Fréttablaðið - 25.03.2010, Síða 51
FIMMTUDAGUR 25. mars 2010 35
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 25. mars 2010
➜ Tónleikar
19.30 Sinfóníuhljómsveit Íslands
og Hamrahlíðarkórarnir undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur, flytja verk
Pauls Hindemith og Maurice Ravel á
tónleikum sem fara fram í Háskólabíói
við Hagatorg. Nánari upplýsingar á
www.sinfonia.is.
20.00 í tilefni af 75 ára fæðingaraf-
mæli Elvis Presley halda Friðrik Ómar
og hljómsveit tónleika í Salnum við
Hamraborg í Kópavogi.
20.00 Söng-
og leikkonan
Jana María
Guðmunds-
dóttir og Valmar
Valjaots flytja
tónlistardagskrá
tileinkaða Ingi-
björgu Þorbergs,
söngkonu og
tónskáldi, í Sam-
komuhúsinu við
Hafnarstræti á
Akureyri.
20.30 Stórsveit Suðurlands heldur
tónleika í Iðnó við Vonarstræti. Á efnis-
skránni verða hefðbundin swinglög,
samba og funk. Sérstakur gestur tón-
leikanna er Raggi Bjarna.
21.00 Kvartett Maríu Magnúsdóttur
heldur tónleika í kjallara Cafe Cultura
við Hverfisgötu. Á efnisskránni verða
m.a. lög Billie Holiday, Ellu Fitzgerald,
Susönu Baca og Lhasa de Sela.
21.00 Hljómsveitin Árstíðir heldur
tónleika ásamt Myrru Rós á Kaffi Rósen-
berg við Klapparstíg.
➜ Opnanir
Dagbjört Matthíasardóttir og Magnús
Hannibal Traustason opna sýningu í
sýningarrýminu Boganum í Gerðubergi
(Gerðubergi 3-5) Sýningin verður opin
alla virka daga kl. 11-17 og um helgar
kl. 13-16.
➜ Fundir
17.00 Borgarbókasafn Reykjavíkur
og Ljósmyndasafn Reykjavíkur efna
til kráarölts um miðbæinn um þar sem
staðir við Aðalstræti og Hafnarstræti
verða skoðaðir og saga þeirra rakin.
Leiðsögumenn eru Einar Ólafsson, Gísli
Helgason og Úlfhildur Dagsdóttir. Lagt
verður af stað frá Grófarhúsi kl. 20. Allir
eru velkomnir og enginn aðgangseyrir.
➜ Sýningar
Bóel Ísleifsdóttir og Anna Henriksdóttir
hafa opnað myndlistarsýningu á
veitingastaðnum Á næstu grösum við
Laugaveg 20b. Opið mán.-lau. kl.
11.30-22 og sun. kl. 17-22.
Á Listasafninu á Akureyri við Kaup-
vangsstræti hefur verið opnuð yfirlits-
sýning á verkum Tryggva Ólafssonar
sem spannar 40 ár af ferli hans. Opið
alla daga vikunnar nema mánudaga kl.
12 til 17.
í Sýningarsal Listasafns Reykjanes-
bæjar í Duushúsum, hefur verið opnuð
ljósmyndasýningin Spegilsýnir. Þeir
listamenn sem eiga verk á sýningunni
eru Bára Kristinsdóttir, Einar Falur
Ingólfsson, Jónatan Grétarsson, Katrín
Elvarsdóttir, Spessi og Þórdís Erla
Ágústsdóttir. Opið virka daga kl. 11-17
og um helgar kl. 13-17.
➜ Síðustu forvöð
Í Gallerí Fold við Rauðárstíg stendur
yfir sýning Hrafnhildar Ingu Sigurðar-
dóttur en henni lýkur á sunnudag. Opið
mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 11-16 og sun.
kl. 14-16.
➜ Upplestur
17.15 Ritlistarhópur Kópavogs verð-
ur með upplestur í rýminu Kórnum á
Bókasafni Kópavogs við Hamraborg 6a.
Arngrímur Vídalín og Sigurlaug Bjarney
Gísladóttir lesa úr ljóðum sínum. Allir
velkomnir og enginn aðgangseyrir.
➜ Pub Quiz
20.00 Fótbolta-mottu
Quiz verður haldið á Enska
barnum við Austurstræti.
