Valsblaðið - 01.05.2007, Side 75
Meistaraflokkur kvenna i körfubolta 2007-2008: Efri röð frá vinstri: Hörður Gunnarsson varaformaður Vals, Grímur Sœmundsen
formaður Vals, Elinborg Guðnadóttir, Anna Jóna Kjartansdóttir, Kristjana Björk Magnúsdóttir, Signý Hermansdóttir, Hafdis Elt'n
Helgadóttir, Lovt'sa Guðmundsdóttir, Þórunn Bjarnadóttir, Hanna Kjartansdóttir, Robert Hodgson þjálfari. Fremri röð frá vinstri:
Freyja Fanndal Sigurjónsdóttir, Guðrún Sesselja Baldursdóttir, Berglind Karen Ingvarsdóttir, Stella Rún Kristjánsdóttir, Tinna Björk
Sigmundsdóttir, Cecelia Steinsen og Eli'sabet Bjarnadóttir liðsstjóri. Ljósm. Guðni Karl.
Bjartir tímar framundan í
körfunni og meistaraflokkur
kvenna endurvakinn
Ársskýrsla körfuknattleiksdeildar árið 2007
Árið 2007 hefur verið mjög viðburða-
ríkt ár hjá Val og aðstöðuleysi félags-
ins verið mikil áskorun fyrir körfuknatt-
leiksdeildina. Stofnun meistaraflokks
kvenna, nokkrar mínútur frá sæti í efstu
deild í meistaraflokki karla og nýr þjálf-
ari meistaraflokkanna er það sem stend-
ur sérstaklega upp úr á þessu ári. Það er
mjög bjart framundan en leikmenn, þjálf-
arar og allir sem koma að deildinni hafa
mjög mikinn metnað fyrir félagið.
Stjórn körfuknattleiksdeildar Vals
2006-2007:
Gunnar Zoéga ,formaður
Torfi Magnússon, varaformaður
Hreiðar Þórðarson
Lárus Blöndal
Sveinn Zoéga
Guðmundur Guðjónsson
Einhverjar breytingar verða á stjóm fyr-
ir þetta tímabil meðal annars vegna breyt-
inga á skipulagi félagsins. Þegar þetta er
skráð hefur aðalfundur félagsins ekki farið
fram og því ný stjóm ekki listuð upp hér.
Meistarflokkur karla
Eggert Maríuson þjálfaði meistaraflokk
karla annað tímabil sitt. Það urðu ekki
miklar breytingar á liðinu en helst ber að
nefna að tveir erlendir leikmenn léku með
liðinu, Zach Ingles og Matteo Cavallini.
Þetta var fjórða tímabilið í iröð sem lið-
ið leikur í 1. deildinni og munaði ekki
miklu að liðinu tækist að komast upp í
efstu deild, en í úrslitaeinvígi um sæti í
efstu deild á milli Vals og Stjörnunnar,
vann Valur fyrsta leikinn en Stjaman klár-
aði næstu tvo leiki sem tryggði þeim sæti
í efstu deild.
Eftir tfmabilið var því enn einu sinni
komið að undirbúningi fyrir keppni í 1.
deild og ljóst að miklar breytingar yrðu á
liðinu. Eggert Maríuson hélt ekki áfram
með liðið og þakkar félagið Eggerti fyr-
ir gott samstarf.
Valsblaðiö 2007
75