Valsblaðið - 01.05.2007, Síða 20
Sigursœlir jyrirliðar Vals ffótbolta.
Sigurbjörn Hreiðarsson, Guðmundur
Þorbjörnsson, Þorgrímur Þráinsson og
Grímur Sœmundsen.
stúlkur svo land undir fót og hófu keppni
meðal þeirra bestu í Evrópu. Að þessu
sinni var farið til Færeyja og leikið við
finnsku, hollensku og færeysku meist-
arana. Eftir áfall vegna gistiaðstöðu, eða
aðstöðuleysis, þjöppuðu stelpurnar sér
vel saman, unnu alla leikina og komust
áfram í keppninni, eftir mikla baráttu við
finnsku meistarana Honka Espoo. Um
miðjan október, mánuði eftir lok íslands-
móts, var svo haldið í 2. umferð Evrópu-
keppinnar þar sem leikið var í Belgíú.
Mótherjarnir að þessu sinni voru enska
liðið Everton, Wezemal frá Belgíu og
þýsku meistaramir Frankfurt. Þess má
geta að Frankfurt er eitt allra sterkasta lið
í heimi og hefur hampað Evróputitlinum
oftar en einu sinni og hefur m.a. 7 leik-
menn úr heimsmeistaraliði Þýskalands
innan sinna herbúða. Stelpurnar hófu mót-
ið með leik gegn Frankfurt og má segja
að íslensku meistararnir hafi sýnt öll-
um hve langt við getum náð, þar sem lið-
ið hafði yfirhöndina í leiknum fram á 80.
mínútu og stóðu vel í þeim þýsku. Frank-
furt náði svo að jafna og komast yfir und-
ir lokin, grátlegt en jafnframt glæsilegur
leikur Valsstúlkna. Næsti leikur var svo
gegn Wezemal, sem var greinilega lakasta
liðið í riðlinum og unnu Valsstúlkur leik-
inn örugglega 4-0, þótt markalaust hafi
verið í hálfleik. Lokaleikur Vals var svo á
móti Everton, þar sem Valur stóð betur að
vígi fyrir leikinn. Þar sem vallaraðstæður
í Belgíu voru mjög slæmar og var afráð-
ið að spila lokaumferðina ekki á sama
tíma þar sem annar.leikurinn færi fram á
ófullnægjandi velli. Leikur Vals og Ever-
ton var leikinn á undan og fór leikurinn
illa fyrir okkar stelpum, þar sem Everton
komst í 3-0 áður en Valur minnkaði mun-
inn í 3-1. Þetta þýddi að belgíska liðinu
nægði jafntefli gegn Frankfurt, þar sem
þær unnu Everton. Valur þurfti að reiða
sig á sigur hjá Frankfurt, sem öllu jafna
hefði verið öruggt. En þær þýsku mættu
áhugalausar til leiks og sættu sig við
jafntefli, því var ljóst að þátttöku Vals í
Evrópukeppninni þetta árið var lokið.
Á lokahófi KSÍ uppskar Valsliðið vel
en í lið ársins voru valdar þær Guðbjörg
spyrnukona landsins og Iþróttamaður
Vals árið 2006, Margrét Lára Viðarsdóttir
ákvað að halda á vit ævintýra og atvinnu-
mennsku og samdi við þýska stórliðið
FCR Duisburg. Var því ljóst að Valslið-
ið hafði orðið fyrir mikilli blóðtöku þar
sem helsti markaskorari liðsins var horf-
inn á brott.
Ekki var setið auðum höndum því mik-
ilvægt var að hópurinn yrði góður, þar
sem markið var sett á Evrópukeppnina.
Stelpumar endurheimtu markaskorarann
Nínu Ósk Kristinsdóttur frá Keflavík;
Vanja Stefanovic gekk til liðs við okkur
frá Breiðablik og Sif Atladóttir kom frá
Þrótti. Á miðjum vetri sneri Margrét Lára
til baka og var hópurinn þá orðinn sterk-
ur með tvær af markahæstu leikmönnum
2006 í framlínunni Að auki bættust við
hópinn þær Anna Garðarsdóttir frá HK/
Víkingi, Linda Rós Þorláksdóttir og Björg
Magnea Ólafs frá Haukum. Björg Magn-
ea ákvað svo á miðju sumri að skipta yfir
í Keflavík. Á vormánuðum bættist enn við
hópinn þegar Dagný Brynjarsdóttir gekk
til liðs við Val frá KFR.
