Valsblaðið - 01.05.1991, Qupperneq 50
ÁRSSKÝRSLA HANDKNATTLEIKSDEILDAR VALS 1991
Kæru Valsmenn!
Það er ekki annað hægt að segja en að
við handboltamenn séum ánægðir með
lífið eftir síðasta keppnistímabil. Við er-
um stoltir af því að vera þeir sem færðum
Knattspyrnufélaginu Val bestu afmælis-
gjöfina á 80 ára afmælinu — ÍSLANDS-
MEISTARATITIL 1991.
Starfsemi handknattleiksdeildarinnar
síðastliðið ár var fjölbreytt, ánægjuleg,
erfið en árangursrík í alla staði. Hvað
yngri flokka félagsins varðar var árangur
þeirra þolanlegur.
Ef við byrjum á 2. FLOKKI karla, sem
stóð sig vel á árinu, undir handleiðslu
Tedda (Theodór Guðfinnsson „Tuð-
ari“), varð flokkurinn Reykjavíkurmeist-
ari og í 2. sæti á íslandsmótinu. Því miður
urðu strákarnir, enn eitt árið, að horfa á
eftir titlinum í Safamýrina.
Teramo-mótið á Ítalíu tóku þeir hins
vegar með stæl — lögðu bæði félagslið og
landslið ýmissa þjóða að velli. Vegna
dómarahneykslis endaði liðið í 2. sæti eft-
ir ofurspennandi úrslitaleik. Einn liðs-
manna gekk í það heilaga þarna úti með
innfæddri snót og óskum við honum
heilla í því hjónabandi. 2. flokks strák-
arnir eru þó ekki á því að gefast upp því
þeir ætla aftur til Italíu á næsta ári og
flytja Teramo-bikarinn þangað sem hann
á heima — að Hlíðarenda. Flokkurinn
mætir sterkur til leiks í ár og lofar stjórn-
inni þremur titlum.
3. FLOKKUR karla átti erfitt upp-
dráttar síðastliðið ár og hættu margir leik-
menn flokksins, m.a. vegna nýs þjálfara,
sem lokaði á leikaraskap og hóf alvarleg-
ar æfingar. Hann hafði það markmið að
skila landsliðshæfum mönnum í meistara-
flokk. Þó tókst að halda flokknum saman
og átti Guðbjörg Petersen stóran þátt í
Bjarni Ákason, formaður handknatt-
leiksdeildar Vals.
Stjórn handknattleiksdeildar Vals 1991-1992. Aftari röð frá vinstri: Óskar Thorberg,
Kristján Theodórsson, Gunnar Þór Jóhannsson, Ómar Sigurðsson, Hilrnar Böðvarsson.
Fremri röð frá vinstri: Valdimar Sigurðsson, Lúðvig Árni Sveinsson, Bjarni Ákason,
formaður, Guðmundur Sigurgeirsson, Ari Guðmundsson.
BESTA
AFMÆLISGJÖFIN
því. Handknattleiksdeild Vals þakkar
henni af heilhug fyrir það. Flokkurinn
varð þó B-íslandsmeistari og stóð sig vel í
Partille-mótinu í Svíþjóð. Þar komust
strákarnir alla leið í úrslitaleik þar sem
þeir töpuðu fyrir Svíum. Stjórnin hefur
tröllatrú á 3. flokki og því starfi sem
Michael Abkachev er að innleiða og von-
ast eftir titlum í ár.
4. FLOKKUR karla, einnig undir leið-
sögn Mikaels ásamt aðstoðarþjálfaranum
Finni Jóhannssyni (hinum fljúgandi),
náði ekki titli þetta árið. Leikmenn 4.
flokks stóðu sig eins og hetjur á Partille-
mótinu þar sem þeir börðust af eldmóði
við sér ári eldri stráka — eldmóði sem býr
í öllum Valsmönnum. 4. flokkurinn var
að vísu svolítill ólátabelgjaflokkur því
flestir strákarnir voru að breytast í kven-
sama töffara og þeir rifu kjaft að auki.
Undirritaður hefur bætt við sig fjölda
grárra hára eftir Akureyrar- og Svíþjóð-
arferðina með þessum flokki.
5. FLOKKUR karla — stutt og lag-
gott: íslandsmeistari 1991 undir öruggri
stjórn Valdimars Grímssonar (onesixty-
four) og frænda hans hans Óskars Bj.
Óskarssonar.
6. OG 7. FLOKKUR karla. Sigurður
Sigurþórsson og Jón Halldórsson höfðu
það vanþakkláta starf að vinna nýtt hrá-
efni, ef hægt er að taka svo til orða.
Handbolti hjá Val verður að halda áfram
Jakob Sigurðsson, fyrirliði Vals og Iands-
liðsins hampar íslandsbikarnum 1991.
50