Fréttablaðið - 25.03.2010, Side 6
6 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING
Hvaða úrræði eru í farvatninu með
myntkörfulán fólks hjá eignaleigu-
fyrirtækjum?
NEYTENDAMÁL Samningaviðræð-
ur standa yfir á milli félags-
málaráðherra og eignaleigufyr-
irtækjanna, um að þau taki á sig
afskriftir vegna bílalána. Í ráðu-
neytinu er litið svo á sem forsend-
ur lánasamninganna séu brostn-
ar og bregðast þurfi við stöðunni.
Misbrestur hafi verið á því að
greiðslugeta fólks hafi verið metin
þegar lánin voru veitt. Dæmi eru
um að lán séu 2,5-falt verðgildi
bíla.
Eignaleigurnar sem um ræðir
eru Avant, SP-fjármögnun,
Íslandsbanki og Lýsing. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
hafa þrjú fyrstnefndu fyrirtæk-
in öll lýst sig reiðubúin til samn-
inga og grundvöllur sé fyrir sam-
komulagi við þau. Lýsing hefur
hins vegar verið treg í taumi og
vill engar afskriftir, samkvæmt
heimildum blaðsins.
Hugmyndirnar ganga út frá að
færa myntkörfulán til móts við
íslensk kjör. Við það bætist álag,
10 til 15 prósent, og lánin geti því
orðið 110 til 115 prósent í stað 250
prósent eins og nú eru dæmi um.
Nauðsynlegt þykir að setja eitt-
hvert álag á lánin, annað þykir
ósanngjarnt gagnvart þeim sem
tóku lán í íslenskri mynt. Mynt-
körfulánin báru lægri vexti og í
þeim fólst áhætta sem ekki verð-
ur horft fram hjá. Nú þykja for-
sendurnar brostnar og því verði
að afskrifa hluta lánanna.
Ljóst er að fyrirtækin munu
verða fyrir töluverðu tapi verði
þessi leið farin. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins þykir
það ásættanlegt innan stjórnkerf-
isins. Lítillar forsjálni hafi gætt í
lánveitingum
og fyrirtækin
verði að horfast
í augu við þá
áhættu sem þau
tóku, líkt og
bankarnir hafa
þurft að gera.
Á r n i P á l l
Árnason félags-
málaráðherra
vildi lítið tjá
sig um innihald
viðræðnanna, en sagði þó að þetta
mál yrði að klára. „Við viljum
gjarnan komast að sameiginlegri
niðurstöðu með fyrirtækjunum og
mörg þeirra hafa sýnt samstarfs-
vilja. Þetta er mál sem við verð-
um að klára og við munum höggva
á hnútinn ef ekki næst niðurstaða
með samningum.“
Það er því ljóst að ríkisstjórn-
in er tilbúin til lagasetningar ef
ekki nást samningar. Ólíklegt
er, samkvæmt heimildum blaðs-
ins, að samningar náist. Verði af
lagasetningu megi búast við máls-
höfðun á hendur ríkisvaldinu.
Afskriftir af þessari stærðar-
gráðu hafa áhrif á stöðu fyrir-
tækjanna. Samkvæmt ársreikn-
ingi átti Lýsing, í árslok 2008,
útistandandi 8,9 milljarða hjá
viðskiptavinum sínum vegna
eignaleigusamninga um fasteign-
ir, vélar og tæki og samtals 28,5
milljarða í útlánum og kröfum.
kolbeinn@frettabladid.is
FJÖLDI BÍLA Eignaleigur hafa leyst til sína fjölda bíla eftir efnahagshrunið. Félags-
málaráðherra vill færa myntkörfulán til móts við innlend lán, en þó með 10 til 15
prósenta álagi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
Lýsing tregust til
afskrifta bílalána
Félagsmálaráðherra hefur rætt við eignaleigur um afskriftir niður í 110 til 115
prósent af lánsfjárhæð. Samningsgrundvöllur hefur náðst en Lýsing er treg í
taumi. Ráðherra boðar lagasetningu náist ekki samningar.
