Valsblaðið - 01.05.1991, Page 49
18. júlí.
Við vöknuðum snemma og vorum við
ákveðnar í því að vinna leikinn sem við
áttum að keppa þennan dag við banda-
rískt lið í B-úrslitum. Það gekk að óskum
er við unnum þær í vítaspyrnukeppni 3-1,
og stóð Birna sig frábærilega vel í mark-
inu. Svo héldum við glaðar heim í skóla til
að skipta um föt og fara í bæinn. Þá kom
upp það fyndnasta í ferðinni. Brynja far-
arstjóri hafði ekki vitað að við ættum að
keppa annan leik seinna þennan sama
dag og þegar þetta uppgötvaðist áttum
við að vera mættar á völlinn eftir klukku-
stund en þá var allt liðið komið niður í bæ
að versla. og upphósfst nú fótur og fit því
hlaupa þurfti í bæinn að smala liðinu sam-
an. Sumar voru t.d. í miðri máltíð á
Mc’Donalds og þurfti sú máltíð að gjöra
svo vel að bíða betri tíma. Það tókst þó í
tæka tíð að koma okkur öllum saman á
völlinn og lítill var tíminn til upphitunar.
Við kepptum á móti sænsku liði í 4ra liða
úrslitum og unnu þær okkur 3-0, en það
var ekki skrítið því ekki er auðvelt að
hlaupa með fullan maga af hamborgurum
og frönskum. Okkur fannst þetta mjög
leiðinlegt því við vorum vissar unt að ef
aðstæður hefðu verið betri þá hefðum við
jafnvel getað unnið þær.
19. júlí.
Nú áttum við enga leiki eftir sam-
kvæmt leikskrá, en Brynja reddaði æf-
ingaleik fyrir B-liðið. Við lögðum
snemma af stað á þann leik og vorum í
rúman klukkutíma að ganga um milli
leikvanga þar til við fundum þann rétta.
Liðið sem við kepptum við var bandarískt
A-lið og unnu þær okkur 3-1. Kolbrún
„senter“ átti heiðurinn af okkar marki.
Við áttum að keppa annan æfingaleik
seinna um daginn en liðið mætti ekki
(hafa líklega ekki þorað) og héldum við
því aftur heim í skólann. Um kvöldið
pökkuðum við niður, því við þurftum að
skipta um skóla daginn eftir.
20. júlí.
Við byrjuðum daginn á því að flytja
okkur yfir í annan skóla sem var mikið
stærri. Um daginn lágum við í sólbaði og
vorum úti á skólalóð í körfu- og fótbolta.
I þessum skóla voru auk okkar grískir og
amerískir krakkar. Þetta kvöld var haldið
í tívolí og diskótek og fengum við að
koma inn aðeins seinna um kvöldið því
við vorum hættar að keppa.
21. júlí.
Þá var komið að síðasta deginum því
halda skyldi heima næsta morgun. Því
fóru allir í bæinn að ljúka við að versla og
var líka farið í tívolíið, en við vorum búin
að fara þangað svo oft að við hefðum
getað ratað um garðinn blindandi. Eins
og áður flaug tíminn áfram og notuðum
við kvöldið vel, því við máttum vaka eins
lengi og við vildum. Fórum á diskótek og
kvöddum ísraelana og „þá grétu sumar"!
Brosmildar „Valspæjur“ eftir sigur á bandarísku liði.
Aftari röð f.v.: Helga Rut, Guðrún, Anna Rún og Jóna.
Fremri röð f.v.: Úlla, Ella, Berglind, íris og Lovísa.
22. júlí.
Nú rann brottfarardagurinn upp og
pökkuðum við saman og fórum í rútu á
flugvöllinn. Ekki var laust við tilhlökkun
í liðinu að komast heim og sungum við
hástöfum meðan við biðum eftir brottför
vélarinnar. Við millilentum í Osló í
klukkustund og héldum svo heim á Frón-
ið. Þar var keypt mikið af nammi í frí-
höfninni og voru foreldrar og aðrir að-
stendendur mættir út á völl að taka á móti
okkur. Þar kvöddumst við og voru allir
sammála um að þessi ferð hefði verið
alveg frábær og ógleymanleg í alla staði.
Að lokum viljum við þakka Ingvari
þjálfara, Brynju fararstjóra og liðstjórun-
um Erlu og Þóru fyrir ógleymanlega og
reynsluríka ferð. Einnig þökkum við
Guðjóni Birgi fyrir frábæra skemmtun
(alla brandarana og stuðið).
an cotowíti
m.
VO-.tWN*87**
»0» twutíl*
Berglind (Skyldi hún hafa límt boltann á
höfuðið?)
„Og þá grétu sumar“! F.v.: Erla, Elísa-
bet, Signý og Lovísa eftir að Israelarnir
voru kvaddir.
Brandarakallinn Guðjón Birgir og Erla
liðsstjóri gæða sér á ís nieðan horft er á
leik.
2. Flokkur kvenna. Gothia Cup 1991 Úrsiit leikja:
VALUR - AIK 0-2
VALUR - DRÖBAK FROGN 0-0
VALUR - AK NORTH STAR 2-0
VALUR - STARS AND STRIPES 3-1
(B-ÚRSLIT)
VALUR - LJUSNE AIK (4RA LIÐA ÚRLSIT) 0-3
49