Valsblaðið - 01.05.2007, Side 58
Víglsan
og K. Karlakórinn Fóstbræður stofn-
aði hann einn af okkar bestu karlakór-
um, sem og Knattspyrnufélgið Hauka og
eitt fyrsta skátafélagið Skátafélagið Vær-
ingja. Kirkjunni og þjóðinni gaf hann
síðan ljóðin sín, sálmana sína sem enn
í dag eru sungnir í kirkjunni og KFUM
og K. Við öll eru þakklát fyrir hann séra
Friðrik. Hans göfuga starf sem mun lifa
þótt ár og dagur líði.
í ljóði si'nu „Knattspyrna“ sem hann til-
einkaði Val segir Séra Friðrik:
Helzt mun leiksins heiður styðja
hófstillt lund, en framagjörn:
Drengileg sé dáð og iðja
drengileg í sókn- og vörn.
Enginn þeysing út í bláinn
ekkert spark í fáti sett.
Öll sé leikmanna æðsta þráin
að allt sé fagurt, djarft og rétt.
Fram, fram frækið lið.
Fram, fram, sækið þið.
Að því marki sem leikinn láti
lærdóm verða á þroskabraut.
tamning viljans með glóð í gáti
glæðing dyggða í hverri þraut.
Þá að lokum er lffið þrýtur
leik er slitið, marki náð,
sigurlaun og hnossið hlýtur
hann er sýndi trú í dáð.
Sr. Friðrik Friðriksson
Guð bessi þessi glæsilegu mannvirki sem
eru hér vígð, og allt það íþróttalíf, sem
hér verður iðkað undir orðunum hans
séra Friðriks.
„Látið aldrei kappið bera fegurðina
ofurliði. “
Til hamingju ágætu Valsmenn.
Og svo: „4fram Valur“.
Ávarp Péturs Stefánssonar
formanns byggingarnefndar
Utanríkisráðherra, borgarstjóri, formað-
ur Vals, góðir gestir
Síðastliðið vor fór ég á bókamarkað í
Perlunni og keypti nokkur kfló af bókum
til að hafa með í sumarbústaðinn eins og
ég er vanur. Ein þessara bóka voru „Ævi-
minningar Úlfars Þórðarsonar læknis og
f.v. formanns Vals“. Aftarlega í bókinni
rakst ég á mynd frá 1948 þar sem ver-
ið er að vígja malarvöllinn á Hlíðarenda.
Sr. Friðrik Friðriksson er að taka víti, en
Úlfar stendur hjá og horfir á. Sr. Friðrik
er í sparifötunum, í vesti og á skóhlífum.
í baksýn er hitaveitustokkurinn og þyrp-
ing af hermannabröggum í Öskjuhlíðinni.
Þetta var hátíðisdagur og mikið ævintýri.
A þessum 60 árum sem um eru lið-
in hafa mörg ævintýri gerst á Hlíð-
arenda. Það ævintýri sem við nú upplif-
um hófst formlega með samningum Vals
og Reykjavíkurborgar á árunum 2002
og 2003 eins og áður hefur verið nefnt.
Skipa skyldi 5 manna bygginganefnd, tvo
' vj
frá hvorum og oddamann til að annast
framkvæmd samningsins. Samkomulag í
þessari nefnd reyndist með þeim ágætum
að oddamaðurinn sá er hér stendur reynd-
ist óþarfur. Var þá brugðið á það ráð að
gera hann að formanni nefndarinnar og
láta hann sjá um framkvæmdir. Hönnuðir
voru ráðnir ALARK arkitektar í Kópa-
vogi með Kristján Asgeirsson sem aðal-
hönnuð, en VST og Rafhönnun til að
annast tæknihliðina.
Aðalverkið var boðið út í maí 2005 og
var samið við lægstbjóðanda Mark-hús
ehf. Samningur hljóðaði upp á 700 m.kr.,
en áætlun hönnuða var 770 m.kr. Bygg-
ingastjóri var Markús Arnason. Nú við
verklok eru nýbyggingar enn vel undir
áætlun hönnuða.
Nú stöndum við hér tveim árum síð-
ar með þessi glæsilegu mannvirki fyrir
framan okkur. Nýbyggingingarnar eru í
stuttu máli:
• Viðbygging við gömlu tengibygg-
inguna hér frammi, þar sem er aðal-
torg hússins.
• Nýtt íþróttahús þar sem við nú erum
með fullkomnum keppnisvöllum fyr-
ir handbolta og körfubolta, þrem
æfingavöllum þvert á húsið og sæt-
um fyrir 1300 manns.
• Búningsklefaálmu og áhorfendastúku
knattspymuvallar ásamt sérstakri
heiðursstúku á 3. hæð.
• Loks geymslur og tæknirými við suð-
urgafl hússins.
Síðast en ekki síst hefur verið byggð-
ur fullkominn grasvöllur fyrir fótbolta.
Völlurinn er með vermilögnum og sjálf-
virkum vökvunarbúnaði, tvímælalaust
best búni knattspymuvöllur á landinu.
Góðir gestir. Það er orðin mikil breyt-
ing á Hlíðarenda á þessum 60 ámm, sem
liðin eru frá þvi að myndin af Úlfari og
sr. Friðrik var tekin. Braggarnir horfn-
ir, malarvöllurinn horfinn og Valsmenn
hættir að taka víti á skóhlífum. Ég vil á
þessum degi þakka meðnefndarmönnum
mínum í byggingarnefnd, hönnuðum og
verktökum ánægjulega samvinnu og vel
unnin verk. Fyrir hönd okkar allra vil ég
óska Knattspyrnufélaginu Val til ham-
ingju með þessi glæsilegu mannvirki. Ég
vil biðja formann Vals að koma og taka
við lykli að húsinu, um leið og ég læt þá
ósk í ljósi að Valur megi lengi njóta og
að hér megi fegurðin ein ríkja.
58
Valsblaðið 2007