Valsblaðið - 01.05.1992, Page 56
ÆVINTYRI
f EYJUM
6. flokkur á
Shellmóti 1992
Þegar leið á júnímánuð mátti greina
aukna spennu meðal ö.flokks drengja í
knattspyrnu, enda styttist í ferðina á
Shellmótið (sem er frægt undir nafninu
„Tommamótið”). I þetta skipti átti að
keppa í A-B og C liðum og fyrirsjáanlegt
að Valur myndi senda mjög stóran hóp til
Vestmannaeyja.Miðvikudagurinn24.júni
rann upp og 29 keppendur og 6 manna lið
þjálfara og fararstjóra mætti út á innan-
landsdeild Flugleiða til að fljúga til Eyja.
En þar kom babb í bátinn, það var ófært
flugleiðis og veðurútlit óljóst. Bið með 29
stráka á flugvelli er ekki mjög spennandi
og við leyfðum okkur jafnvel að öfunda þá
2 fararstjóra sem farið höfðu akandi á
„bílnum” og síðan með Herjólfi. En fljót-
lega eftir hádegi brey ttist veðrið og loftbrú
milli lands og Eyja var sett upp.
Shellmótið er ekki bara keppni í
knattspyrnu á milli 24 félaga heldur er þar
líka keppt í ýmsum öðrum greinum fþrótta
auk þess sem mjög viðamikil skemmti-
dagskrá er alla dagana fyrir þátttakendur.
ÍValshópnumvoruaðeinsörfáirsemverið
höfðu á mótinu áður og að auki voru
nokkrir að fara í flugvél í fyrsta sinn
þannig að ævintýrið hófst strax hjá þeim.
Árið 1991 hafði A-lið Valsunniðmótiðog
•Minnsti fremst, stærsti aftast.
Raðað upp fyrir skrúðgönguna.
(■ 7 '5 1
-\¥ \
'1 j|
því vissum við undir niðri að fylgst yrði
vel með árangri hópsins að þessu sinni en
væntingar voru þó allar í hófi í upphafi
ferðar.
Aðsetur okkar í Eyjum var í Hamraskóla
og þegar við höfðum komið okkur fyrir
þar og búið var að fara yfir dagskrána
hófst undirbúningur að skrúðgöngu
kvöldsins. Áður en mótið var sett á
svæði Týs var gengið um bæinn undir
félagsfánum með lúðrasveit í broddi
fylkingar. Það varengin smá ganga enda
þátttakendur margir og fleiri en nokkru
sinni fyrr. Mikið rok og kuldi setti svip
sinn á kvöldið og veðrið átti eftir að hafa
áhrif næstu daga því hvasst var og frekar
kalt allan tímann. Að lokinni móts-
setningu voru nokkur skemmtiatriði s.s.
leikur stjömuliðs Omars við úrvalslið
keppenda, flugeldasýning o.fl. Síðan var
haldið heim í skóla en þrátt fyrir þreytu
dagsins gekk misvel að koma ró á liðið
“Hvenær fáum við silfurverðlaunin
eiginlega?” Beðið spcnntir eftir
verðlaunaafhendingunni.
Valsblaðið
1