Valsblaðið - 01.05.1992, Qupperneq 29
Hinir landsfrægu
stuðarar í fullum
skrúða. Valsmenn,
mætum með Vals-
húfur og trefla á leiki
og hvetjum liðið
okkar.
BÆTUM ÞJÓNUSTUNA
VIÐ ÁHANGENDUR VALS
Hugleiðing
Stefáns Halldórssonar
Valur stendur á stoðum sem allar eru
mikilvægar.Ef einhverþeirra gefur sig eða
vantar verður félagið valt, stendur ekki
undir væntingum og getur lent í erfiðleikum
(rétt eins og stóll án fóta)þStoðimar fjórar,
skipaðar þúsundum Valsmanna, eru ið-
kendur,fjölskyldur,forkólfar og áhang-
endur.
Iðkendur æfa, keppa og halda merki
félagsins á loft með góðri frammistöðu.
Þeir em mest í sviðsljósinu og eiga skilið
allan þann stuðning sem við getum veitt
þeim.
Fjölskyldur styðja iðkendur með
margvíslegum hætti, s.s. með því að aka
þeim til og frá æfingum og leikjum, hvetja
þá í keppni, stunda fjáröflun og vinna
margs konar verk sem nauðsynleg eru til
að halda megi út keppnisliðum, að
ógleymdum búningaþvotti.
Forkólfar sýna mikla eljusemi við að
halda félaginu gangandi, s.s. við skipu-
lagningu, fjáröflun og rekstur og stjómun,
og em auk þess manna duglegastir að
mæta á leiki.
Áhangendur greiða fyrir aðgang að
leikjum og kaupa getraunaseðla og alls
kyns vömr sem seldar em til ágóða fyrir
félagið. Síðast en ekki síst tala þeir vel um
félagið við alla sem vilja ljá því eyra (og
halda uppi vömum gegn hinum sem vilja
ekkert gott um félagið heyra!!).
Öll viljum við sjá sem bestan árangur hjá
iðkendum félagsins og reyna að skapa
þeim sem besta aöstöðu til æfinga og
keppni. Fjölskyldurnar og forkólfamir
gegna þar afar þýðingarmiklu hlutverki
og án þeirra yrði iðkendum vafalaust lítið
úr erfiði sínu. Því er bæði nayðsynlegt og
ánægjulegt að veita fjölskyldunum og
forkólfunum umbun og viðurkenningu
fyrir mikilvægt framlag. Félagið getur
gert slíkt með margvíslegum hætti, s.s.
samkomum, blaðaútgáfu og aðgangi að
íþrótta- og félagsaðstöðunni. Þessir þrír
hópar, iðekndur, fjölskyldur og forkólfar
hafa í sameiningu borið sæmdarheitið
Valsmenn og felst í því sá skilningur að
Valsmaður sé sá sem er eða hefur verið
virkur innan félagsins.
Tilefni þessarar greinar er þó það, að ég
vil hvetja Valsmenn til að leggja sig fram
við að veita áhangendunum sem mestan og
bestan stuðning líka. Við skulum ekki líta
svo á, að áhangendumir hafi það hlutverk
eitt að borga sig inn á leiki og hvetja
leikmenn til dáða (og kaupa í sjoppunni í
hálfleik!). gemm vel við þá, sýnum þeim
áhuga, leggjum okkur fram við að veita
góða þjónustu og styðja við bakið á þeim í
því mikilvæga hlutverki sem þeir hafa.
Látum þá finna, að þeir séu líka V alsmenn
og að félagið sé líka til fyrir þá.
Ég vil vinnaað því, að Valurgeri sérstakt
átak í að þjóna áhangendum sínum vel,
sannkallað gæðaátak. Ég er þess fullviss,
að slíkt átak leiðir til meiri stuðnings, meiri
aðsóknar, meiri tekna fyrir félagið og betir
árangurs liða Vals í keppni. Látum Val
ekki einungis státa af því að vera besta
Valsblaðið 29