Fréttablaðið - 25.03.2010, Side 34
25. MARS 2010 FIMMTUDAGUR
Under Armor Spectre II (Herra)
St: 42–46
Verð 19.990 kr.
(svart/blátt)
Under Armor Apparition II (Dömu)
St: 37–42
Verð 23.590 kr.
(hvítur/gulur)
Nike Lunarglide+ (herra)
St:42–46
Verð 29.990 kr.
(grár/grænn)
Nike Lunarglide+ (dömu)
St: 37–42
Verð 29.990 kr.
(grár/bleikur)
Útilíf er þekkt fyrir afbragðs
úrval af fallegum, hágæða
hlaupaskóm frá bestu vöru-
merkjum heims.
„Útilíf hefur alltaf verið með
ríkulegt úrval af hlaupaskóm
og er úrvalið nú meira en vana-
lega, enda áhugi landsmanna á
hlaupum alltaf að aukast og við
að koma til móts við aukna eft-
irspurn,“ segir Rut Arnardótt-
ir, vörustjóri skódeildar Útilífs,
sem rekur fjórar verslanir á höf-
uðborgarsvæðinu í Holtagörðum,
Kringlunni, Glæsibæ og Smára-
lind en verslanir Útilífs leit-
ast við að bjóða upp á íþrótta-
og útivistarfatnað, skó og aðrar
íþróttavörur í hæsta gæðaflokki,
ásamt því að hafa úrval í helstu
verðflokkum.
Útilíf tók á haustdögum inn
nýja íþróttavörumerkið Under
Armour, en því hefur verið tekið
fagnandi, ekki síst af dömum,
segir Rut.
„Under Armour er nýtt merki
á heimsvísu og framleiðir há-
gæða hlaupaskó sem sameinar
topphönnun og fyrsta flokks skó-
vísindi. Þá njóta Asics og Adidas
samfelldra vinsælda meðal hlaup-
ara, sem og Nike-hlaupaskór sem
nú hefur sett fram nýju Lunar-
línuna sem er afar flott skótau
og dálítið speisað í útliti. Lunar
mótast vel að fætinum með spán-
ýrri tækni og eru einstaklega létt-
ir og góðir fyrir lengri hlaup,“
segir Rut og útskýrir að nýjungar
berist nánast með hverri nýrri
sendingu af hlaupaskóm.
„Tækninni fleygir stöðugt fram
í hlaupaskógerð og ýmist að nýir
eiginleikar bætast við í flóruna
eða að eiginleikar sem fyrir voru
séu betrumbættir. Hlauparar leita
líka sífellt vandaðri skófatnaðar og
á það jafnt við um íþróttafólk sem
og áhugafólk.“
Rut segir úrvalið af hlaupaskóm
svo fjölbreytt að allir geti fund-
ið eitthvað við sitt hæfi í Útilífi.
„Byrjendur kaupa sér oft einfald-
ari skó í byrjun, en finna fljótlega
að þeir þurfa vandaðri skó með
góðri dempun. Dempunin hefur
mikið að segja um álag á hné og
virkar almennt þægilegri fyrir lík-
amann, en þannig fer hlauparinn
nánast um í léttum loftköstum.“
Hlaupið um í loftköstum
Rut Arnardóttir er vörustjóri skódeildar Útilífs. Hún segir liti á skóm endurspegla litatísku íþróttafatnaðar, þannig að skór séu í
stíl við fatnaðinn. Nú eru bleikir litir allsráðandi í dömutískunni og bláir og skærgrænir í herralínunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is
s. 512 5439 og Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is s. 512 5411
● MEÐ FYRSTU AUGLÝSINGUNUM Ein fyrsta
auglýsing um strigaskó birtist árið 1890 í Ísafold þar
sem strigaskór, eða „touristasko“ voru auglýstir á 7
krónur hjá Lárusi G. Lúðvígssyni á Skólavörðustíg.
Fjórum áður síðar, árið 1894, birtist auglýsing
í Austra þar sem Andrés Rasmussen á Seyðisfirði
auglýsir til sölu strigaskó fyrir drengi á 1,50-6 krónur
og í klausunni er um leið minnt á að hjá Rasmussen sé
hægt að fá „morgunskó í þrem litum“ og „mjög sterka
kvenskó“.
Átján árum eftir að skóverslun Lárusar auglýsti
strigaskó á sjö krónur auglýsti verslunin aftur strigaskó
til sölu, árið 1908, í Þjóðólfi. Í greininni eru strigaskórn-
ir sagðir ýmist reimaðir, með spennum eða fjöðrum
og í brúnum, gráum, svörtum og rauðbrúnum lit.
● UMHIRÐA Með góðri umhirðu geta strigaskórnir enst lengi. Á vef Leiðbeiningastöðvar
heimilanna er að finna góð ráð um meðferð á skófatnaði og yfirleitt er þvottaleiðbeiningar að
finna innan í strigaskónum.
Flesta strigaskó má þvo í vél en þá er gott að setja þá inn í koddaver eða þvottaskjóðu
og þvo á mildu kerfi. Strigaskó sem ekki mega fara í vélina má þvo með teppasjampói
og svörtum röndum má ná af með kveikjarabensíni. Grasgrænu má ná af strigaskóm með
uppþvottalegi og volgu vatni og sniðugt er að nota lítinn bursta eins og tann- eða nagla-
bursta við verkið.
Bera skal feiti á skó úr gerviefni og þurrka með mjúkum klút svo þeir haldi lengur fallegu
útliti. Í skó sem lykta illa, eins og íþróttaskó, má reyna að strá vel af matarsóda og láta
standa yfir nótt. Matarsódanum er svo hellt úr eða ryksugaður úr skónum áður en farið er í
þá. Eins má setja skóna í plastpoka og frysta til að losna við óværu sem veldur vondri lykt.
Það skiptir máli að ganga vel frá skóm sem ekki eru í notkun. Geyma í skóhillum eða
jafnvel í skókössum sem anda. Skældum og illa gengnum skóm borgar sig að henda, þeir
fara illa með fæturna.