Valsblaðið - 01.05.2007, Blaðsíða 15
Starfið er margt
'Vu
•, 'V
þessum þjálfurum fyrir samstarfið á liðnu
starfsári og óskar öllum núverandi þjálf-
urum velfarnaðar í krefjandi starfi þeirra.
Yfirþjálfarar
A liðnu starfsári störfuðu tveir yfirþjálf-
arar fyrir yngri flokka félagsins. Störf
yfirþjálfara eru til þess fallin að styrkja
aðalþjálfara í störfum og veita þeim
aðhald. Miklu skiptir að þjálfarar yngri
flokka hafi aðgang að traustum bakhjarli
vegna vinnu sinnar og skiptir þá engu
hve mikil reynsla hvers þjálfara er. Yfir-
þjálfarar hafa bundið saman þjálfara-
teymi yngri flokka og tryggt að þar vinni
allir sem einn maður. Starfi yfirþjálfara
kvennaflokka á starfsárinu gegndi Elísa-
bet Gunnarsdóttir þjálfari meistaraflokks
kvenna og sama starfi karlaflokka gegndi
Magni Fannberg sem var þjálfari 3. fl.
karla eins og fram er komið.
Knattspyrnuskóli
Knattspyrnuskóli VALS var rekinn með
svipuðu fyrirkomulagi og á fyrri árum. í
skólanum gefst stelpum og strákum tæki-
færi á að kynnast knattspymu á jákvæð-
an og skemmtilegan hátt undir hand-
leiðslu góðra þjálfara. Starf skólans hófst
11. júní og stóð í um 8 vikur í sumar og
voru öll námskeið skólans vel sótt. Leið-
beinendur í sumar voru þeir Björn Sig-
urbjörnsson þjálfari 3. og 5. fl. kvenna
og Birkir Már Sævarsson aðstoðarþjálf-
ari 7. fl. drengja og leikmaður meistara-
flokks Vals og landsliðsins.
Unglingaráð gaf út á starfsárinu veg-
legan kynningarbækling um sumarstarf
yngri flokka félagsins. Þar er að finna
ýmsar hagnýtar upplýsingar um félagið,
þjálfara, unglingaráð, foreldraráð, reglur
um dómarastörf, mót, knattspyrnuskóla,
afrekshóp Vals, æfingagjöld, fjáraflanir,
æfingaferðir erlendis, Stuðningsmanna-
keppni Landsbankans og leikdaga meist-
araflokks karla og kvenna, svo eitthvað
sé nefnt. Var bæklingurinn, sem er 24
blaðsíður og skreyttur fjölda litmynda
af iðkendum, gefinn út í 9000 eintökum
og dreift í öll hús og skóla í Valshverf-
inu. Utgáfu þessa styrktu eftirtaldir með
auglýsingum: Landsbankinn, Ormsson,
Pumabúðin og Tryggingamiðstöðin.
Uppskeruhátíð yngri flokka Vals
Árleg uppskeruhátíð var haldin laug-
ardaginn 22. september 2007 að við-
stöddum miklum fjölda iðkenda, foreldra
og forráðamanna og gesta. Var hátíð-
in haldin í glæsilegri Vodafonehöll að
Hlíðarenda eftir að hafa verið á hrakhól-
um að undanförnu vegna aðstöðuleysis.
Hefðbundnar viðurkenningar voru veitt-
ar á hátíðinni og gerðu þjálfarar þar grein
fyrir gengi flokka með stuttri ræðu. Að
lokinni afhendingu viðurkenninga bauð
knattspyrnudeild Vals upp á veiting-
ar með aðstoð iðkenda og foreldra sem
mæta með kökur og brauðmeti til fagn-
aðarins á sameiginlegt veisluborð sam-
kvæmt áralangri hefð.
Allir iðkendur yngri flokka Vals fá
verðlaunapening með merki félagsins og
ártali. Að auki fá iðkendur í 4.-7. flokki
drengja og stúlkna viðurkenninguna
„Liðsmaður flokksins". Við veitingu
verðlauna er tekið mið af stefnuyfírlýs-
ingu ÍSI um bama- og unglingaíþróttir
og Knattspyrnu- og uppeldisstefnu Vals.
Viðurkenninguna „Liðsmaður flokks-
ins“ hlýtur sá einstaklingur sem að mati
þjálfara hefur verið öðrum iðkendum
flokksins til fyrirmyndar, haft jákvæð
og hvetjandi áhrif á félaga sína og sýnt
prúðmennsku gagnvart samherjum sín-
um og þjálfara, innan vallar og utan.
Landsbankinn styrkti uppskeruhátíðina
með fjárframlagi sem nýtt var til kaupa
á verðlaunagripum. Tengiliður bank-
ans við unglingaráð hefur verið Áslaug
Birgisdóttir starfsmaður í markaðsdeild.
Styrkur bankans var veittur á grundvelli
sérstaks samstarfssamnings félagsins og
bankans. Reynslan af samstarfi félags-
ins við Landsbankann hefur yfirleitt ver-
Valsblaðið 2007
15