Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 87

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 87
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 87 aðalbJörg maría ólafsdóttir að rannsókninni. Með því var greint á hvern hátt þeir notuðu tæknina, sem stuðning við nám, útvíkkun náms eða til umbreytingar á innihaldi eða vinnuferli námsins. niðurstöður og umræður Kennararnir sex sem tóku þátt í rannsókninni voru almennt mjög jákvæðir varðandi notkun tölvu- og upplýsingatækninnar í myndlist og myndlistarkennslu. Skoðun þeirra allra var að tæknin væri spennandi miðill og gæfi marga möguleika og út- færslur í kennslunni sem önnur verkfæri gætu ekki gefið. Þess ber þó að geta að rann- sóknin er byggð á viðtölum við sex myndlistarkennara og niðurstöður hennar geta á engan hátt gilt um kennslu annarra kennara sem kenna myndlist. Hér verða nokkur atriði úr niðurstöðum rannsóknarinnar rakin. Aðstæður til notkunar upplýsingatækni í myndlistarkennslu Það var sameiginlegt skólunum sex að ein nettengd tölva var í myndlistarstofunum. Í sumum þeirra var einnig fjölbreyttari tækjakostur til notkunar tölvu- og upplýsinga- tækni í kennslu, svo sem prentari, skanni, skjávarpi, stafræn myndavél, og fleiri áhöld sem ekki tengjast tækninni sérstaklega, eins og myndvarpi og ljósritunarvél. Skipulag kennslunnar almennt byggðist á notkun tölvuvera og einnig voru dæmi um að tölvur væru á bókasöfnum skólanna til afnota fyrir nemendur. Kennarar eru flestir sammála um það að tölvuver henti ekki vel í myndlistar kennslu því panta þurfi tíma, oft með miklum fyrirvara, til að komast þar að. Kennarar geta því ekki farið með nemendur í tölvuver þegar það hentar í kennslunni vegna þess að hver bekkur hefur ákveðna tíma á stundaskrá í myndlist og sá tími er ekki endilega laus í tölvuveri. Sama skipulag virðist gilda um tölvurnar á bókasafni skólanna þar sem það á við. Einn kennarinn telur þetta vera eina af ástæðum þess að hann hafi hingað til ekki haft neina aðstöðu til að láta nemendur vinna í tölvum þó að hann geti alveg hugsað sér að gera það stundum. Allir myndlistarkennararnir eru sammála um að það sé æskilegt að hafa tölvur inni í stofunni til afnota fyrir nemendur og sumir þeirra telja að notkun upplýsingatækni í myndlistarkennslu standi í raun og falli með því. En þeir eru ekki sammála um hve margar tölvurnar þyrftu að vera og nefna allt frá einni upp í nokkrar. Í myndlistarkennslunni er því ekki sérlega gott aðgengi að tækninni. Prater (2001) telur þetta atriði vera eina af helstu ástæðunum fyrir því að illa gangi að innleiða tæknina í myndlistarkennslu. Ein tölva í kennslustofu sé ekki líkleg til að skapa við- unandi aðgengi að tækninni, slíkt leiði ekki til markvissrar notkunar nemenda (Norris og Soloway, 2003). Þetta kemur heim og saman við niðurstöður fleiri rannsókna á notkun tækninnar í kennslu (Davies, Franks, Loveless, Mosdell og Wheeler, 2003). Slæmt aðgengi að tölvum getur því augljóslega haft áhrif á notkun tækninnar í mynd- listarkennslu (Norris o.fl., 2003). En fjöldi tölva þarf á hinn bóginn ekki að vera ráðandi um það hvort tæknin er notuð í kennslustundum því að ekki er víst að markviss notkun tækninnar væri meiri þó að fleiri tölvur væru í kennslustofunni (Prater, 2001).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.