Valsblaðið - 01.05.2007, Page 51
Krístjan Asgeirsson
tók saman
Knattspyrnufélagið Valur og
Hlíðarendl 2007
Fyrstu skref í uppbyggingu nýrra mann-
virkja að Hlíðarenda voru stigin árið
2001 þegar þeir Reynir Vignir, Grím-
ur Sæmundsen og Hörður Gunnarsson
fóru fyrir samninganefnd Vals gagnvart
Reykjavíkurborg, varðandi sölu á hluta
á erfðafestulandi félagsins, vegna fyr-
irhugaðrar stofnbrautagerðar við svæði
félagsins. Samningur var undirritaður
þann 11. maí 2002. Þarfagreiningarnefnd
um framtíðar uppbyggingu félagsins var
sett á laggimar undir forsæti Lárusar
Hólm, en auk hans sátu þar, Guðmund-
ur Þorbjömsson, Torfi Magnússon, Niku-
lás Úlfar Másson og Kristján Asgeirsson.
Þarfagreiningarskýrsla var afhent í febrú-
ar 2003.
Fyrsta skóflustunga að nýjum mann-
virkjum Knattspymufélagsins Vals var
tekin þann 11. maí 2005 af formönn-
um félagsins. Byggingarnefnd var skip-
uð fulltrúum Vals og Reykjavíkurborgar:
Lárus Hólm, Hrólfur Jónsson og sfð-
ar Guðmundur Þorbjörnsson f.h. Vals,
Ómar Einarsson og Þorkell Jónsson f.h.
Reykjavíkurborgar og formaður var Pét-
ur Stefánsson, verkfræðingur.
Hlíðarendi, lýsing mannvirkja
Markmið með uppbyggingu nýrra mann-
virkja á svæði Knattspyrnufélagsins Vals
að Hlíðarenda voru fyrst og fremst þau
að uppfylla grunnþarfir Vals fyrir góða
framtíðaraðstöðu jafnt til félagsstarfs og
íþróttaiðkunar. Þess var einnig gætt að
samhliða þörfum Vals væri reynt að haga
skipulagi mannvirkja þannig að dagleg
starfsemi og rekstur verði sem þægileg-
ust.
Framkvæmdir í stuttu máli:
• yngra íþróttahús var rifið.
• aðalleikvangur félagsins var færður
yfir á fyrrverandi malarvöll.
• nýtt og stærra íþróttahús byggt á stað
fyrrverandi íþróttahúss.
• áhorfendastúka/búningsklefaálma
sambyggð nýju íþróttahúsi.
• byggð viðbygging við núverandi 2ja
hæða tengibyggingu sem tengir sam-
an nýtt íþróttahús og eldri byggingar.
• gengið frá æfingasvæðum, bilastæð-
um, girðingum o.fl.
Meginatriði uppbyggingar koma fram
í eftirfarandi liðum.
Viðbygging tengibyggingar er tvær hæð-
ir að grunnfleti um 450 m2. Þar er fyrst
og fremst leitast við að skapa gott og
þægilegt rými á aðaltorgi sem rúmar allt
að 2000 manns og beinir gestum greið-
lega í allar áttir, bæði í búningsklefa,
íþróttahúsin, í skrifstofur og fundarsali
á 2. hæð, upp í stúku, inni og úti og út
á knattspymuvelli. Aðkoma í stækkaða
veislusali á 2. hæð er aðgreind frá aðal-
inngangi. Alls er viðbygging tengibygg-
ingar um 900 m2.
Nýtt íþróttahús; stærð þess ræðst fyrst
og fremst af þeirri þörf að koma fyrir
handknattleiksvelli í fullri lengd og öðr-
um í fullri breidd. Keppnisvellir í hand-
knattleik og körfuknattleik em miðjusett-
ir í húsið. Unnt er að þrískipta salnum
með 2 fellitjöldum og fá þannig fram þrjá
velli fyrir handknattleik og/eða körfu-
knattleik. Handknattleiksvellirnir eru þá í
fullri breidd en ekki fullri lengd. Ahorf-
endaaðstaða í stólum og bekkjum fyrir
um 1300 manns er allan hringinn í hús-
inu auk þess sem hægt er að standa all-
an hringinn á svalagangi, þ.a. unnt er
að koma fyrir allt að 1800-2000 manns
í salinn. Gólfflötur íþróttasalarins er um
2100 m2 auk geymslurýmis og svala-
gangs hringinn í kringum salinn. Aðgengi
áhorfenda í íþróttahúsið verður af 2. hæð
hússins inn á svalaganginn og niður á
áhorfendapallana. Með þessu móti er
komið í veg fyrir skörun leikmanna og
áhorfenda. íþróttahúsið er einnig hannað
fyrir samkomur og tónleikahald.
Ahorfendastúka knattspyrnuvallar er
undir þaki íþróttahússins. Grunnflötur
hennar er 800-900 m2 og rúmar um 1200
manns í sæti auk stæða. Aðgengi áhorf-
enda er ýmist um tengibyggingu af svala-
gangi iþróttahúss eða utan frá, um hlið
við vesturhlið tengibyggingar og það-
an upp í stúku. Efst í stúku er rými fyrir
heiðursgesti auk fréttamannarýmis. Efst
í stúku er aðstaða fyrir hjólastóla og þar
er einnig möguleiki á stæðum. Alls getur
stúkan rúmað um 1400 manns.
Búningsklefaálma nýs íþróttahúss er
undir stúku knattspyrnuvallar. Þar eru 8
búningsklefar með læstum munaskápum.
Stærð klefanna er 22 m2 og einn klefi er
35 m2. Þeir þjónusta jafnt innisali sem
útisvæði. Alls verða 15-17 búningsklef-
ar á Hlíðarenda.
Líkamsrœktaraðstaða er á 1. hæð tengi-
byggingar um 170 m2 auk 60m2 slökunar
rýmis í kjallara.
Stœrsta geymslurýmið er við suðurenda
Valsblaðið 2007
51