ALÞINGI Þingmenn Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar vændu
hvorir aðra um að láta hagsmuni
þeirra sem styrkja flokkana ráða
málflutningi sínum á Alþingi í
gær.
Magnús Orri Schram, Samfylk-
ingu, sagði að ef til vill væri rétt að
skoða tregðu Sjálfstæðisflokksins
til að birta upplýsingar um styrki
til flokksfélaga á landsbyggðinni í
samhengi við andstöðu flokksins
við skötuselslögin.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Sam-
fylkingu, sagði að lög um fjármál
stjórnmálaflokka væru fyrir kjós-
endur svo að þeir gætu metið mál-
flutning flokka og þingmanna í
ljósi þess hverjir styðja þá fjár-
hagslega. „Í Valhöll er trúnaðurinn
enn mestur við þá sem létu fram-
lög af hendi rakna,“ sagði hún.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sagði að fjáröflunin hefði á
sínum tíma verið fyllilega í sam-
ræmi við lög. Styrkir hefðu farið
úr böndum. Því hefðu sjálfstæðis-
menn skilað háum styrkjum frá FL
Group og Landsbankanum. Hún
spurði hvort Samfylkingin ætlaði
ekki að skila styrkjum frá Baugi,
FL Group og tengdum félögum.
Illugi Gunnarsson, Sjálfstæðis-
flokki, spurði hvort skýringarinn-
ar á afstöðu Samfylkingarinnar
til fjölmiðlafrumvarpsins á sínum
tíma væri að leita í því hver var
duglegastur við að styrkja Sam-
fylkinguna á þeim tíma. „Það er
verðugt rannsóknarefni,“ sagði
Illugi. - pg
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur skiptast á skotum um fjármál flokkanna:
Vændu hvor annan um að
vinna í þágu styrktaraðila
ÞÓRUNN SVEIN-
BJARNARDÓTTIR
ÞORGERÐUR K.
GUNNARSDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Lögregla telur
íkveikju líklegustu orsök brunans í
Batteríinu við Hafnarstræti 1 til 3 á
þriðjudagsmorgun. Þetta var fullyrt
í fréttum Ríkisútvarpsins í gær.
Friðrik Smári Björgvinsson, yfir-
maður rannsóknardeildar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, vill
þó ekkert segja um upptökin að svo
stöddu. Rannsóknin standi enn og
þar til niðurstöður liggja að fullu
fyrir sé einungis hægt að geta sér
til um málið.
Talið er að eldurinn hafi kviknað
á annarri hæð hússins. Húsið stór-
skemmdist í brunanum. - sh
Lögregla telur íkveikju líklegustu orsök brunans í Hafnarstræti 1 til 3:
Líklega kveikt í Batteríinu
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
MIKLAR SKEMMDIR Húsið er afar illa
farið eftir brunann, sem virðist hafa
komið upp á annarri hæð.
BANDARÍKIN, AP Gosdrykkja- og
snakkframleiðandinn PepsiCo
ætlar að minnka magn natríums,
sykurs og fitu um allt að fjórð-
ung í helstu vörum sínum á næstu
árum.
Fyrirtækið kynnti næringar-
stefnu sína til næstu tíu ára í gær.
Markmiðið er að minnka viðbætt-
an sykur í gosi um 25 prósent og
mettaða fitu í snakki um 15 pró-
sent. Þá ætlar fyrirtækið að fram-
leiða fleiri vörur sem innihalda
trefjar, ávexti, grænmeti og fitu-
snauðar mjólkurvörur. - bs
Pepsi dregur úr óhollustu:
Minnkar sykur
og fitu í vörum
Var rétt af Samtökum atvinnu-
lífsins að slíta stöðugleikasátt-
málanum?
Já 37,9%
Nei 62,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Munt þú sakna þess að geta séð
nektardans á Íslandi?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
KJÖRKASSINN