Fréttablaðið - 25.03.2010, Side 31
FIMMTUDAGUR 25. mars 2010
Tískublöð og ritstjórar hafa gríðarleg áhrif í tískuheiminum. Þau geta skipt sköpum fyrir
afkomu tískuhúsanna og hrein-
lega skipt öllu máli fyrir nýjan
hönnuð sem stígur sín fyrstu
skref í bransanum. Þeim er mik-
ilvægt að fá jákvæða umfjöllun
í tískupressunni þegar þeir eru
að byrja og reyndar geta gamlir
hundar stundum átt erfitt upp-
dráttar eftir neikvæða umfjöllun
tískuskríbentanna. Samband
blaðamanna og tískuiðnaðarins
er langt frá því að vera gegnsætt
og heilbrigt því tískuhúsin eru
mikilvægir auglýsendur hvort
sem um er að ræða blöð, tímarit
eða jafnvel sjónvarp. Líklegt að
blaðamenn og ritstjórar fari sér
hægt í að skrifa illa um mikil-
væga viðskiptavini þegar auglýs-
ingar eru annars vegar.
Á tískuvikunni í byrjun mars-
mánaðar fréttist að einn af fræg-
ari ritstjórum tískupressunni,
Carine Roitfeld, ritstjóri franska
Vogue, hafði ekki fengið boðs-
kort á tískusýningu Balenciaga
og var hreinlega bannað að koma
á tískusýninguna. Carine Roit-
feld er áhrifamikil í tískunni,
minnir á hina óviðjafnanlegu
Önnu Wintour, ritstjóra banda-
ríska Vogue, sem var fyrirmynd
aðalpersónu bókarinnar Djöf-
ullinn klæðist Prada og Merill
Streep gerði ódauðlega á hvíta
tjaldinu. Fyrir suma hönnuði
hefur hún skipt öllu máli á ferl-
inum. En tískuhús Balenciaga
kunni illa að meta að Carine
Roitfeld hvíslaði í eyra eins sam-
keppnisaðila nokkrum hugmynd-
um sem reyndust komnar frá
tískuhúsinu. Tískuritstjórarnir
eru nefnilega ekki aðeins í blaða-
mennsku heldur selja sömuleiðis
ráðgjöf til tískuhúsanna, ritstjór-
arnir skrifa svo aftur um tísku-
húsin og markaðsdeildirnar selja
tískuhúsunum auglýsingar. Sam-
kvæmt tískuráðgjafa sem hefur
gert þetta vafasama samband
tískuhúsa og tískublaðamanna að
umtalsefni getur þessi ráðgjöf
kostað 50.000 evrur á dag og
jafnvel 10.000 evrur á tímann!
Svo eru selja þeir ritstjórar sem
eru gráðugastir ráðgjöf sína til
fleiri en eins aðila á sama tíma,
því mikið vill meira. Að auki
hafa þessir tískuritstjórar og
blaðamenn oftast 30 prósenta
afslátt hjá tískuhúsunum og fá
að auki boð á einkaútsölur, svona
rétt til að liðka aðeins meira
fyrir „jákvæðum og góðum sam-
skiptum“. Spurning hvort ekki
sé hreinlega hægt að tala um
mútur, í það minnsta afskaplega
óljós og óskilgreind tengsl svo
ekki sé meira sagt.
Stundum dugir þó ekki til að
hafa ástir Önnu Wintour til að
slá í gegn. Olivier Theyskens
naut taumlauss stuðnings henn-
ar við að endurreisa hið gamla
tískuhús Ninu Ricci án þess að
nokkuð gengi. Á endanum gafst
Theyskens upp. Nú hefur Peter
Chopping tekið við hjá Ninu
Ricci og síðan leikur allt í lyndi á
þeim bænum.
bergb75@free.fr
Að dæma lifendur og dauða
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Óskar tískunnar er á næsta leiti
og voru tilnefningarnar kunn-
gjörðar fyrir skemmstu.
CFDA-verðlaunin (Counc-
il of Fashion Designers
of America awards), sem
má kalla Óskarsverðlaun
tískuiðnaðarins, verða
veitt hinn 7. júní næst-
komandi. Tilnefning-
ar voru kunngjörð-
ar á mánudag og
í kvenfataflokki
mátti heyra nöfnin
Marc Jacobs, Donnu
Karan og Alexand-
er Wang. Í karl-
mannsfataflokki
voru það hins vegar
Tom Ford, Michael
Bastian og Mar-
cus Wainwright &
David Neville fyrir
Rag & Bone sem
hlutu tilnefningar.
Marc Jacobs hlaut
einnig tilnefningu í fylgihluta-
flokki ásamt Alexis Bittar og Laz-
aro Hernandez og Jack McColl-
ough sem hanna fyrir Proenza
Schouler.
Verðlaunanefndin hefur
þegar gefið út að Alexand-
er McQueen, sem lést fyrr
á þessu ári, muni hljóta
sérstaka heiðursviður-
kenningu fyrir framlag
sitt til tískuiðnaðarins
auk þess sem banda-
ríski fatahönnuður-
inn Michael Kors fær
verðlaun fyrir ævi-
starfið en hann hefur
starfað við tískuiðn-
aðinn í þrjátíu ár. Þá
munu ungir og efni-
legir hönnuðir hljóta
sérstök hvatningar-
verðlaun í öllum
flokkum. - ve
Hönnuðir heiðraðir
Fatahönnuðurinn
Donna Karan er
tilnefnd í kvenfata-
flokki.
Tísku- og lífsstílstímaritið
Vogue var stofnað í Banda-
ríkjunum árið 1892 og hefur
verið lífseigasta og farsæl-
asta tískutímaritið allar götur
síðar. Stofnandi þess var
Arthur Baldwin Turnure.
Tímaritið er gefið út í átján
löndum. Það heldur einnig
úti síðunni www.style.com
wikipedia.org
T H E D A Z Z L I N G R A D I A N C E
O F C R Y S TA L F O R Y O U R C O M P L E X I O N
Kringlunni
20% afsláttur af GUERLAIN á kynningardögum 25.–31. mars í snyrtivöruverslun
Lyfja & heilsu kringlunni. Sérfræðingar GUERLAIN verða á staðnum og veita faglega ráðgjöf. Kynnum nýja farðann frá
Guerlain, Parure Aqua, Parure Extreme og Parure Gold. Farði sem dregur fram ljóma húðarinnar, gefur henni raka og fallega áferð.
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili að
Frístundakorti Reykjavíkurborgar.
www.jsb.is
Vornámskeið
8. apríl - 6. maí 2010
Í form fyrir sumarið
4 vikna vikna JAZZDANS og PÚL námskeið fyrir þá sem
elska að dansa og hafa áhuga á að koma sér í gott form.
• Kennt er á mánudögum kl.20:00
og fimmtudögum kl.19:30
• Tímar eru fyrir byrjendur og lengra komna
• Hver tími er 75 mínútur, áhersla á styrk,
liðleika og dansþjálfun.
• Kennarar eru Irma Gunnarsdóttir og Þórdís Schram
Vertu með! Skráning í síma 5813730 og á jsb@jsb.is
Verð: 8.900 kr.
Innifalinn er frjáls aðgangur að tækjasal meðan
á námskeiði stendur.
Nýtt!
STUDIOKORT er árskort sem gildir á öll dansnámskeið í
Dansstudioi JSB á tímabilinu. Fjölbreytt námskeið í boði
allan ársins hring. Kortið veitir einnig frjálsan aðgang
að tækjasal JSB.
Verð: 56.900 kr.
¨
Innritun hafin! Sími 581 3730
ansararD