Fréttablaðið - 25.03.2010, Page 24
24 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Í DAG | Persaflóaríkin
ÞORVALDUR GYLFASON
Enginn er eyland. Þjóðir heimsins kaupa í síauknum
mæli vörur og þjónustu hver af
annarri. Að því marki eru eink-
um tvær leiðir færar. Önnur leið-
in er að flytja inn afurðir, sem
útlendingar framleiða heima hjá
sér. Hin leiðin er að flytja inn
aðföng, bæði vélar og verkafólk
og kaupa af því vörur og þjónustu
til heimabrúks eða útflutnings.
Flestar þjóðir gera hvort tveggja
í ýmsum hlutföllum.
Malbik í stað moldroks
Þjóðirnar við sunnanverðan
Persaflóa flytja inn vinnuafl í
stórum stíl. Í Katar eru heima-
menn sjálfir nú aðeins um fjórð-
ungur mannfjöldans. Þrír af
hverjum fjórum íbúum landsins
eru aðfluttir verkamenn frá Fil-
ippseyjum, Indlandi, Nepal og
annars staðar að. Konur eru
innan við fjórðungur lands-
manna, þar eð farandverkamenn-
irnir eru flestir karlar og skilja
fjölskyldur sínar eftir heima.
Hvers vegna hafa þjóðirnar
við Persaflóa þennan háttinn á?
Það stafar af því, að olíulindir
þeirra gefa af sér mikinn arð til
uppbyggingar, sem heimamenn
anna ekki á eigin spýtur. Þeim
liggur á. Þess vegna flytja þeir
inn erlent vinnuafl í svo stórum
stíl. Katar var fyrir fáeinum
árum marflöt eyðimörk, en líkist
nú Hong Kong, þar sem glitrandi
háhýsin ber við blátt hafið.
Kjaramunur
Aðflutt vinnuafl í Þýzkalandi og
á Norðurlöndum býr yfirleitt við
áþekk launakjör og heimamenn.
Lög og reglur kveða á um það
líkt og annars staðar í Evrópu.
Vinnuveitendum býðst því ekki
nema að litlu leyti að undirbjóða
innlent starfsfólk með innflutn-
ingi ódýrs erlends vinnuafls. Við
Persaflóa eru engin slík jafnrétt-
islög við lýði. Þangað streymir
því fólk víðs vegar að til að
vinna við miklu lakari kjörum
en tíðkast handa heimamönnum,
en þó við mun skárri kjörum en
aðflutta verkafólkið á að venjast
heima fyrir. Innfæddir Arabar
þurfa að keppa við aðflutta
vinnuaflið og sætta sig ógjarnan
eða alls ekki við þau kjör, sem
útlendingarnir gera sér að góðu.
Sums staðar leiðir þetta
ástand til atvinnuleysis meðal
innfæddra, en annars staðar, svo
sem í Katar, ræður ríkið heima-
menn í vinnu, ef vinnu skyldi
kalla frekar en dulbúið atvinnu-
leysi. Með þessu móti er heima-
mönnum greidd hlutdeild í olíu-
arðinum, en hún er minni en
þeim ber, enda er olíuauðurinn
sameign þjóðarinnar samkvæmt
alþjóðasáttmálum og lögum.
Konungsfjölskyldan ræður
lögum og lofum í landinu. Katar
er ásamt Sádi-Arabíu harðsvír-
aðasta einræðisríki heims sam-
kvæmt mælingum stjórnmála-
fræðinga, og mega katarskar
konur þó taka bílpróf. Önnur vís-
bending um skárri kjör kvenna
í Katar er, að konur þar eignast
nú 2,4 börn að jafnaði á móti 3,4
í Sádi-Arabíu. Talan var sjö börn
á hverja konu í báðum löndum
1960.
Menntadeyfð
Við aðstæður sem þessar slævist
áhugi ungs fólks á að afla sér
menntunar. Einkafyrirtæki kjósa
heldur ódýrt vinnuafl frá öðrum
löndum, bæði ófaglært verkafólk
og arkitekta, iðnaðarmenn, lækna
og verkfræðinga. Ríkið setur inn-
fædda starfsmenn á launaskrá
til að sporna gegn atvinnuleysi.
Innan við tíundi hver karlmaður í
Katar sækir háskóla borið saman
við 68 prósent í Bandaríkjunum
og 52 prósent hér heima. Röskur
fjórðungur kvenna sækir háskóla
í Katar, skólagangan er ókeypis.
Flestar hverfa konurnar síðan til
heimilisstarfa, án þess að skóla-
gangan nýtist þeim eða þjóðfé-
laginu við vinnu utan heimilis.
Landsliðið í knattspyrnu er að
mestu skipað útlendingum með
innlent ríkisfang.
