Valsblaðið - 01.05.2007, Blaðsíða 101
Minning
Hafþór
Sveinjónsson
fæddur 14. nóvember 1961
dáinn 22. juní 2007
Einn af íslandsmeisturum Vals í knatt-
spymu frá 1987 er fallinn frá, langt um
aldur fram. Hafþór Sveinjónsson var
hluti af frábærum hópi Valsmanna sem
hampaði titlinum árið 1987 en hann gekk
til liðs við félagið frá Fram fyrir þetta
eftirminnilega tímabil. Hafþór staldr-
aði stutt við að Hlíðarenda enda valinn
maður í hverju rúmi og komust færri að
í byrjunarliðinu en vildu. Hafþór var eft-
irminnilegur leikmaður og félagi, þekktur
fyrir vel útfærðar rennitæklingar og lang-
ar, beinar og hámákvæmar ristarspymur
sem hann beitti óspart. Hann var baráttu-
glaður og gafst ekki upp fyrr en í fulla
hnefana, enda alinn upp hjá metnaðar-
gjömu og sigursælu félagi í Safamýrinni.
Hafþór hafði þann yndislega kost
að sjá yfirleitt spaugilegu hliðar lífs-
ins og sparaði sjaldan húmorinn og létt-
leikann. Hann var einstaklega orðhepp-
inn og beitti háðinu fagmannlega án þess
að fara yfir strikið. Það var gaman að
vera í návist Hafþórs og auðvelt að láta
sér þykja vænt um hann. Eftir að hin-
um hefðbundna knattspymuferli lauk var
hann á tímabili hluti af okkar spengilega
og metnaðargjarna „Þriðjudagsbolta"
þar sem menn fóma frekar tönnum en að
vera í tapliði.
Hin síðari ár spilaði Hafþór á hinum
stóra leikvelli lífsins þar sem auðvelt er
að misstíga sig ef ekki er varlega farið.
Eflaust hefði Hafþór getað spilað betur
úr sfnum spilum, eins og við öll, en hver
og einn metur hverju sinni hversu mikla
áhættu ber að taka. Ein mesta glíma lífs-
ins er að takast á við sjálfan sig, við-
urkenna styrkleika og veikleika og í kjöl-
far þess að ákveða hvers konar lífi maður
vill lifa. Eins og lífið er dásamlegt er það
engu að síður vandasamt. Freistingar lúra
á hverju horni, óheppilegur félagsskapur
og fáránleiki lífsins birtist á ýmsa vegu.
En það er okkar að velja og hafna. Lífið
snýst um að taka ákvarðanir, hvort sem
þær eru smávægilegar eða geta breytt lífi
okkar. En ábyrgðin er ávallt okkar.
Hafþór er horfinn á braut en eftir sit-
ur syrgjandi fjölskylda og vinir. Spum-
ingum verður ekki svarað, ekki frek-
ar en þeim sem við spyrjum okkur sjálf
dagsdaglega. Ef við vissum öll svör væri
lífsins leikur ekki eins spennandi. Miss-
ir Hafþórs er engu minni en ættingja því
það eru forréttindi að fá að fylgja börn-
um sínum og vinum eins lengi og kost-
ur er.
Minning um góðan dreng mun lifa.
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með
támm.
Hugsið ekki um dauðann með harmi
og ótta.
Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár
snertir mig og kvelur, þvi látinn mig
haldið.
En þegar þig hlægið og syngið með
glöðum hug
sál mín lyftist upp í mót til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem
lífið gefur
og ég, þótt látinn sé, tek þátt í í gleði
ykkar
yfir lífinu.
(höfundur ókunnur)
F.h. Islandsmeistara Vals
i knattspyrnu 1987
Þorgrímur Þráinsson
Kristinn
Þorleifur
Hallsson
Fæddur 4. júní 1926
dáinn 28. júlí 2007
Kveðja frá Knattspyrnufálaginu Val
Við Valsmenn drjúpum höfði nú þeg-
ar einn okkar mætustu félaga, Krist-
inn Hallsson óperusöngvari, hefur kvatt.
Kristinn átti ekki langt að sækja ramma
taug til Vals, en faðir hans Hallur Þor-
leifsson, kaupmaður var einn af stofn-
endum félagsins og einnig einn af stofn-
endum Karlakórsins Fóstbræðra. Bæði
þessi félög voru stofnuð vegna hvatning-
ar hins mæta manns, séra Friðriks Frið-
rikssonar. Kristinn sótti vel kappleiki
Vals og þá oftar en ekki með öðrum öðl-
ingi en það var Agúst Bjarnason frændi
hans. Saman tveir mynduðu þeir einn
öflugasta kór stuðningsmanna á íslandi
og hrópið var ekki flókið; „Afram Val-
ur og fleiri mörk.“ Þetta hrópuðu þess-
ir djúprödduðu félagar klæddir í rauðu
jakkana sína hvort sem mark hafði verið
skorað eða ekki. Enginn réð yfir slíkum
raddstyrk, sem þessir tveir. Gjarnan mátti
sjá þá frændur spjalla við Sigfús Hall-
dórsson tónskáld á leikjum Vals að Hlíð-
arenda en Sigfús var einnig mikill Vals-
maður. Brosið var oft breitt á þessum
kempum enda upplifðu þeir sigurtíma í
Val. Saga Vals er ríkari vegna manna eins
og Kristins. Við Valsmenn erum þakklátir
fyrir að hafa fengið að kynnast ljúfmenn-
inu og listamanninum Kristni Hallssyni
og sendum aðstandendum Kristins okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Gri'mur Sœmundsen,
formaður Knattspyrnufélagsins Vals
Valsblaðið 2007
101