Þjálfarateymi
Þjálfari liðsins var sem fyrr Elísabet
Gunnarsdóttir en þetta var fjórða árið
hennar með liðið. Aðstoðarþjálfari meist-
araflokks í sumar var Theodór Svein-
jónsson sem jafnframt sá um þjálfun 2.
flokks félagsins. Ólafur Pétursson var
markmannsþjálfari liðsins og sá einnig
um markmannsþjálfun hjá yngri flokkum
félagsins. Þeim til handar var svo Freyr
Alexandersson, þjálfari 4. flokks kvenna.
Umgjörð
Kvennaráð skipuðu i sumar þau Erla Sigur-
bjartsdóttir, Eva Halldórsdóttir, Kjartan Orri
Sigurðsson, Kristbjörg Ingibjömsdóttir,
Ragnar Vignir, Rósa Júlía Steinþórsdótt-
ir og Þórður Jensson. Heimaleikir liðsins
fóm fram á Valbjamarvelli vegna fram-
kvæmda, eins og fyrra ár og mæddi tölu-
vert á kvennaráði í sumar. Setja þurfti upp
hljóðkerfi og fleira fyrir hvem leik og á
Orri miklar þakkir skilið fyrir að sjá vel
um þau mál. Valbjamarvöllur var í slæmu
ástandi í sumar vegna mikils álags og verð-
ur því ánægjulegt að geta spilað á glæsileg-
um Vodafonevelli á Hlíðarenda í hans stað.
Árangur í mótum
Tímabilið hófst með þátttöku í Lengju-
bikar KSÍ. Liðið spilaði gegn Breiða-
blik, KR, Stjörnunni, Keflavík og Fylki
og vann alla leikina og fékk aðeins á sig
3 mörk. Stelpurnar léku því til úrslita og
var sá leikur gegn KR. Liðið vann leik-
inn 2-1 og þar með Lengjubikarinn.
Á vormánuðum tóku stelpurnar einn-
ig þátt í Reykjavíkurmóti KRR. Valur lék
þar gegn hinum Reykjavíkurliðunum og
unnust sigrar gegn liðum Fjölnis, Fylkis,
HK/Víkings, ÍR og Þróttar en liðað tap-
aði gegn KR og þurfti því enn á ný að
gera sér 2. sætið í Reykjavíkurmótinu að
góðu. í byrjun maí hefndi Valur ófaranna
frá fyrra ári í Meistarakeppni KSÍ er lið-
ið gjörsigraði Breiðablik, 8-1.
íslandsmótið hófst síðan með glæsi-
brag um miðjan maí og gekk flest allt
upp hjá liðinu í byrjun móts. Mótið var
að þessu sinni mjög spennandi vegna
mikillar samkeppni úr Vesturbænum.
Stelpurnar spiluðu 16 leiki í Landsbanka-
deildinni, þar sem fjölgað var í deildinni
frá fyrra ári og einu stigin sem töpuðust
voru í jafnteflisleik gegn KR. í næst síð-
ustu umferðinni mættust liðin í hrein-
um úrslitaleik um íslandsmeistaratitilinn.
Valur lagði þar KR að velli á útivelli og
var því nánast formsatriði að klára loka-
leikinn. Liðið lauk mótinu með 46 stig
og skoraði í þessum leikjum 88 mörk og
fékk einungis á sig 7. Valsstelpurnar voru
því krýndar íslandsmeistarar að nýju og
titillinn því áfram á Hlíðarenda.
Bikarkeppnin hófst með leik í Kópa-
vogi í átta liða úrslitum gegn Breiðablik
og litu vonbrigði sumarsins þar ljós en sá
leikur tapaðist 2-1.
í byrjun ágústsmánaðar lögðu Vals-
20
Valsblaðið 2007