Valsblaðið - 01.05.2007, Page 12
Eftir Þorgrím Þráinsson
Framtíða
Grímur Sæmundsen
formaður Vals
veitir Valsmönnum
sýn á Hlíðarenda
framtíðarinnar
„Mín framtíðarsýn er sú, að Knatt-
spyrnufélagið Valur verði besta afreks-
félag landsins í knattspymu, handknatt-
leik og körfuknattleik í karla- og
kvennaflokkum. I þessum íþróttagreinum
liggja okkar rætur og við ætlum að verða
leiðandi á þessum vettvangi. Sú upp-
bygging sem hefur átt sér stað að Hlíð-
arenda síðustu ár og mun halda áfram
styður þessa framtíðarsýn.
Gagnvart foreldrum og iðkendum vil
ég sjá að Knattspyrnufélagið Valur verði
afburðaþjónustufyrirtæki á sviði knatt-
spyrnu, handknattleiks og körfuknattleiks
fyrir alla borgarbúa.
Við gerum okkur grein fyrir forvam-
argildi íþrótta, eins og Þórólfur Þór-
lindsson prófessor og núverandi forstjóri
Lýðheilsustöðvar benti á fyrir 20 ámm.
Krakkar sem stunda íþróttir ná betri
námsárangri og leiðast síður út í neyslu
áfengis og fíkniefna. Valur mun hafa það
að markmiði að taka þátt í því með for-
eldrum að móta heilbrigð ungmenni sem
hafa sjálfstraust til að láta gott af sér
leiða innan vallar sem utan og vera góð-
ar fyrirmyndir.“
Grímur segir að það sé rrijög mikilvægt
að innan raða Vals séu ávallt starfandi vel
menntaðir og hæfir þjálfarar sem kunna
að innræta þær hugsjónir sem eiga að
vera hafðar að leiðarljósi að Hlíðarenda.
„Öll samskipti iðkenda og foreldra við
félagið eru einnig mjög mikilvæg. Netið
mun gegna lykilhlutverki í upplýsinga-
gjöf í framtíðinni og foreldrar og iðk-
endur eiga að geta leitað allra upplýsinga
sem þeir þurfa á heimasíðu Vals.
Segja má að mín framtíðarsýn fyrir Val
endurspeglist í þeim tillögum sem liggja
fyrir eftir þá stefnumótunvinnu sem ráð-
gjafarfyrirtækið Capacent aðstoðaði okk-
ur við og hefur verið kynnt innan félags-
ins. Margir Valsmenn komu að þessari
vinnu og ég er sérlega ánægður með nið-
urstöðurnar.
Við erum með hæfan framkvæmda-
stjóra, Dag Sigurðsson til að hrinda þess-
um tillögum í framkvæmd. Dagur býr
yfir leiðtogahæfileikum, hefur brennandi
áhuga á íþróttum, þekkir leikmannamál
og kann að vinna með fólki. Ekki spillir
fyrir að hann er með eldrautt Valsblóð í
æðum. Hann hefur byggt upp gott teymi
starfsmanna, sem allir vinna fyrir Val af
eldmóði.
Hvenær verður hafíst handa við knatt-
húsið?
„Núna er verið að vinna að kostnaðar-
áætlun og rekstaraáætlun knatthúss auk
stúkubyggingar fyrir 1800 áhorfendur
fyrir keppnisvöllinn. Til viðbótar hefur
verið ákveðið að setja bflakjallara undir
húsið sem mun rúma 300 bfla. Hann mun
nýtast Val og atvinnuhúsnæðinu á lóð
Valsmanna hf, sem mun rísa við Flug-
vallarveg. Framkvæmdir við knatthúsið
hefjast í lok næsta sumars og er við það
miðað að stúkan verði tilbúin til notkunar
fyrir keppnistimabilið 2009 og knatthús-
ið tilbúið til notkunar haustið 2009.
Samkvæmt samkomulagi við Reykja-
víkurborg eigum við eftir að fá einn
æfingavöll fyrir knattspyrnu að Hlíð-
arenda á ytri mörkum lóðar okkar næst
Tanngarði. Akveðið hefur verið að það
verði gervigrasvöllur. Reynsla af gervi-
grasvöllum í Reykjavík er sú að upphitun
er lítið notuð vegna hlýnandi veðurfars
og aukinheldur verulega kostnaðarsöm í
rekstri. Þvf hefur verið ákveðið að þessi
gervigrasvöllur verði óupphitaður. Þessi
ákvörðun mun gera þennan völl miklu
ódýrari en ella og flýta mjög framkvæmd
hans þannig að við það er miðað að hann
verði tilbúinn til notkunar fyrir haust-
ið 2008. Það er mjög mikilvægt að sam-
hæfa framkvæmdir við knatthúsið og
þennan nýja gervigrasvöll vegna þess að
framkvæmdir við knatthúsið munú leggja
gamla keppnisvöllinn undir sig. Þessi
völlur mun bæta úr brýnni þörf knatt-
spymfólks okkar vegna haust- og vetr-
aræfinga en þeirri þörf verður þó ekki að
fullu mætt fyrr en knatthúsið verður tek-
ið í notkun.
Þegar knatthúsið verður risið hau.st-
ið 2009 verður aðstaða hjá okkur til iðk-
unar knattspyrnu, körfuknattleiks og
handknattleiks með því besta sem gerist
á landinu og þó víðar væri leitað.
Eins og flestir vita var Grímur fyrirliði
meistaraflokks Vals í knattspyrnu síðustu
ár ferilsins og hampaði Islandsmeistara-
titlinum árið 1985. Hann lék rúmlega
300 meistaraflokksleiki fyrir Val og var
jafnan í mjög sigursælu liði og vann fjóra
íslandsmeistaratitla, þrjá bikarmeistara-
titla og tók þátt í fjölmörgum leikjum
með Val í Evrópukeppni á árunum 1974
til 1985. Hvaða augnablik ætli skjóti oft-
ast upp kollinum þegar hugurinn hvarflar
til baka yfir ferilinn.
„Ef það er eitt atvik eða viðburður er
það leikurinn gegn KR að Hlíðarenda
árið 1985 þegar við tryggðum okkur
íslandsmeistaratitilinn með marki með
Gumma Þorbjörns. Allt í kringum þann
leik og að hampa titlinum að Hh'ðarenda
sem fyrirliði var sérlega eftirminnilegt.
Stórkostleg hughrif."
12
Valsblaðið 2007