Valsblaðið - 01.05.2007, Qupperneq 68
Bikarmeistarar Vals íhandbolta 1990. Efri röð frá vinstri: Pe'tur Guðmundsson liðsstjóri, Brynjar Harðarson, Jtílíus Gunnarsson,
Finnur Jóhannsson, Einar Þorvarðarson, Jón Kristjánsson, Ingi Rafii Jónsson, Þorbjörn Jensson þjálfari og Stefán Carlsson. Neðri
röð frá vinstri: Svanur Sigurðsson, Sigurjón Sigurðsson, Arni Þór Sigurðsson, Jakob Sigurðsson, Páll Guðnason, Valdimar Gríms-
son og Gísli Oskarsson.
taka nokkuð stóran hlut og vera kjölfest-
an, með frá hálfri milljón upp í millj-
ón kr. á hlut. Tímapunkturinn var ein-
staklega góður og það skapaðist strax í
byrjun mikill meðbyr og áhugi. Það hafi
fljótlega verið komnar 10-15 milljónir
kr. Þetta endaði með því að rúmlega 400
manns skráðu sig inn í hluthafahópinn
með 43 milljónir kr. sem stofnfé. Brynj-
ar segir að vinnan við hlutafjársöfnunina
hafi verið ótrúlega skemmtileg og mikill
Valshugur í mönnum.
„Við mörkuðum strax þá stefnu að
þessum peningum yrði ekki eytt, við
myndum ekki styrkja félagið meira en
því sem næmi ávöxtuninni af stofnfénu.
Það hefur gengið eftir. Fyrsta fjárfesting
sem við fórum í var stóra skiltið á Hlíð-
arenda. Það kostaði milli 10 og 11 millj-
ónir kr. á sínum tíma og töluverð fjárfest-
ing og hefur skilað miklum peningum
allar götur síðan. Siðan ávöxtuðum við
stofnféð eins og hvert annað fjárfesting-
arfélag. Fyrsta kveikjan að því að stofna
félagið var sú að menn ætluðu að kaupa
leikmenn. Það var í raun og veru grund-
vallarmálið. Okkur auðnaðist hins veg-
ar strax í byrjun að setja hlutafélaginu
góðar og heilbrigðar vinnureglur. Þar
var meginreglan sú að við skiptum okk-
ur ekki af stjórnun Vals eða þeim ákvörð-
unum sem þar eru teknar heldur látum
stjórnum deilda og félags um það. Þá
strax varð þetta á annan veg en t.d. hjá
KR-sport. Við erum bara sjálfstæður fjár-
hagslegur aðili sem er mjög mikilvægt,"
segir Brynjar.
Hámarksnýting Hlíðarenda í þágu
Vals
„Fljótlega eftir stofun Valsmanna hf sá ég
fyrir mér að stóra tækifæri Valsmanna hf.
lægi í Hlíðarendajörðinni. Það sem lagði
grunnin var samningur sem Valur og
Reykjavíkurborg gerðu árið 2001. Þá var
ákveðið að breyta landnýtingu á Hlíð-
arenda. Akveðið var að taka það land
sem Valur átti og var ónýtt undir aðra
notkun. Af tæplega 8 hekturum nýtti Val-
ur aldrei nema kannski 2-3 hektara. Sumt
af því voru og eru enn moldarhaugar og
annað ónýtanlegt vegna flugvallarins. Þá
var ákveðið að selja landið fyrir eins hátt
verð og hægt var og nýta fjármunina til
að byggja upp íþróttaaðstöðuna og síðan
myndi Reykjavíkurborg greiða það sem
upp á vantaði. Þegar þessir samning-
ar eru gerðir árið 2001, þá héldu menn
68
Valsblaðið 2007