Allir sem mæta með
mottu fá frían bjór.
Barinn ætlar að
tvöfalda aðgangseyr-
inn og gefa til átaksins
„Karlmenn og Krabba-
mein”. Tveir í liði, 30
fótboltaspurningar,
mottuþema. Nánari
upplýsingar á www.
sammarinn.com.
➜ Leikrit
14.00 Leikfélagið Snúður og Snælda
verður með aukasýningu á leikverkinu
“Nakinn maður og annar í kjólfötum”
eftir Dario Fó í Iðnó við Vonarstræti.
Upplýsingar um viðburði sendist á
Á Listahátíð í Reykjavík í vor býðst
einstakt tækifæri til að sjá rómuð-
ustu ástarsögu allra tíma, Rómeó
og Júlíu eftir William Shakespeare,
í stórbrotinni uppfærslu litháíska
leikstjórans Oskaras Koršunovas
á Stóra sviði Borgarleikhússins.
Forsala á þennan einstaka viðburð
hefst í dag kl.10 í miðasölu Borgar-
leikhússins, á www.listahatid.is og
www.miði.is. Þessi margverðlaun-
aða uppsetning hefur ferðast um
allan heim síðustu tíu ár og kemur
til Íslands í samvinnu Borgarleik-
hússins og Listahátíðar í Reykja-
vík. Um sannkallaðan hvalreka er
ræða fyrir leikhúsáhugafólk því
túlkun Koršunovas er einstök á
þessu verki.
Oskaras Koršunovas er einn
fremsti leikstjóri Evrópu í dag og
stýrir hann Borgarleikhúsi Vilnius.
Koršunovas hefur sett upp leikrit
víðs vegar um heiminn en undanfar-
in ár hefur hann reynt að einbeita
sér að OKT Borgarleikhúsinu í Viln-
ius. Hann hefur þó tekið frá tíma
til að leikstýra jólaleikriti Borgar-
leikhússins nú í ár. Hefur hann valið
annað Shakespeare-verk sem hann
vill takast á við með íslenska hópn-
um, Ofviðrið. Síðasta leikstjórnar-
verkefni Koršunovas var nú í mars
í Folkoperan í Stokkhómi. Þar vann
hann óperu Kurts Weill, Der Silver-
see eða Silfurhafið, sem var fyrst
frumsýnd árið 1933. Gagnrýnend-
ur í Svíþjóð hafa lofað uppsetning-
una einróma og gekk gagnrýnandi
Dagens Nyheter svo langt að kalla
uppsetninguna kraftaverk.
Koršunovas lætur Rómeó og
Júlíu gerast meðal bakara og berj-
ast ættirnar tvær ekki bara um
völdin í Verónaborg heldur líka
um það hver bakar besta brauð-
ið og sætustu kökurnar. Mikill
kraftur, húmor og magnað sjónar-
spil einkenna sýninguna. Sjálfur
segir Koršunovas um nálgun sína
að verkinu:
„Rómeó og Júlía er þjóðfélagslegt
leikverk, þar sem ósköp venjuleg
ást dregst inn í harmrænar aðstæð-
ur og verður því að harmleik. Það
sem heillar mig mest er að ástin
kviknar og dafnar í hatursfullum
kringumstæðum stríðshrjáðrar
Verónu. - pbb
Miðasala hafin á ástarsögu
LEIKLIST Atriði úr rómaðri sviðsetningu
Koršunovas á Rómeó og Júlíu.
MYND/BORGARLEIKHÚSIÐ
MIÐASALAN ER OPIN FRÁ 13:00-17:00
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200
MIÐASALA Á NETINU: WWW.LEIKFELAG.IS
NETFANG: MIDASALA@LEIKFELAG.IS
GAMANLEIKRIT EINS OG ÞAÐ GERIS
T BEST!
4 LEIKARAR 1
39 HLUTVERK
Sýnt í Samkomuhúsinu
LEIKHÚSVEISLA
Á AKUREYRI UM PÁSKANA!
MIÐASALA Í SÍMA 4600 200 TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Í TÍMA!
Þrjár fyndnustu leikkonur
landsins saman á sviðinu!
Sýnt í Rýminu
Sýnt í Samkomuhúsinu
Sýnt á Marina, Strandgötu 53