Valsblaðið - 01.05.2007, Page 29

Valsblaðið - 01.05.2007, Page 29
ar. Snorri vill þó ekki gera mikið úr prakkarastrikunum. „Það sem er mikilvægast í svona hópi er að eyða miklum tíma saman. Hafa pizzu- kvöld og hittast utan boltans og bardúsa eitthvað saman. Hvernig menn vilja svo útfæra það er mönnum í sjálfsvald sett. Það skilar sér á vellinum ef menn eru Ifka vinir utan vallar." 21 árs gamall tók Snorri Steinn stökk- ið og hélt utan í atvinnumennsku. Hann gerði samning við þýska liðið Grosswallstadt til tveggja ára sumarið 2003 og fór svo þaðan til Minden árið 2005. Hann segir að þetta hafi ver- ið réttur tími til að halda utan, jafn- vel þótt hann hafl ekki verið einhver yfirburðamaður hér heima í mörg ár á undan. „Auðvitað var það hár veggur að klífa að fara í þýsku deildina og ég hljóp harka- lega á hann. Það skipti þó miklu máli að fara til rétts félags og Grosswallstadt var rétt lið fyrir mig. Þetta er góður kiúbbur og vel staðið að málunum. Svo reyndist Peter Meisinger, þjálfari liðsins, mér vel. Hann sýndi mér mikið traust jafnvel þótt ég væri ekki alltaf að spila eins og eng- ill. Ég vildi auka ábyrgð mína í landslið- inu og ég taldi að möguleikar mínir væru betri ef ég væri að spila í Þýskalandi." Snorri Steinn bætir við að hann hafi líka verið vel undirbúinn und- ir atvinnumennskuna úr Val því hann hafi stefnt að þessu frá því í 6. flokki og hlotið góða skóiun að Hlíðarenda. Auk þess hafði hann þegar tekið þátt í einu stórmóti með iandsliðinu, HM í Portúgal 2003, þótt hann hafi ekki spilað neitt. „Það hjálpaði mér mikið að koma ungur inn í landsliðið. Guðmundur Guðmunds- son hafði þessa stefnu að velja alltaf nokkra framtíðarmenn í hópinn, aðallega til að vera battar á æfingum. Þar fékk maður þó að æfa með leikmönnum á borð við Dag Sigurðsson, Patrek Jóhannesson, Ólaf Stefánsson og Guðmund Hrafn- kelsson. Maður þarf að vera úr steini til læra ekkert af slíkri reynslu og það hjálp- aði mér tvímælalaust að fá að vera fluga á vegg á þessum tima. Ég sá aðallega um að bera boltana og tölvugræjumar en þetta fór allt í reynslubankann." Margt vatn hefur runnið til sjávar síð- an og Snorri Steinn er núna einn af burðarásum landsliðsins. Mörgum er Snorri Steinn í landsleik við Spánverja, 2007. í fersku minni mörkin 15 sem hann skoraði í háspennuleiknum við Dani á HM í janúar síðastliðnum. Ljóst er að forráðamönnum dönsku meist- aranna, GOG/Svendborg, fannst mik- ið til frammistöðu hans koma því hann samdi við liðið til þriggja ára skömmu eftir HM. „Eftir fyrra árið í Minden setti ég mér það markmið að komast í lið sem væri í toppbaráttunni í sinni deild, því botnbar- áttan sem ég stóð í í Minden er afar lýj- andi. Það skipti ekki öllu máli í hvaða landi það væri því ég vildi einfaldlega takast á við það að vera í titilbaráttu og pressuna sem því fylgir. Mér leist vel á tilboðið frá GOG og sló til þótt það hafi verið ákveðin áhætta að fara úr sterkustu deild heims. Svo þróaðist það þannig að ég er að spila í Meistaradeildinni og við erum komnir áfram í milliriðlana þar. Ég sé alls ekki eftir því að hafa farið frá Þýskalandi." Snorri Steinn stefnir þó enn að því að komast að hjá toppliði á Spáni eða í Þýskalandi. „Það hefur ekkert breyst varðandi mín framtíðarplön. Ég stefni alltaf hærra en eins og staðan er í dag líður mér mjög vel í Danmörku og er ekki á leið héð- an næstu 3 árin en hvað gerist eftir það er óljóst núna. Svo langar mig að vinna medalíu með landsliðinu. Við erum með sterkan hóp ef allir eru heilir og við erum nógu sterkir núna til að ná árangri ef allt gengur upp hjá okkur.“ Aðspurður um hvaða ráð hann hafi fyrir unga Valsmenn sem stefna á topp- inn stendur ekki á svari hjá Snorra. „Æfa meira en hinir. Þetta er ráð sem pabbi gaf mér fyrir langa löngu og ég hef farið eftir því og veit að aðrir leik- menn sem hafa náð langt fylgja þessari einföldu reglu. Hafa hausinn vandlega skrúfaðan á axlirnar og missa ekki sjón- ar á takmarkinu.“ Að lokum spurðum við Snorra hvort einhver öfund hafi gert vart við sig í garð Markúsar Mána Michaelssonar sem lyfti íslandsbikarnum í vor sem fyrirliði Vals en þeir félagar léku sam- an upp alla yngri flokkana hjá Val og með meistaraflokki í mörg ár? „Nei, ekki öfund. Það svíður samt sárt að hafa misst af titlinum á sínum tíma og ég er sennilega einn fárra uppalinna Vals- manna sem hafa aldrei orðið íslands- meistarar. Það sveið samt jafn mikið hjá Markúsi á sínum tíma að verða ekki meistari og ég gleðst innilega með hon- um og öðrum leikmönnum að hafa náð titlinum í vor. Ég var í beinu sambandi við Ásvelli á meðan á leiknum stóð í vor og náði svo bikarafhendingunni á netinu. Ég er þó ekkert að brenna inni á tíma og draumurinn er að koma heim og landa þeim stóra, helst sem spilandi þjálf- ari. Það verður þó að bíða um sinn en umsókn minni um þjálfarastarfið er samt hér komið formlega á framfæri.“ Við þökkum Snorra Steini kærlega fyrir spjallið og óskum honum og hans stækkandi fjölskyldu alls hins besta í framtíðinni. Valsblaðið 2007 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.