Land, sem fer svo illa með
helming innfædds vinnuafls,
sættir sig við ýmsa aðra óhag-
kvæmni. Bensín kostar aðeins
30 krónur lítrinn, þótt hægt væri
að spara ógrynni fjár með því að
selja bensín heldur á heimsmark-
aðsverði. Leigubílar eru sjald-
séðir, því að kóngurinn á einu
leigubílastöðina og leyfir ekki
samkeppni. Húsnæði er niður-
greitt, og rafmagn er ókeypis.
Konungsfjölskyldan kaupir sér
með þessu móti frið til að ráðs-
kast undir leyndarhjúp með arð-
inn af olíulindunum. Fólkið gerir
sér að góðu molana, sem hrjóta
af borðum kóngafólksins. Eina
umtalsverða samkeppnin í land-
inu er erjur innan hirðarinnar.
Aðrir þora yfirleitt ekki að láta á
sér kræla, hvorki heimamenn né
nýbúar.
Hvað er til ráða?
Ríkisstjórnin þarf að glæða
áhuga ungs fólks á að afla sér
fjölbreyttrar menntunar frekar
en að flýja í skjól á skrifstofum
ríkisins. Til þess þarf samkeppni,
svo að ný fyrirtæki geti haslað
sér völl við hlið olíuvinnslunn-
ar. Konungsfjölskyldan þarf að
losa tökin. Lýðræði myndi skipta
sköpum.
Við Persaflóa G
rátkór íslenskra útvegsmanna hefur starfað hér á landi
svo lengi sem elstu menn muna. Lengi naut kórasam-
bandið þess skilnings hjá framkvæmdar- og löggjafar-
valdi að hag landsmanna var stýrt með handafli eftir
því hvernig stóð á í bókum stórra og smárra útgerða.
Fiskverð og fjárfestingar útgerða réðu því hvað sokkapar kostaði
iðnverkakonu og afgreiðslumann. Gengið var látið hoppa upp og
niður eftir hag útgerðarinnar.
Svo tók að rofa til: með samstilltu átaki var komið skipulagi á
veiðar, úrelding flotans var mál dagsins, skikk komið á veiðarnar
þó enn væru verndarsjónarmiðin ekki djúptæk, áfram haldið að
skrapa botninn á miðunum sem í dag eru líkast til stærsta mann-
gerða svæði á landgrunninu og því sem upp úr sjó stendur.
Kvótamálið hefur síðan verið stærsta misklíðarefni íslenskra
þjóðmála, svo flókið úrlausnar að öllum stjórnmálahreyfingum
er um megn að leysa það til framtíðar svo öllum líki. Hugmyndir
manna um hægfara fyrningu veiðiréttinda um fimm prósent ár
hvert hafa útgerðarmenn og samtök þeim hliðholl, sjómenn og
sveitarfélög, talið ógna tilveru atvinnugreinarinnar. Og líkt og
forðum fara fremstir í hagsmunagæslunni einstaklingar á launum,
háværir menn og til í tuskið enda hagsmunirnir ærnir, svo miklir
að útgerðarauðvaldinu dugði ekki minna en að kaupa heilt dagblað
undir stefnumið sín: að halda fast í allt sem þeir þegar höfðu og
fengu upp í hendurnar, ýmist vegna veiðisögu, eða þá með kaupum
á kvóta á markaði.
Nú má greina þræði frá því fyrirkomulagi til þess mikla hruns
efnislegra gæða sem varð og blasir daglega við hverri fjölskyldu
í landinu. Við erum enn að borga niður rekstur útgerðarmanna og
stjórnarskrárvarið eignarhald þjóðarinnar á auðæfum sjávar er
einskis virði í augum útgerðarmanna. Meðan þeir hafa nýtingar-
réttinn á sínu valdi.
Nýlegt upphlaup Samtaka atvinnulífsins vegna veiðiréttar á
skötusel er til marks um það að atvinnurekendur í landinu ætla í
fleirtölu að ganga erinda stórútgerða. Skötuselurinn skóp skjald-
borg um eignarhald í sjávarútvegi. Tilefnið er fyrirsláttur. Það er
mat stjórnarmanna í Samtökum atvinnurekenda að nú sé lag til að
berja niður lýðræðislega kjörna landsstjórn og það henti að ganga
erinda útgerðarinnar í orði um sinn. En þá rekst eitt á annars horn
í raunveruleikanum: landsstjórnin hótar þjóðaratkvæði um fyrn-
ingarleiðina, við skoðun kemur í ljós að sjávarútvegurinn í landinu
er skuldsettur upp í stromp og eiginfjárstaða í mínus. Útgerðin
var á fleiri miðum en fiskmiðum. Sömu menn og gráta nú með
sogum fimm prósenta fyrningu og uppboð sáust lítt fyrir þegar þeir
steyptu sér í skuldasöfnun, þeir hugsuðu ekki í fimm prósentum þá.
Það voru stærri tölur sem freistuðu þeirra. Og hvað gerðist ef kaup
hækkaði um fimm prósent? Eða verðfall yrði um fimm prósent?
