Valsblaðið - 01.05.2007, Side 46

Valsblaðið - 01.05.2007, Side 46
:S* Neyðarkall frá formanni, körfubolti og Kjötskrokkar Svo kom neyðarkall. Það vantaði for- mann körfuknattleiksdeildar Vals. Körfu- boltinn var í einhverri kreppu. Berg- ur Guðnason var formaður Vals og bað mig um að taka þetta að mér. Ég var líka á fullu í meistaraflokksráði knatt- spyrnudeildar og með mikinn rekstur í mínu fyrirtæki. Reynsla mín er sú að þeir sem hafa mikið að gera koma mestu í framkvæmd. Ég fékk stráka úr fótbolt- anum með mér í þetta, Bjarna Bjarna., Grím, Helga Magg., Baldvin Jóns., Lalla Ögmunds. og fleiri. Þetta gekk alveg óhemju vel. Ég var formaður þrjú tíma- bil. Annað tímabilið var afburða ár, við unnum öll fjögur mótin sem keppt var í. Ég hef alltaf reynt í störfum mínum að koma með nýjungar, mér finnst gam- an að svoleiðis brölti, brydda upp á ein- hverju. Þetta fylgir mér svolítið að reyna gera hlutina öðruvisi en aðrir. Ég er til dæmis sá fyrsti hér á landi sem notaði spjöld með númerum leikmanna þegar leikmönnum er skipt útaf í leikjum. Ég var liðsstjóri meistaraflokks eftir að ég hætti að spila og fannst ekkert sniðugt að vera að öskra inn á völlinn hver ætti að koma útaf. Ég fékk mér bara spjöld og skrifaði á þau númer leikmanna. Auðvit- að hafði ég séð þetta einhvers staðar en var sá fyrsti hér á landi. Þegar ég var formaður körfuknattleiks- deildarinar vildi ég auðvitað fá fólk á körfuboltaleikina. Við vildum hafa eitt- hvað sniðugt í gangi í hálfleik. Úr varð að við vorum með hittnikeppni. Ahorf- endur áttu að reyna að hitta í körfuna frá miðju. Sá sem hitti fékk kjötskrokk. Kjötskrokkurinn var á statífi merktu Kjötmiðstöðinni hans Hrafns Bachmanns og var dreginn fram á gólfið í hálfleik. Reyndar ekki alltaf sami kjötskrokk- urinn. Svo var það að Valur átti að spila bikarúrslitaleik við KR í Laugardalshöll- inni. Við Baldvin Jónsson fórum til fund- ar við Helga Agústsson núverandi sendi- herra og Einar Bollason. Ég stakk upp á því við þá að hafa kjötskrokkakeppnina í hálfleik og fannst þeim það hið besta mál. Sem og ég segi þetta, mundi ég eftir því að skrokkurinn frá síðasta leik, sem ekki hafði gengið út, hafði gleymst úti í bíl. Einhverjir dagar höfðu liðið. Það var auðvitað hávetur svo kannski ekki stór- hætta á ferðum en ég keyrði í ofboði með skrokkinn inn í Kjötmiðstöð til Krumma og hljóp með hann niður á skrifstofu. Krummi tók þessum tíðindum með hægð og sagði; blessaður Dóri minn, ekkert mál, ég nota hann bara í hakkið. Ég hafði samt ekki körfuboltann í mér. Fyrir mér vakti auðvitað að gera félaginu gagn. Maður verður að alast upp í íþróttinni. Einu sinni ætlaði ég í fullri alvöru að reyna að koma Jóni Páli, sterkasta manni heims í ameríska fótboltann, Jón hafði sjálfur á því áhuga. Jón Páll var nefni- lega mikill íþróttamaður, ekki bara sterk- ur. Ég talaði um þetta við John Elway úr Denver Broncos, einn frægasta ruðning- skappa allra tíma, sem ég kynntist vegna starfa minna fyrir Henson sport USA. John sagði bara þvert nei því þú dettur ekkert inní svona íþrótt þótt þú sért sterk- ur og fljótur að hlaupa. Þú þarft að skilja íþróttina frá öllum hliðum. Herrakvöld, KSÍ-klúbburinn og heiðurskross KSI Það er engin spurning að ég er upphafs- maður að þessum herrakvöldum eins og þau eru í dag. Ég var að hugsa um fjár- öflunarleið fyrir körfuna þegar ég fékk þessa hugmynd. Kalla saman gamla félaga til að skemmta sér eitt kvöld og afla um leið peninga. Þetta gekk svo vel að ég hvatti önnur félög til að fara út í þetta því ég hef alla tíð verið í mikl- um tengslum við fjölmörg félög. Þetta var árið 1982 þá var fyrsta herrakvöld- ið haldið í sal í Síðumúla og var það nú kannski ekki til eftirbreytni en skilaði samt góðum tekjum. Ég er upphafsmaður að KSÍ-klúbbnum sennilega 1983 eða 1984. Upphaflega sá ég þetta sem fjárhagslegan stuðning við KSÍ. Þetta gekk í nokkur ár og lagðist svo útaf. Þórir Jónsson og Hörður Hilm- arsson endurreistu síðan klúbbinn. Þessi hópur kemur svo saman í tengslum við landsleiki. Ég hef verið formaður býsna lengi en aðrir formenn hafa verið Sveinn Jónsson KR og Ríkharður Jónsson frá Akranesi. í sumar hlaut ég æðsta heið- ursmerki KSÍ, heiðurskrossinn fyrir störf að knattspymumálum. Það fannst mér gríðarlegur heiður. Landsliðið og íslensk knattspyrna Ég hef mikinn áhuga á landsliðinu og skoðanir á því hvernig íþróttin á að þró- ast. Nú er til dæmis nýbúið að ráða Ola Jó og Pétur sem landsliðsþjálfara. Við styðjum að sjálfsögðu við bakið á þeim. Vonandi gengur þeim vel. Mín skoðun er hins vegar sú að þegar næst verði hug- að að ráðningu landsliðsþjálfara sleppi stjórn KSÍ ekki því tækifæri, að hlusta að minnsta kosti eftir hverjir úti í hin- um stóra heimi væru tilbúnir að taka að sér starfið. Mér finnst skrýtið hvemig við förum úr einum öfgunum í aðra ef litið er til þjálfaramála. Stundum hafa allir þjálf- arar í efstu deild verið útlendingar og stundum allir íslendingar. Þessi heimur hefur gjörbreyst. Það er eins og við get- um ekki farið einhvem meðalveg í þessu. Við verðum að hafa víðsýnið til að líta í kringum okkur. Hér fara sömu þjálf- aramir nokkuð skipulega á milli sömu liðanna. Á þessum ámm ljúka margir alþjóða stjörnuleikmenn ferlinum, moldríkir menn. Margir þeirra vilja halda áfram að starfa í íþróttinni þótt þeir þurfi svo sem 46 Valsblaðið 2007
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.