Fréttablaðið - 25.03.2010, Page 52

Fréttablaðið - 25.03.2010, Page 52
36 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR Leikhús ★★ Fíasól Eftir Kristínu Helgu Gunnars- dóttur Leikarar: Lára Sveinsdóttir, María Pálsdóttir, Sindri Birgisson Tónlist: Ingó í Veðurguðunum Leikmynd: Högni Sigurþórsson Búningar: Leila Arge Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmasson Hárgreiðsla: Þóra Björg Benediktsdóttir Leikgerð: Kristín Helga Gunnarsdóttir og Vigdís Jakobsdóttir Leikstjórn: Vigdís Jakobsdóttir Litskrúðugt krakkaherbergi tekur á móti óþreyjufullum ungum áhorf- endum. Herbergið er heillandi og bjart og því gersamlega út í hött að kalla það ruslahaug þó svo að dótinu sé ekki raðað spikk og span. Fías- ól er heima ásamt vini sínum Ing- ólfi þar sem hún er lasin og af og til kemur mamma hennar hóstandi og segir frá því að hún sé með flensu. Í hlutverki Fíusólar sjáum við Láru Sveinsdóttur sem því miður lék á frekju-, geiflu- og garg nótum mest- megnis þó svo að henni hafi tekist að slaka á inn á milli. Maríu syst- ur hennar og tiltektarkarlinn, sem heillaði alla krakka þegar hann kom með skrítnu ryksuguna sína, lék María Pálsdóttir, sem hvíldi betur í sínum hlutverkum. Ing- ólf, vininn með húfuna, lék Sindri Birgisson og var hann góður í sínu hlutverki þótt atkvæðalítill væri. Fíasól byggist sem kunnugt er á samnefndum bókum og höfðu margir áhorfendur greinilega kynnst henni í ýmsum myndum og því var eðlilegt að ákveðinnar von- svikni gætti hjá þeim áhorfendum, þar sem svo óskaplega lítið gerðist. Það var beðið eftir ævintýri en það lét standa á sér. Ein níu ára gretti sig lítillega þegar sýningu lauk og sagðist oft hafa séð skemmtilegri leikrit en þetta, fyrir utan að Fíasól er ekki í raun og veru svona asnaleg. Þetta voru kannski orð að sönnu, hún var gerð of asnaleg. Það að geifla sig og hoppa í rúminu sínu með tíu tíkarspena er ekki nóg til þess að skemmta, fræða, hræða og ala upp vitsmunaverur af yngstu kynslóð- inni. Sumum finnst það uppeldis- lega skemmtilegt að tala um kúk og piss og velta sér upp úr mynd- líkingum um þau fyrirbæri. Per- sónulega finnst mér það ódýr leið að ungum hjörtum. Leikmyndin var heillandi og lit- irnir vöktu gleði og áhuga en tón- listaratriðin voru of hvöss einhvern veginn fyrir utan að bein þátttaka áhorfenda sem áttu þó að sitja inni í herbergi Fíusólar varð engin. Um síðustu helgi sýndu leikarar Mögu- leikhússins Langafa prakkara, leik- verk sem alla jafna er sýnt á leik- skólum en var nú tyllt upp á svið þar efra í Breiðholti, Gerðubergi. Þar segir frá lítilli stelpu sem er í pössun hjá langafa sínum sem er blindur og mjög uppátektarsamur. Það má segja, ef verkin eru borin saman, að prakkarinn hafi lifnað við og verið skilgreindur hjá Lang- afa meðan Fíasól var bara með látalæti. Lítið er ungs manns gaman og það er mikilvægt að halda ungu kynslóðinni að leikhús- inu snemma, en það verður líka að gera sér grein fyrir að börnin eru vitsmunaverur og það verð- ur að hafa nokkur grunnatriði í huga við gerð sýninga fyrir börn, nefnilega uppeldisþáttinn, og að hræða, fræða og skemmta. Besti bútur sýningarinnar uppfyllti þessa þætti, nefnilega hið örstutta augnablik meðan draugarnir undir rúminu fengu að leika lausum hala. Leikmyndin var eftirminnilegust, veröld sem margir krakkar hefðu viljað staldra aðeins við í. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Illa nýtt tækifæri til að búa til leiksýningu eftir vinsælum barnabókum. Leikmynd og tíkarspenar LEIKLIST Höfundurinn Kristín Helga, Lára Sveinsdóttir í hlutverki Fíusólar og leikstjórinn Vigdís Jakobsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Margt er á seyði á Akureyri næstu daga: Akureyrarakademí- an skipuleggur fyrirlestur í gamla Húsmæðraskólanum í dag kl. 17. Þóroddur Bjarnason, félagsfræð- ingur við Háskólann á Akureyri, flytur þar erindi í fyrirlestraröð Akademíunnar sem hann nefnir „Ertu á förum? Framtíð búsetu á norðanverðum Tröllaskaga“. Erindið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Í kvöld er dagskrá í Sigurhæð- um kl. 20. Þórunn Valdimarsdótt- ir hefur skrifað sögu Matthías- ar Jochumssonar. Hún þekkir því vel sögu fátæka drengsins úr Þorskafirði sem varð eitt ástsæl- asta skáld þjóðarinnar. Hún rýnir einnig í ljóð sem fundust á Sigur- hæðum en höfðu ekki birst í ljóða- bókum Matthíasar. Stofutónleikar verða að loknum fyrirlestri, Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðla og Matti Tapani Saarinen gítar leika. Á morgun verða tónleikar í Ketil húsinu kl. 20. Kór Mennta- skólans í Reykjavík er kominn norður og syngur þar kirkjuleg og veraldleg verk, bæði íslensk og erlend. Þar er að finna útsetn- ingar úr íslenskum söngarfi eftir Róbert A. Ottósson, Smára Ólason, Hjálmar H. Ragnarsson og Árna Harðarson. Stjórnandi kórsins er Guðlaugur Viktorsson. Menning á Akureyri Fagor hitakútar TB W A \P IP A R • S ÍA • 1 00 81 4 45.900 49.900 56.900 65.900 73.900 82.900 97.900 Landsýn Vissir þú... að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir veislur, fundi, ráðstefnur og námskeið?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.