Valsblaðið - 01.05.2007, Blaðsíða 10
Viðurkenningar
Það er árviss viðburður hjá Val að útnefna
íþróttamann ársins í hófi að Hlíðarenda á
gamlársdag. íþróttamaður Vals er valinn
af formönnum deilda, formanni félagsins
og Halldóri Einarssyni (Henson) sem er
gefandi verðlaunagripanna. Árið 2006 var
valinn í 15. sinn íþróttamaður Vals. Þessi
athöfn fór fram í nýju íþróttahúsi Vals að
Hlíðarenda að viðstöddu fjölmenni.
Margrét Lára Viðarsdóttir var krýnd
sæmdarheitinu Iþróttamaður Vals 2006.
Margrét Lára er tvítug og gekk til liðs
við Valsmenn fyrir keppnistímabilið
2005. Hún er alin upp í Vestmannaeyjum
og steig sín fyrstu spor sem leikmaður í
úrvalsdeild í liði ÍBV þrátt fyrir ungan
aldur. Afrekalisti Margrétar Láru frá
sumrinu 2006 er einstaklega glæsilegur.
Hún var lykilmaður í frábæru liði Vals
sem vann tvöfalt bæði úrvalsdeildina og
bikarinn. Hún varð markahæst í úrvals-
deildinni og setti nýtt markamet - 35
mörk. Hún skoraði 4 mörk í úrslitaleik
bikarsins gegn Breiðablik.
Hún skoraði 8 mörk í 8 landsleikj-
um árið 2006 og náði því marki að leika
sinn 25. landsleik aðeins tvítug að aldri.
Hún var kosin knattspymukona ársins í
lok leiktíðar af leikmönnum úrvalsdeild-
ar og einnig af KSÍ og ÍSÍ. Hún varð
í 5. sæti í kjöri til íþróttamanns ársins
2006. Sannarlega frábær íþróttamaður
þar á ferð vel að þessu sæmdarheiti kom-
in og einnig er hún góð fyrirmynd allr-
ar íþróttaæsku landisns innan vallar sem
utan. Katrín Jónsdóttir, fyrirliði meistara-
flokks kvenna í knattspyrnu tók við við-
urkenningunni fyrir hönd Margrétar Láru
þar sem hún var stödd erlendis í jólaleyfi
með fjölskyldu sinni.
Grímur Sæmundsen formaður Vals hélt
ávarp við þetta tækifæri og sagði m.a.:
„Það er gaman að geta þess að Margrét
Lára er dóttir Viðars Elíassonar, fyrrum
knattspymukappa í liði Eyjamanna og
forystumanns í knattspyrnumálum í Vest-
mannaeyjum en við Viðar elduðum grátt
silfur á knattspyrnuvellinum á árum áður.
Margrét Lára Viðarsdóttir Iþróttamað-
ur Vals 2006 með Marfu Lind Gylfadótt-
ur (dóttur Betu), Eli'sabet Gunnarsdótt-
ir þjálfari meistaraflokks kvenna og stolt
móðir og Harpa Antonsdóttir.
Það hefur alltaf verið svo að annað
slagið koma fram á sjónarsviðið afburða
hæfileikaríkir einstaklingar í íþróttaheimi
okkar íslendinga. Það hefur verið öll-
um ljóst, sem fylgst hafa með íslenskri
kvennaknattspymu að Margrét Lára er
slíkur einstaklingur. Segja má að Mar-
grét Lára hafi sprungið út sem leikmaður
sl. sumar og sýnt það og sannað að hún
er ekki aðeins með hæfileika, hún kann
einnig að nýta þá. Við Valsmenn getum
verið hreyknir af því að slíkur gæðaleik-
maður hafi valið Val til að þroska hæfi-
leika sína og það sem meira er að sjá
þann einstakling springa út. Þar er hlut-
ur Elísabetar Gunnarsdóttur okkar frá-
bæra þjálfara meistaraflokks kvenna ekki
lítill. Við óskum Margréti Láru til ham-
ingju með kjörið."
íþróttamaðup Vals - síðustu árin
2007
???
2006
Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna
2005
Bjarni Ólafur Eiríksson, knattspyrna
2004
Berglind íris Hansdóttir, handknattleikur
2003
íris Andrésdóttir, knattspyrna
2002
Sigurbjörn Hreiöarsson, knattspyrna
2001
Rósa Júlía Steinþórsdóttir, knattspyrna
2000
Kristinn Lárusson, knattspyrna
1999
Ásgerður Hildur Ingibergsdóttir, knattspyrna
1998
Guðmundur Hrafnkelsson, handknattleikur
1997
Ragnar Þór Jónsson, körfuknattleikur
1996
Jón Kristjánsson, handknattleikur
10
Valsblaðið 2007