Valsblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 4
ARSSKYRSLA AÐALSTJORNAR VALS 1992
FJOLBREYTT
STARFSÁR
Aðalstjórn Vals 1992. Aftari röð frá vinstri: Revnir Vignir, Jóhann Birgisson, Guðbjörg
Petersen, Guðmundur Sigurgeirsson. Freniri röð frá vinstri: Lárus Ögmundsson, Jón
Zoéga formaður og Ragnar Ragnarsson. Á myndina vantar Dýra Guðmundsson og Ólaf
Má Sigurðsson.
Á aðalfundi Knattspymufélagsins Vals,
sem haldinn var 28. apríl 1992, voru eftir-
taldir kjörnir í stjórn félagsins fyrir
stjómarárið 1992-1993:
Jón Gunnar Zoéga formaður
Lárus Ögmundsson
Reynir Vignir
Ragnar Ragnarsson
Guðbjörg B. Petersen
Dýri Guðmundsson.
Eftirtaldir voru kjörnir formenn
íþróttadeilda:
Guðmundur Kjartansson formaður knatt-
spymudeildar. Lúðvíg Á. Sveinsson for-
maður handknattleiksdeildar. Sigurður
Haraldsson formaður körfuknattleiks-
deildar.
Á fyrsta fundi nýkjörinnar aðalstjómar
skipti stjómin með sér verkumeftirfarandi:
Lárus Ögmundsson varaformaður, Reynir
Vignir gjaldkeri, Ragnar Ragnarsson ri tari.
Úr fyrri stjóm gekk Halldór Einarsson.
Bókaðir fundir fráfarandi aðalstjórnar
voru 44.
Þá var skipað í eftirfarandi nefndir:
Minjanefnd: Jafet Ólafsson formaður,
Gísli Þ.Sigurðsson, Guðmundur Ingi-
marsson, Þórður Þorkelsson.
Vallarnefnd:
Sigtryggur Jónsson formaður, Harry
Sampsted Gunnar Svavarsson, Sverrir
Traustason. Harry Sampsted tók fljótlega
við formennsku í nefndinni þegar
Sigtyggur Jónsson hvarf af braut vegna
anna. í nefndina gekk þá Úlfar Hróarsson.
Samskiptancfnd ríkis og borgar:
Lárus Ögmundsson formaður, Jón Gunnar
Zoega.
Húsnefnd: Brynjólfur Lárentsíusson for-
maður, Sigurjón Högnason, Þorleifur Kr.
Valdimarsson, Jóhann Birgisson, Sverrir
Traustason.
Mannvirkjanefnd: KristjánÁsgeirsson
formaður, Guðmundur Þorbjörnsson,
Oddur Hjaltason, Nikulás Úlfar Másson.
Hátíðanefnd: Ragnar Ragnarsson for-
maður, Reynir Vignir.
Félagsmálaráð: Dýri Guðmundsson
formaður.
Foreldra- og skólaráð: Guðbjörg B
Petersen formaður.
Framkvæmdastjóri félagsins er Sigríður
Yngvadóttir. Daglegur rekstur og skrif-
stofuhald aðalstjómar er í hennar umsja.
Húsvörður félagsins er Sverrir Trausta-
son og fastráðnir bað- og klefaverðir eru
Baldur Þ. Bjamason og Elín Elísabet
Baldursdóttir.
FRAMKVÆMDIR Á
FÉLGSSVÆÐI
Stórframkvæmdum á útisvæði Vals lauk
að mestu á síðasta ári. Að vísu var farið
f flytjafleiri tréinnansvæðisins,bflastæði
merkt en annars var mest um almennt
viðhald á völlum félagsins á árinu að
ræða. Einnig voru settar upp við austur-
gafl nýja íþróttahússins tvær körfur og
tvö handboltamörk. Þar var verið að
verið að koma til móts við þörf
„Sumarbúða í borg” fyrir slík tæki
utanhúss. ísumarvomþök húsa félagsins
máluð. Innanhúss hefur búningaaðstaða
verið bætt. Knattspymudeildin sá um kaup
á skápum í klefa meistaraflokks. Einnig er
nýr klefi fyrir meistaraflokk í handbolta í
smíðum, verður þar komið fyrir heitum potti
og skápum. Framkvæmdir eru að mestu í
höndum deildarinnar en í náinni samvinnu
við hússtjórn. í smíðum er nú
blaðamannastúka í nýja íþróttahúsinu.
Töluvert var bætt við lyftingabúnað í
tækjasal hússins á árinu og salurinn nú
talinn fullbúinn, tækjalega séð.
NÆSTU
STORFRAMKVÆMDIR
Mikið starf hefur farið fram á vegum
félagsins um næsta stórverkefni félagsins.
Til þess verkefnis hafa nánast allar
fastanefndir félagsins verið kallaðar.
Ákvörðun mun liggja fyrir fljótlega.
Valsblaðið
1