Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 102

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 102
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009102 er á um þetta samstarf í lögum beggja skólastiganna. Í gegnum tíðina hefur verið talað um skil milli leikskóla og grunnskóla, en hugtakið tengsl er að ryðja sér til rúms í stað- inn og tel ég það réttnefni miðað við þróunina s.l. 20 ár. Áhrif laganna í átt að samþættingu skólastiganna Margt miðar að því að tengja skólastigin saman, allt frá leikskóla til háskóla, eins og það að menntamálaráðherra á að gera Alþingi grein fyrir framkvæmd skólastarfs leik-, grunn-, framhalds- og háskóla á þriggja ára fresti. Áður var ekki gert ráð fyrir leikskól- anum í viðkomandi greinargerð til Alþingis. Sprotasjóður er einn sjóður fyrir öll þrjú skólastigin, þ.e. fyrir leik-, grunn- og fram- haldsskóla, og er hann í umsjón menntamálaráðuneytis. Hann styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá og stuðlar að markvissum tengslum leik,- grunn- og framhaldsskóla. Nýtt ákvæði um þróunarskóla veitir heimildir til að taka upp nýbreytni í leikskóla- starfi með því að víkja frá einstökum ákvæðum laganna og aðalnámskrá. Er hér byggt á sambærilegri heimild um tilraunaskóla og hefur verið í lögum um grunnskóla. Heimildarákvæði er fyrir samrekstri leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla undir stjórn eins skólastjóra sem annaðhvort skal hafa leyfisbréf sem leikskólakennari eða grunnskólakennari. Markmiðið með heimildarákvæðinu er að auðvelda fámennum sveitarfélögum að reka þessi skólastig saman, en lögin koma ekki í veg fyrir að þetta sé gert í stærri sveitarfélögum. Ákveðið var eftir innleiðingu nýrra laga um leikskóla, grunnskóla og framhalds- skóla að endurskoða aðalnámskrár viðkomandi skólastiga og byggja á sameiginlegri sýn. Vinnan er hafin og í námskránum á að birtast sú nýja menntastefna sem löggjöfin markar. Hægt er að fylgjast með framvindu endurskoðunarinnar á www.nymennta- stefna.is, en stefnt er að útgáfu nýrra almennra hluta aðalnámskráa grunnskóla, fram- haldsskóla og aðalnámskrár leikskóla árið 2010. lokaorð Hér hefur verið stiklað á stóru enda af nógu að taka, en þó má segja að lögin frá 1991 (Lög um leikskóla, 1991) og 1994 (Lög um leikskóla, 1994) hafi markað ákveðin tímamót varðandi leikskólamálaflokkinn. Þá voru m.a. lögfest heitin leikskóli og leik- skólakennari og kveðið á um að allir sem starfi við uppeldi og menntun í leikskóla skuli hafa leikskólakennaramenntun, en heimild gefin til að ráða aðra ef ekki fengjust leikskólakennarar til starfa. Í þessu samhengi vil ég í lokin geta nýmælis sem ég tel að eigi eftir að hafa gífurleg áhrif í þá átt að efla og styrkja faglegt starf leikskólanna um alla framtíð. Það er ákvæði nýrra menntunarlaga þess efnis að minnst tveir þriðju hlutar stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna skuli teljast til stöðugilda leikskólakennara. Gert er ráð fyrir því að sveitarfélög geti fastráðið í 1/3 hluta stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í hverjum leikskóla starfslið með aðra menntun en leikskólakenn- aramenntun. helstU nýmæli í lögUm Um leikskóla og áhrif Þeirra á leikskólastarfið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.