Búnaðarrit - 01.01.1971, Blaðsíða 8
2
BÚNAÐARRIT
farandi skýrslu. 1 skýrslum starfsmanna, sem birtar eru
sérstaklega hér á eftir, kemur nánar fram verkaskipt-
ing þeirra, og að hvaða verkefnum þeir unnu sérstaklega
á árinu.
1. Halldór Púlsson, búnaðarmálastjóri. Búnaðarmála-
stjóri er framkvæmdastjóri félagsins, stjórnar öllum
starfsgreinum þess í umhoði félagsstjómar og situr
stjórnarfundi. Hann er ritstjóri Búnaðarritsins.
2. Gunnar Árnason, gjaldkeri. Hann gegnir einnig skrif-
stofustjórastarfi ásamt búnaðannálastjóra.
3. Björn Bjarnarson, jarðræktarráðunautur.
4. Jónas Jónsson, jarðræktarráðunautur.
5. Agnar GuSnason, fóðurræktarráðunautur. Hann er
einnig ritstjóri Handhókar bænda.
6. Óli Valur Hansson, garðyrkjuráðunautur. Hann var
meðritstjóri Freys árið 1970.
7. Axel V. Magnússon, ylræktarráðunautur.
8. Ólafur E. Stefánsson, nautgriparæktarráðunautur.
9. Jóhannes Eiríhsson, nautgriparæktarráðunautur.
10. Árni G. Pétursson, sauðfjárræktarráðunautur.
11. Sveinn Hallgrímsson, sauðfjárræktarráðunautur.
12. Gunnar Bjarnason, alifugla- og svínaræktarráðunaut-
ur.
13. Þorkell Bjarnason, lirossaræktarráðunautur.
14. Haraldur Árnason, verkfæraráðunautur. Hann er
einnig framkvæmdastjóri Vélasjóðs og í stjórn hans
ásamt alþingismönnunum Ágústi Þorvaldssyni, bónda
á Brúnastöðum, og Steinþóri Gestssyni, bónda á Hæli,
sem er formaður stjómarinnar.
15. Magnús Sigsteinsson, bygginga- og bútækniráðunaut-
ur.
16. Gísli Kristjánsson er annar ritstjóri og ábyrgðarmað-
ur Freys, en útgáfunefnd skipa Einar Ólafsson, bóndi,
Lækjarhvammi, Pálmi Einarsson, fyrrverandi land-
nám88tjóri, og Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóri.