Valsblaðið - 01.05.2007, Side 67
Hluti stjómar Valsmanna hf 2007. Frá vinstri: Karl Axelsson, Brynjar Harðarson,
Ingólfur Friðjónsson, Theodór Halldórsson og Guðni Bergsson. Grimur Sœmundsen
formaður Vals og fyrrverandi stjórnarmaður Valsmanna krýpur fyrir framan.
Þetta var á þeim árum þegar Mulnings-
vélin var komin á síðustu metrana. Við
héldum mjög frægan fund í gamla fjós-
inu, en þar var tekin sú ákvörðun að ein-
beita sér að Evrópukeppninni. Þetta var
gífurlegt ævintýri að komast áfram bæði
á móti Drott og Atletico Madrid með því
að skora fleiri mörk á útivelli. Þetta end-
aði sem ótrúlegt ævintýri, við komumst
alla leið í úrslitaleikinn og það hefur ekk-
ert íslenskt félagslið leikið eftir í karla-
flokki,“ segir Brynjar.
Svíþjóðarárin í atvinnumennsku
„Eg átti örugglega mín allra bestu hand-
boltaár í Svíþjóð. Ég spilaði fyrst með
Lugi í Lundi sem margir frægir kapp-
ar höfðu leikið með. Ég var alveg ákveð-
inn í því eftir menntaskóla að sameina
nám og handbolta, en á þessum tíma fóru
margir af jafnöldrum mínum til Þýska-
lands. Ég skoðaði þann möguleika en sá
að það væri mjög erfitt að spila handbolta
í Þýskalandi með námi. Það var mjög
sjaldgæft að geta verið í góðu liði sam-
hliða háskólanámi. Þannig að ég einbeitti
mér bara að Svíþjóð. Hilmar Bjöms-
son þjálfari hjá Val hjálpaði mér að kom-
ast út. Ég byrjaði í hagfræði í Lundi og
var þar í 5 ár. Fyrsta árið spilaði ég með
Lugi, síðan fór ég til Olympia í Hels-
ingborg og lék þar í 4 ár og var meðal
annars spilandi þjálfari í 2 ár. Þetta var
skemmtilegur en jafnframt erfiður tími,
það var töluvert erfitt að stunda samhliða
krefjandi háskólanám og atvinnumensku
í handbolta auk þess sem ég eignaðist tvö
fyrstu bömin mín þarna úti. Þetta krafðist
því mikillar skipulagningar og aga og þar
bjó ég vel að því uppheldi sem ég hafði
fengið á Hlíðarenda með vilja og metn-
að að leiðarljósi. Mér gekk líka mjög vel
í handboltanum þama úti, eftir að hafa
gengið í gegnum ótrúlegt meiðslatíma-
bil síðustu árin heima. Það var líka gam-
an að kynnast sænska íþróttaandanum og
hann átti vel við mig.
Við íslendingar get-
um lært mikið af hug-
arfari Svia, sér í lagi
því sem snýr að íþrótt-
um og tiltrú á sjálfum
sér. Árið 1989 ákvað
ég að flytja heim, var
reynar þá kominn í
framhaldsnám. Þá var
ég í raun og vem nán-
ast sóttur heim þar
sem margir leikmenn
fóm um þetta leyti í
atvinnumennsku eða
hættu. Það var gam-
an að koma heim og
okkur gekk mjög vel
þrátt fyrir að sjö leik-
menn hefðu hætt eða
farið í atvinnumennsku. Við urðum bik-
armeistarar það ár og spiluðum ótrú-
lega minnisstæðan leik við FH um tit-
ilinn í Kaplakrika sem var vígður það ár.
Það munaði bara hársbreidd að við yrð-
um íslandsmeistarar það ár en við urð-
um Islandsmeistarar árið eftir, 1991. Síð-
an lagði ég skóna á hilluna árið 1992
m.a. vegna þrálátra meiðsla en ég var að
flestu leyti sáttur við handboltaferilinn,"
segir Brynjar.
Hunmyndin að stofnun Valsmanna hf
hefur verið gæfuspor
Valsmenn hf. eru almenningshlutafélag,
sem stofnað var af 424 hluthöfum árið
1999. Tilgangur félagsins var að vera
fjárhagslegur stuðningsaðili Knattspymu-
félagins Vals. Fyrstu stjórn félagsins
skipuðu Brynjar Harðarson, stjórnarfor-
maður, Helgi Magnússon, varaformaður,
Elisar Hergeirsson ritari, Stefán Gunn-
arsson, Friðrik Sophusson, Kjartan
Gunnarsson og Örn Gústafsson. Stofnfé
félagsins var kr. 42.000.000. Félagið hef-
ur sett upp heimasíðu með upplýsingum
um starfssemina, valsmenn.is. Brynjar
hefur verið stjórnarformaður Valsmanna
hf. frá upphafi og sér fyrir sér að Vals-
menn hf. verði til um ókomna framtíð
sem fjárhagslegur stuðingsaðili Vals.
Brynjar telur það hafa verið eitt af
gæfusporunum hjá Val að stofna Vals-
menn hf. til að vera fjárhagslegur bak-
hjarl félagsins. Ýmsir í forystusveit Vals
vildu árið 1999 stofna hlutafélag sem
átti að vera styrktarfélag fyrir Val svip-
að því sem gert var hjá KR-sport. Grím-
ur Sæmundsen var þar fremstur í flokki
og hann kom til mín og bað mig að leiða
þá vinnu sem þyrfti að fara fram til að
stofna félagið og veita því síðan for-
ystu. Aðferðafræðin var sú að það var
myndaður hópur sem var tilbúinn til að
Brynjar í góðra vina hópi á leik Vals og Celje Lasko í
Meistaradeildinni íhandbolta 2007.
Valsblaðið 2007
67