Fréttablaðið - 25.03.2010, Síða 16
16 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR
Laugavegi 172-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.isÞjónustuver og þjónustumóttökur: Opið frá 8-17 alla virka daga · Pantanasími 590 5030 · thjonusta@hekla.is. Netspjall á www.hekla.is.
Þú getur treyst því að okkar fólk veit um hvað það er að tala40 ára reynsla auðveldar þér
að finna rétta varahlutinn
Hjá HEKLU hefur þú val milli þess að fá upprunalega varahluti bílaframleiðenda eða ódýrari
hluti annars staðar frá. Jón Magnússon og félagar hafa meira en 40 ára reynslu af því að
finna réttu vara- og aukahlutina fyrir þig á svipstundu. Láttu okkur gera betur við bílinn þinn.
100% þjónustulán án vaxta Val um upprunalega eða ódýrari varahluti Einstök vöruþekking 200.000 vörunúmer
UMHVERFISMÁL Nýr vatnspóstur
hannaður af Sigurði Guðmunds-
syni, listamanni og rithöfundi, var
tekinn formlega í notkun við göngu-
og hjólastíginn í Fossvogsdal fyrir
skömmu. Vatnspósturinn er á
vegum Orkuveitu Reykjavíkur og
stendur vestan við enda Árlands.
Í tilkynningu frá Orkuveitunni
kemur fram að fyrirtækið hafi á
undanförnum árum komið fyrir
útivatnspóstum við Ægisíðu, Skóla-
vörðuholt, Nauthólsvík, Sæbraut, í
Árbæ og við Korpu. Einnig eru
tveir vatnspóstar á Akranesi. Þá
séu hundruð vatnspósta í skólum
og stofnunum borgarinnar. - gar
Þjónusta aukin við útivistarfólk við göngu- og hjólreiðastíg í Fossvogsdal:
Kalt vatn að drekka úr nýju listaverki
VATNSPÓSTUR Í FOSSVOGSDAL Lúðra-
sveit lék og leikskólabörn fylgdust
með þegar formaður umhverfisráðs,
Gísli Marteinn Baldursson, vígði nýja
vatnspóstinn.
FÆREYJAR Allar konur á Lögþingi og
í landstjórn Færeyja hafa samein-
ast um ályktun gegn þingsályktun-
artillögu um að skipta Færeyjum
upp í fimm kjördæmi, en eyjarnar
eru nú eitt kjördæmi.
Konurnar, sem eru úr fjórum
stærstu stjórnmálaflokkunum,
benda á að á lögþinginu séu ein-
ungis fimmtán prósent þingmanna
konur, eða fimm af 33. Þrjár eru
að auki í landsstjórn.
Nær ómögulegt hafi verið fyrir
konur, úr öðrum kjördæmum en
því þéttbýlasta, að komast á þing
áður en þeim var fækkað úr sjö í
eitt árið 2008. Í fjórum gömlu kjör-
dæmanna hafi til að mynda engin
kona nokkurn tíma verið kjörin á
þing.
Það að fjölga kjördæmunum að
nýju vinni gegn hugmyndum um
jöfnuð meðal fulltrúa kvenna og
karla á þingi.
Færeyski Sósíalurinn segir frá
þessu og getur þess einnig að á
sama tíma og Færeyingar ræða
um að fjölga kjördæmum að nýju
ætli Íslendingar að gera allt sitt
land að einu kjördæmi. Einnig er
þess getið að fleiri konur en karlar
standi að íslensku tillögunni. - kóþ
Allar færeyskar konur á þingi og í landstjórn vilja hafa eitt kjördæmi áfram:
Fleiri kjördæmi færri konur
MOTTUR ALLS STAÐAR Þessi áhorfandi
mætti á kappreiðarnar í Celtenham
í Englandi með lítinn hatt og mottu,
sem fylgdi reyndar slörinu.
NORDICPHOTOS/AFP
ALÞINGI Ögmundur Jónasson og
Þuríður Backman, þingmenn
Vinstri grænna, vilja að bannað
verði að auglýsa vörur sem hætt
er við að fólk rugli saman við
áfengar vörur.
Í frumvarpi, sem þau hafa
lagt fyrir Alþingi, kemur fram
að þótt lengi hafi verið bannað
að auglýsa áfengi og einstakar
áfengistegundir hafi seljendur
áfengis í auknum mæli auglýst
óáfenga drykki með sömu
nöfnum og áfenga og í líkum
umbúðum.
Nefnd á vegum Ríkislögreglu-
stjóra hafi lagt til að Íslending-
ar fylgdu fordæmi Norðmanna
og bönnuðu slíkar auglýsingar á
sama hátt og ódulbúnar áfengis-
auglýsingar. - pg
Tveir þingmenn VG:
Vilja herða
áfengisauglýs-
ingabanniðÖRYGGISMÁL Gengið hefur verið frá samningsdrögum á vegum
Siglingaöryggisstofnunar Evr-
ópu (EMSA) um miðlun upplýs-
inga um siglingar milli landa við
N-Atlantshaf. Aðilar að samn-
ingnum auk Íslendinga eru
Norðmenn, Danir, Færeyingar,
Bretar og að öllum líkindum
Kanadamenn.
Upplýsingarnar nýtast við leit
að skipum sem ekki uppfylla
alþjóðlegar kröfur til dæmis
um tilkynningaskyldu, búnað og
siglingaöryggi. Þetta er fjórða
svæðisbundna upplýsingakerfið
sem komið er á fót innan
Evrópu.
Upplýsingaviðmót EMSA um
siglingar hefur fengið nafnið
STIRES og Siglingastofnun
hefur gengið frá samningi við
EMSA um afnot af kerfinu. - shá
Upplýsingamiðlun:
Siglingaöryggi
styrkt frekar
STJÓRNMÁL Íbúasamtök Norðlinga-
holts og Samfylkingarfélagið í
Árbæ fagna bæði ákvörðun borg-
aryfirvalda um að leigja MEST-
húsið svonefnda í Norðlingaholti
undir íþrótta- og tómstundastarf
í hverfinu.
Borgarráð tók ákvörðun þar
um fyrir skömmu.
Í tilkynningu íbúasamtakanna
segir að með samningnum verði
bætt úr aðstöðuleysi barna og
ungmenna í Norðlingaholti en
engin íþróttaaðstaða hafi verið í
hverfinu. - bþs
Borgin leigir MEST-húsið:
Gleði í Norð-
lingaholtinu
FÆREYJAR Allar helstu konur færeyskra
stjórnmála leggjast gegn fjölgun kjör-
dæma. FRÉTTABLAÐIÐ/HÓLMFRÍÐUR