Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.03.2010, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 25.03.2010, Qupperneq 48
32 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggva- dóttur Strippdans hefur verið bannaður á Íslandi. Þetta eru stórtíðindi út af fyrir sig en áður höfðu kaup á vændi verið bönn- uð. Ferskir vindar kynjajafnréttis blása um Alþingi, var haft eftir þingmanni í blaðinu í gær. Ég hlýt að gleðjast yfir þessum áfanga, kvenremban sem ég er. Mér hefur alltaf verið illa við útgerð á nöktum stúlkum. FÓLK hefur á þessu misjafnar skoðanir. ræðir þetta sín á milli á kaffistofum eins og gengur. Kynsystur mínar gleðjast flest- ar og einhverjir karlmenn líka. Ekki eru þó allir sáttir. Alltaf eru einhverjir sem trúa því að nektardansmeyjar séu ham- ingjusamar og stundi nektardans eins og hverja aðra vinnu, til dæmis til að safna fyrir háskólanámi! Þá segja sumir nektardans tiltölulega saklaust fyrirbæri, skemmtun sem óþarfi sé að setja lög og reglur um. Líklega myndi þeim hinum sömu þó ekki hugn- ast að dætur þeirra, mæður eða systur væru gerðar út á þennan hátt til afþreyingar karlmönnum. MIG grunar að fæstir þeir sem heimsækja nektardans- staði velti fyrir sér á hvaða forsendum stúlkan á sviðinu sé þarna stödd eða hvað fer í gegnum huga hennar meðan á sýningu stendur. Hvort henni finnist hún niðurlægð eða henni ógnað. Eins vita allir, þó það hafi ekki alltaf verið opinberlega viðurkennt, að nektardansstöðum getur fylgt önnur útgerð; vændi. VÆNDI eru flestir sammála um að sé vont. Fáir halda því fram að vændi sé eftirsókn- arverð starfsgrein sem hamingjusamar stúlkur flykkist í. Menn viðurkenna ekki opinberlega að þeir kaupi sér kynlíf reglu- lega eða tala um það á kaffistofunni rétt eins og þeir hafi farið í klippingu. Vændið tilheyrir dökkum heimi sem enginn vill láta bendla sig við. Á ÍSLANDI fer fram vændi þó ólöglegt sé. Og á kaffistofunum heyrast nú raddir sem segja að með nýjum lögum um bann á nektardansi hafi verið lokað eina opinbera vettvanginum þar sem hægt var að fylgjast með vændisstarfsemi og annarri útgerð á stúlkum. Enda ólíklegt að starfsemin detti upp fyrir þó búið sé að setja lög. Eftir- spurnin verður áfram fyrir hendi. ÉG GET þó ekki annað en verið fylgjandi banninu. Við megum ekki sætta okkur við að nektardans stúlkna og vændi sé sjálf- sagður hlutur sem ekki verði hróflað við. Það er eitthvað öfugsnúið við að leyfilegt sé að gera dætur, systur og mæður út á þennan hátt feðrum, bræðrum og sonum til skemmtunar. Það er bannað. Nú er það bannað *Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum. Þú færð 5 mínútur til að svara spurningu. Leik lýkur 6. apríl kl. 23:59 2010. 149 kr/skeytið. Vinningar eru afhentir í ELKO Lindum. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. AÐAVINN INGUR! PALLADI NE 47” FLATSKJ ÁR FRUMSÝND 19. MARS palla dine 4 7” sjónv arp Full H D VILTU VINNA SJÓNVARP? 10. HV ER VIN NU R! ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Frábært. Rómverjarnir verða ánægðir að heyra að... ... þú hafir klárað Turninn í Pisa á undan áætlun og undir kostn- aðaráætlun. Stóri-Stígur! Pondus! Ánægjulegt! Rautt spjald áður en leikurinn byrjaði? Er það met? Nei! Ég straujaði línuvörð í búningsklef- anum einu sinni í yngri flokkunum! Það fyrsta sem maður gerir er að flokka fötin eftir litum... ... hvítt, dökkt og litir sitt í hverju lagi. Eða í þínu tilfelli, sjúskað, slitið og upplitað. Ég mun kannski geta ákveðið litinn á nokkrum bolunum mínum þegar það er búið að þvo þá. Hvað ertu að gera? Gæta Lóu. Ég er stóri bróðir hennar svo það er mitt hlutverk að gæta þess að ekkert hendi hana... Ég skal gefa þér tíkall ef þú reynir að klípa hana.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.