háttinn, því við áttum viðburðar-
ríkan dag fyrir höndum.
15. júlí.
Það var um kl.06:00 að morgunhaninn
hún Brynja togaði okkur grútsyfjaðar úr
svefnpokunum. Þó gekk misvel að vekja
suma og voru Svala og Bergljót þar
fremstar í flokki. Við náðum samt í mötu-
neytið í tæka tíð og fengum þar ljúffengan
morgunmat „eplagraut og kornflögur."
Við fengum bleika miða til að komast í
mat, tívolíið, á diskótek, í sporvagna svo
eitthvað sé nefnt. Eftir matinn fórum við
og klæddum okkur í búningana, því nú
var komið að okkar fyrsta leik í mótinú. í
vígahug örkuðum við á völlinn þar sem
leikurinn átti að fara fram og vorum
reiðubúnar að sýna hvað í okkur byggi.
Það breyttist all snarlega þegar við sáum
hvað sænsku stelpurnar voru stórar og
miklar. Við reyndum þó að gera okkar
besta og unnu þær okkur með tveggja
marka mun. Þetta var ekki góð byrjun hjá
okkur og héldum við því upp í skóla dapr-
ar í bragði. Við hættum samt fljótt að
hugsa um leikinn og skelltum okkur í
Fimmuna sem er risastórt verslunarhús
og enduðum svo á Mc’Donalds sem var í
miklu uppáhaldi hjá okkur þennan tíma.
Um kvöldið fórum við svo á hina stór-
kostlegu opnunarhátið á Ullevi leikvan-
ginum. Strákarnir í Gróttu gengu inn á
völlinn fyrir Islands hönd með víkinga-
húfur og íslenka fána, á meðan ómaði hið
góðkunna lag Stjórnarinnar „Eitt lag
enn.“ Skemmtiatriðin vöktu mikla at-
hygli og í lokin var flugeldasýning (sem
sást varla vegna þess að það var svo
bjart).
16. júlí.
Við vöknuðum snemma og flýttum
46