Er ekki eðlilegt að spurt sé? Hvenær ætla íslenskir útgerðarmenn
að taka upp tal í alvöru við þjóðina sem góðfúslega hefur lánað þeim
miðin sem þeir fiska á? Eða þurfa þeir þjóðaratkvæðagreiðslu til
að skipta um tóntegund og söngstíl?
Harmurinn um hlutinn:
Fimm prósent
menn
PÁLL BALDVIN BALDVINSSON SKRIFAR
Eldri borgarar mótmæla
UMRÆÐAN
Helgi K. Hjálmsson skrifar
um málefni aldraðra
Landssamband eldri borgara (LEB) mótmælir harðlega
þeirri ósvífni stjórnvalda, sem
kemur fram í niðurskurði hvað
varðar hjúkrunarheimili fyrir
aldraða og öryrkja og lyfja-
kostnað sömu hópa. Þá mótmæl-
ir sambandið því samráðsleysi, sem viðgengst á
flestum sviðum hvað þessi mál varðar og virð-
ist einnig einkenna margar ráðstafanir þessarar
ríkisstjórnar. Krefjumst við breytinga þar á.
Við teljum lágmarks kurteisi að fólk sé virt
viðtals. Landssamband eldri borgara leggur
jafnframt megináherslu á að fjárforræði aldr-
aðra sé virt enda telst það til grundvallarmann-
réttinda. Það er óviðunandi að þeir sem dvelja á
hjúkrunar- og dvalarheimilum hafi ekkert um
sín fjármál að segja en fái þess í stað skammtaða
vasapeninga. Því krefst LEB þess að núverandi
greiðslufyrirkomulag á öldrunarstofnunum verði
lagt niður og fjárhagslegt sjálfstæði aldraðra
verði tryggt.
LEB leggur jafnframt áherslu á að fjölga þjón-
ustu- og búsetuúrræðum aldraðra. Þannig eiga
þeir sem þess óska að geta dvalið sem lengst á
heimilum sínum og fá þar sem besta þjónustu, án
þess að íþyngja fjölskyldum sínum. Jafnframt er
lögð áhersla á að þeir sem þess óska geti dvalið
á sambýlum þar sem hugað er að andlegum, til-
finningalegum, félagslegum og líkamlegum
þörfum þeirra.
Þá mótmælir LEB því að svo virðist sem taka
eigi upp gömlu hreppaflutningana á ný, en þeir
voru aflagðir 1937, en nýjasta dæmi um það var
varðandi öldrunarstofnunina Sólborg á Flateyri
undir yfirskyni sparnaðar. Sparnaðurinn er
fyrst og fremst fólginn í því, að losa ríkið undan
ýmsum greiðslum. Í staðinn borgar gamla fólkið
og öryrkjarnir sem ekki geta bætt sér upp aukin
útgjöld með því að auka tekjur sínar.
Höfundur er viðskiptafræðingur og formaður
Landssambands eldri borgara.
HELGI K.
HJÁLMSSON
Þjóðarsátt
Framsóknarflokkurinn lagði fram í
gær tillögu um þjóðarsátt; lista yfir
verkefni sem „[l]agt er til að allir
flokkar á Alþingi sammælist um
að vinna að“. Tillögurnar eru allrar
athygli verðar. Í meðfylgjandi greinar-
gerð kemur fram að stjórnmálaflokk-
unum á þingi hafi ekki tekist að
vinna saman að úrlausn ýmissa
vandamála. Það standi þó ekki
upp á Framsóknarflokkinn.
Hann hafi ítrekað sýnt í verki
að hann sé reiðubúinn til sam-
vinnu um endurreisnarstarfið.
Sem dæmi um viðleitni
sína til samstarfs
við aðra flokka nefnir Framsóknar-
flokkurinn að hann hafi til dæmis
varið ríkisstjórn falli, kynnt útfærðar
tillögur í efnahagsmálum, talað fyrir
auknu samstarfi og fleira. Þjóðar-
sáttin hefur með öðrum orðum
strandað á því að hinir flokkarnir
voru ekki reiðubúnir til að gera eins
og Framsóknarflokkurinn vildi.
Loksins ánægðir
með Hafró
Eiríkur Tómasson,
útgerðarmaður og
varaformaður LÍÚ, bloggar
um skötuselslögin
á Pressunni.
Eiríki þykir það skjóta skökku við að
VG, sem álíti sig umhverfisvænan
flokk, vilji auka veiðar á skötusel um
allt að 2.000 tonn. Það sé þvert á
álit Hafró. Það er gott að samtökin
meta álit sérfræðinga mikils. Hingað
til hafa útgerðarmenn nefnilega ekki
gefið alltof mikið fyrir tillögur Hafró.
LÍÚ lagði til dæmis til að skötusels-
kvóti ársins yrði 3.000 tonn. Hafró
lagði til 2.500 tonn, sem og
varð. Talið er líklegt að sjávar-
útvegsráðherra heimili veiðar
á 700 tonnum til viðbótar.
Heildarkvótinn yrði því um 200
tonnum meiri en LÍÚ lagði til.
bergsteinn@frettabladid.is