Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Blaðsíða 70
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/200970
„látUm ÞÚsUnd blóm blómstra“
öndvegi og á samvinnu og traust. Segja má að stefna skóla birtist í nokkrum tilfellum í
sýn þeirra, einkunnarorðum eða svonefndu leiðarljósi. Dæmi um einkunnarorð skóla
eru „virðing – vinátta – víðsýni“. Hjá öðrum eru þau: „ástundun – ábyrgð – árangur –
ánægja“. Og: „Látum þúsund blóm blómstra“.
b) Skóli án aðgreiningar
Skoðað var hvort skólar notuðu orðalagið skóli án aðgreiningar og í ljós kom að aðeins
fjórðungur skólanna notaði það orðalag. Sumir skólar nota þetta orðalag án útskýr-
inga en aðrir skilgreina það nokkuð ítarlega og tiltaka hvernig það er í framkvæmd.
Dæmi um það er úr stefnu skóla þar sem
… unnið [er] eftir hugmyndafræði um skóla án aðgreiningar sbr. stefnu fræðsluyfir-
valda …, grunnskólalögum og aðalnámskrá grunnskóla. Leiðir að því markmiði felast
m.a. í einstaklings / hópamiðuðu námi, sveigjanlegum kennsluháttum, blönduðum
námshópum, samstarfi kennara, fjölbreyttum og sveigjanlegum sérúrræðum og mark-
vissum stuðningi við kennara.
Þarna kemur fram útfærsla á leiðum sem skólinn ætlar að fara til að ná markmiðinu
um skóla án aðgreiningar. Í stefnu eins skóla segir að hann sé: „fjölmenningarskóli
án aðgreiningar sem felst í því að námið er lagað að þörfum nemenda“ og hjá öðrum
segir að „skólinn sé fyrir alla nemendur í hverfinu og án aðgreiningar“. Einn skól-
anna segist leggja áherslu á hugmyndafræði skólastefnunnar skóli án aðgreiningar. Í
stefnu skólans segir: „Sérhver nemandi á rétt á að ganga í sinn heimaskóla, fá kennslu
við hæfi þar sem hæfileikar hans fái að njóta sín og hann sé virtur og viðurkenndur
sem fullgildur meðlimur skólasamfélagsins.“ Hjá þessum skóla kemur fram að „sér-
kennslan sé ein af leiðum skólans til að koma til móts við námsþarfir nemenda sem af
einhverjum orsökum þurfa sérstakan stuðning í námi“ og að hún sé með fjölbreyttum
hætti.
Um það bil þriðjungur grunnskólanna 68 hefur stefnu um einstaklingsmiðað nám.
Algengt er að fjölbreyttar kennsluaðferðir séu nefndar sem leið til að mæta einstak-
lingsþörfum nemenda en nánari útskýringar á því hvernig þetta tvennt tengist vantar
í mörgum tilfellum. Teymisvinna kennara er í nokkrum tilfellum nefnd sem vænleg
leið í einstaklingsmiðuðu námi. Dæmi um stefnu skóla þar sem framangreind atriði
koma fram er eftirfarandi:
… stefnt [er] að einstaklingsmiðuðu námi sem tekur mið af fjölbreyttum hæfileikum
nemenda. Í þróun eru kennsluhættir sem miða í átt að einstaklingsmiðuðu námi. Teym-
iskennsla / samkennsla mun smám saman taka við af hefðbundinni bekkjarkennslu.
Nemendur læra að bera aukna ábyrgð á eigin námi undir handleiðslu kennara.
Nokkrir skólar skipta nemendum niður í hópa eftir námslegri getu eða hraða á yfirferð
námsefnis. Enn aðrir hafa tekið upp „sérgreinakennslu þar sem nemendur fá kennslu
hjá kennurum sem hafa sérhæft sig í námsgrein“. Nokkrir skólar leggja áherslu á sam-
kennslu árganga en oftast kemur fram að lögð sé áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega
kennsluhætti en það er þó lítið útskýrt nánar.