Fréttablaðið - 13.02.2010, Side 56
6 fjölskyldan
saman
meira gaman ...
Grímubúninga á börn má fá í góðu úrvali, til að mynda í Partýbúðinni, Toys are us, og Rúmfatalagernum svo
dæmi séu tekin. Í Ikea eru selda
grímur og höfuðföt sem nota má
sem hluta af búningi. Heimagerðir
búningar þurfa ekki að vera flókn-
ir. Röndóttur bolur, hnébuxur og
klútur bundinn um haus er til að
mynda ágætis sjóræningjabúning-
ur. Ballettbúning heimasætunnar
má gera að englabúningi með því
að bæta við vængjum. Hvítt lak er
uppistaða að góðum draugabúning
og svo framvegis.
Þar til gerður andlitsfarði setur
punktinn yfir i-ið þegar kemur að
því að klæðast í karakter, en ekki
er víst að þau minnstu séu til í slík-
ar skreytingar. Hér má sjá nokkr-
ar hugmyndir að grímubúningum
fyrir öskudag. -sbt
Englar og indjánar
Í skólum og leikskólum landsins er gjarnan haldið upp á öskudag með grímuballi af ein-
hverri tegund. Búningarnir þurfa ekki að vera flóknir eða kosta mikið.
Skrautleg Draugar og uppvakningar
eru iðulega á ferðinni á öskudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hvernig eru bolluvendir búnir til?
Bolluvendir, grímubúningar og öskupokar eru
fylgifiskar daganna skemmtilegu sem eru í
vændum, bolludags og öskudags. Þeir sem
hafa áhuga á að kynna sér gerð þessara hluta
hafa til þess tækifæri um helgina. Í Gerðubergi
verður haldið fjölskyldunámskeið á morgun milli
tvö og fjögur í gerð öskupoka og bolluvanda í sam-
starfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands, „Bolluv endi er
auðvelt að útbúa en þeir eru gjarnan gerðir úr löngum
prikum og litríkum pappírsræmum. Öskupokar eru litlir skraut-
legir pokar sem dregnir eru saman með þræði ... Verkefnið er við
allra hæfi, auðvelt og skemmtilegt und ir leiðsögn sérfróðra,“ segir
í fréttatilkynningu. Þátttaka er ókeypis og efniskostnaður enginn.
Á Akureyri er áhugasömum boðið að koma og sauma eða breyta
fötum fyrir öskudaginn í Zontasalinn í Aðalstræti 45 í dag á milli
klukkan tíu og fjögur. Á Minjasafninu verður sýnikennsla í ösku-
poka- og bolluvandagerð í dag. Smíðaverkstæðið á Hjalteyrargötu
20 verður opið í dag fyrir þá sem þurfa að smíða fylgihluti í tilefni
af öskudeginum. Þar verða smiðir öllum til aðstoðar.
Einfalt en flott
Ekki þarf meira en
skrautlegan klút og
andlitsmálningu, þá
er babúska stigin
fram á sviðið.
Einn lítill indjáni
Indjánabúningar eru
sívinsælir og flottir.
BOLLA, BOLLA Vatnsdeigsbollur með
sultu og rjóma á milli og súkkulaði ofan
á er mikið góðgæti. Kara mellu búð ing ur
á milli er líka hreinasta afbragð.
N
O
RD
IC
PH
O
TS/G
ETTYIM
A
G
ES
30 hugmyndir um jafningjafræðslu
bárust í nemendasamkeppni SAFT
og Nýherja. Þemavika, fréttablað
og stuttmynd lentu í þremur efstu
sætunum.
Hagaskóli fékk fyrstu verðlaun
í samkeppni um gerð jafningja-
fræðsluefnis sem haldin er meðal
grunn- og framhaldsskólanema.
Efnið á að stuðla að jákvæðri og
öruggri netnotkun. Hagaskóli
hlaut verðlaun fyrir þemaviku um
jákvæða og örugga netnotkun og
voru verðlaunin IdeaPad fartölva
frá Lenovo. Í öðru sæti voru nem-
endur í 9. og 10. bekk Grenivíkur-
skóla fyrir fréttablaðið Dúndur.
Stúlkur úr 10-EKH í Hagaskóla
lentu svo í þriðja sæti fyrir stutt-
myndina Netfíkn og fengu fyrir
vikið 320 GB flakkara.
Besta jafningjafræðslan
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
Öflugar og ódýrar brynjur
frá SIXSIXONE
Motocross hanskar í úrvali
Motocrossbuxur
frá FLY
Herrajakkar
Dömujakkar
Hjálmar í úrvali
Efnilegir stuttmyndasmiðir Stúlkur úr 10-EKH í Hagaskóla lentu í þriðja sæti
fyrir stuttmyndina Netfíkn.